Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - 1CHRONICLES 18

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    18:1 Eftir ţetta vann Davíđ sigur á Filistum og braut ţá undir sig, og náđi Gat og borgunum umhverfis hana úr höndum Filista.

    18:2 Hann vann og sigur á Móabítum, og ţannig urđu Móabítar skattskyldir ţegnar Davíđs.

    18:3 Davíđ vann og sigur á Hadareser, konungi í Sóba, er liggur á leiđ til Hamat, ţá er hann fór leiđangur til ađ festa ríki sitt viđ Efratfljót.

    18:4 Vann Davíđ af honum ţúsund vagna, sjö ţúsund riddara og tuttugu ţúsundir fótgönguliđs. Lét Davíđ skera sundur hásinarnar á öllum stríđshestunum og hélt ađeins einu hundrađi eftir.

    18:5 Ţegar Sýrlendingar frá Damaskus komu til liđs viđ Hadareser, konung í Sóba, ţá felldi Davíđ tuttugu og tvö ţúsund manns af Sýrlendingum.

    18:6 Og Davíđ setti landstjóra á Sýrlandi, ţví er kennt er viđ Damaskus, og urđu Sýrlendingar skattskyldir ţegnar Davíđs. Ţannig veitti Drottinn Davíđ sigur, hvert sem hann fór.

    18:7 Davíđ tók og hina gullnu skjöldu, er ţjónar Hadaresers höfđu boriđ, og flutti til Jerúsalem.

    18:8 Auk ţess tók Davíđ afar mikiđ af eiri í Teba og Kún, borgum Hadaresers. Af ţví gjörđi Salómon eirhafiđ, súlurnar og eiráhöldin.

    18:9 Ţegar Tóú, konungur í Hamat, frétti ađ Davíđ hefđi lagt ađ velli allan her Hadaresers, konungs í Sóba,

    18:10 ţá sendi Tóú Hadóram son sinn á fund Davíđs konungs til ţess ađ heilsa á hann og árna honum heilla, er hann hafđi barist viđ Hadareser og unniđ sigur á honum, ţví ađ Tóú átti í ófriđi viđ Hadareser. Og međ honum sendi hann alls konar gripi af gulli, silfri og eiri.

    18:11 Gripina helgađi Davíđ konungur einnig Drottni, ásamt silfri ţví og gulli, er hann hafđi haft á burt frá öllum ţjóđum: frá Edóm, Móab, Ammónítum, Filistum og Amalek.

    18:12 Og Abísaí Serújuson vann sigur á Edómítum í Saltdalnum, átján ţúsundum manns.

    18:13 Og hann setti landstjóra í Edóm, og allir Edómítar urđu ţegnar Davíđs. En Drottinn veitti Davíđ sigur, hvert sem hann fór.

    18:14 Og Davíđ ríkti yfir öllum Ísrael og lét alla ţjóđ sína njóta laga og réttar.

    18:15 Jóab Serújuson var fyrir hernum og Jósafat Ahílúđsson var ríkisritari,

    18:16 Sadók Ahítúbsson og Abímelek Abjatarsson voru prestar og Savsa kanslari.

    18:17 Benaja Jójadason var fyrir Kretum og Pletum, og synir Davíđs voru hinir fyrstu viđ hönd konungi.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine