Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - 1CHRONICLES 24

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    24:1 Aronsniðjar höfðu og flokkaskipun fyrir sig. Synir Arons voru: Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.

    24:2 En Nadab og Abíhú dóu á undan föður sínum og áttu eigi sonu, og urðu svo þeir Eleasar og Ítamar prestar.

    24:3 Og þeir Davíð og Sadók af Eleasarsniðjum og Ahímelek af Ítamarsniðjum skiptu þeim niður í starfsflokka eftir embættum þeirra.

    24:4 En það kom í ljós, að af Eleasarsniðjum voru fleiri höfðingjar en af Ítamarsniðjum. Fyrir því skiptu menn þeim svo, að af Eleasarsniðjum urðu sextán ætthöfðingjar, en átta af Ítamarsniðjum.

    24:5 Og hvorum tveggja skiptu menn eftir hlutkesti, því að helgidómshöfðingjar og Guðs höfðingjar voru af niðjum Eleasars og af niðjum Ítamars.

    24:6 Og Semaja Netaneelsson ritari, einn af levítum, skráði þá í viðurvist konungs og höfðingjanna og Sadóks prests og Ahímeleks Abjatarssonar og ætthöfðingja prestanna og levítanna. Var ein ætt tekin frá af Eleasar og ein af Ítamar.

    24:7 Fyrsti hluturinn féll á Jójaríb, annar á Jedaja,

    24:8 þriðji á Harím, fjórði á Seórím,

    24:9 fimmti á Malkía, sjötti á Mijamín,

    24:10 sjöundi á Hakkos, áttundi á Abía,

    24:11 níundi á Jesúa, tíundi á Sekanja,

    24:12 ellefti á Eljasíb, tólfti á Jakím,

    24:13 þrettándi á Húppa, fjórtándi á Jesebeab,

    24:14 fimmtándi á Bilga, sextándi á Immer,

    24:15 seytjándi á Hesír, átjándi á Happísses,

    24:16 nítjándi á Pelashja, tuttugasti á Jeheskel,

    24:17 tuttugasti og fyrsti á Jakín, tuttugasti og annar á Gamúl,

    24:18 tuttugasti og þriðji á Delaja, tuttugasti og fjórði á Maasja.

    24:19 Er það starfskvöð þeirra að fara inn í musteri Drottins, eftir þeim reglum, er Aron forfaðir þeirra hafði sett, samkvæmt því, er Drottinn, Guð Ísraels, hafði boðið honum.

    24:20 En að því er snertir aðra niðja Leví, þá voru af Amramsniðjum Súbael, af Súbaelsniðjum Jehdeja,

    24:21 af Rehabja, af Rehabjaniðjum Jissía höfðingi,

    24:22 af Jíseharítum Selómót, af Selómótsniðjum Jahat,

    24:23 en af niðjum Hebrons: Jería höfðingi, annar Amarja, þriðji Jehasíel, fjórði Jekameam.

    24:24 Niðjar Ússíels voru: Míka, af niðjum Míka var Samír.

    24:25 Bróðir Míka var Jissía, af niðjum Jissía var Sakaría.

    24:26 Niðjar Merarí voru Mahlí og Músí og niðjar Jaasía, sonar hans.

    24:27 Niðjar Merarí frá Jaasía syni hans voru: Sóham, Sakkúr og Íbrí.

    24:28 Frá Mahlí var Eleasar kominn. Hann átti eigi sonu.

    24:29 Frá Kís: Synir Kís: Jerahmeel.

    24:30 Niðjar Músí voru: Mahlí, Eder og Jerímót. Þessir voru niðjar levíta eftir ættum þeirra.

    24:31 Þeir vörpuðu og hlutkesti, eins og frændur þeirra, Aronsniðjar, í viðurvist Davíðs konungs og Sadóks og Ahímeleks og ætthöfðingja prestanna og levítanna, ætthöfðingjarnir eins og yngri frændur þeirra.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine