Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - 1SAMUEL 11

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    11:1 Nahas Ammóníti fór og settist um Jabes í Gíleað. Þá sögðu allir Jabesbúar við Nahas: ,,Gjör þú sáttmála við oss, og munum vér þjóna þér.``

    11:2 Nahas Ammóníti svaraði þeim: ,,Með þeim kostum vil ég gjöra sáttmála við yður, að ég stingi út á yður öllum hægra augað og gjöri öllum Ísrael háðung með því.``

    11:3 Öldungarnir í Jabes sögðu við hann: ,,Gef oss sjö daga frest, og munum vér senda sendiboða um allt Ísraels land, og ef enginn þá hjálpar oss, munum vér gefast upp fyrir þér.``

    11:4 Þegar sendiboðarnir komu til Gíbeu Sáls og báru upp erindi sitt í áheyrn lýðsins, þá hóf allur lýðurinn upp raust sína og grét.

    11:5 Og sjá, þá kom Sál á eftir nautunum utan af akri. Og Sál mælti: ,,Hvað ber til þess, að fólkið er að gráta?`` Og þeir sögðu honum erindi Jabesmanna.

    11:6 Þá kom andi Guðs yfir Sál, er hann heyrði þessi tíðindi, og varð hann reiður mjög.

    11:7 Og hann tók tvo uxa og brytjaði þá og sendi stykkin um allt Ísraels land með sendiboðunum og lét þá orðsending fylgja: ,,Svo skal farið með naut hvers þess manns, er eigi fylgir Sál og Samúel í hernað.`` Þá kom ótti Drottins yfir fólkið, svo að þeir lögðu af stað sem einn maður.

    11:8 Og hann kannaði liðið í Besek, og voru þá Ísraelsmenn þrjú hundruð þúsund og Júdamenn þrjátíu þúsund.

    11:9 Og þeir sögðu við sendiboðana, sem komnir voru: ,,Segið svo mönnunum í Jabes í Gíleað: Á morgun um hádegisbil skal yður koma hjálp.`` Og sendimennirnir komu og sögðu Jabesbúum frá þessu, og urðu þeir glaðir við.

    11:10 Og Jabesbúar sögðu við Nahas: ,,Á morgun munum vér gefast upp fyrir yður. Þá getið þér gjört við oss hvað sem yður gott þykir.``

    11:11 En morguninn eftir skipti Sál liðinu í þrjá flokka, og brutust þeir inn í herbúðirnar um morgunvökuna og felldu Ammóníta fram til hádegis. Og þeir, sem af komust, dreifðust víðsvegar, svo að ekki urðu eftir af þeim tveir saman.

    11:12 Þá sagði fólkið við Samúel: ,,Hverjir voru það, sem sögðu: ,Á Sál að verða konungur yfir oss?` Framseljið þá menn, svo að vér getum drepið þá.``

    11:13 En Sál sagði: ,,Engan mann skal deyða á þessum degi, því að í dag hefir Drottinn veitt Ísrael sigur.``

    11:14 Samúel sagði við lýðinn: ,,Komið, vér skulum fara til Gilgal og endurnýja þar konungdóminn.``

    11:15 Þá fór allur lýðurinn til Gilgal og gjörði Sál þar að konungi frammi fyrir Drottni í Gilgal. Og þeir fórnuðu þar heillafórnum frammi fyrir Drottni, og Sál og allir Ísraelsmenn glöddu sig þar mikillega.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine