Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - 1SAMUEL 19

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    19:1 Sál talaði við Jónatan son sinn og við alla þjóna sína um að drepa Davíð. En Jónatan, sonur Sáls, hafði miklar mætur á Davíð.

    19:2 Fyrir því sagði Jónatan Davíð frá þessu og mælti: ,,Sál faðir minn situr um að drepa þig. Ver því var um þig á morgun snemma og fel þig og ver þú kyrr í því leyni.

    19:3 En ég ætla sjálfur að fara út og nema staðar við hlið föður míns á mörkinni, þar sem þú ert, og ég ætla að tala um þig við föður minn; og ef ég verð nokkurs vísari, mun ég segja þér það.``

    19:4 Jónatan talaði vel um Davíð við Sál föður sinn og sagði við hann: ,,Syndgast þú ekki, konungur, á Davíð þjóni þínum, því að hann hefir ekki syndgað á móti þér og verk hans hafa verið þér mjög gagnleg.

    19:5 Hann lagði líf sitt í hættu og felldi Filistann, og þannig veitti Drottinn öllum Ísrael mikinn sigur. Þú sást það og gladdist. Hvers vegna vilt þú syndgast á saklausu blóði með því að deyða Davíð án saka?``

    19:6 Sál skipaðist við orð Jónatans og sór: ,,Svo sannarlega sem Drottinn lifir, þá skal hann ekki verða drepinn.``

    19:7 Þá kallaði Jónatan á Davíð og tjáði honum öll þessi orð. Síðan leiddi Jónatan Davíð til Sáls, og hann var hjá honum sem áður.

    19:8 Er ófriður hófst að nýju, fór Davíð og barðist við Filista og felldi mikinn fjölda af þeim, svo að þeir flýðu fyrir honum.

    19:9 Þá kom illur andi frá Drottni yfir Sál; en hann sat í húsi sínu og hafði spjót í hendi sér, og Davíð lék hörpuna hendi sinni.

    19:10 Þá reyndi Sál að reka Davíð í gegn með spjótinu upp við vegginn, en hann skaut sér undan Sál, svo að hann rak spjótið inn í vegginn. Og Davíð flýði og komst undan.

    19:11 Hina sömu nótt sendi Sál sendimenn í hús Davíðs til þess að hafa gætur á honum, svo að hann fengi drepið hann um morguninn. En Míkal, kona hans, sagði Davíð frá og mælti: ,,Ef þú forðar ekki lífi þínu í nótt, þá verður þú drepinn á morgun.``

    19:12 Þá lét Míkal Davíð síga niður út um gluggann, og hann fór og flýði og komst undan.

    19:13 Síðan tók Míkal húsgoðið og lagði í rúmið, og hún lagði blæju úr geitarhári yfir höfðalagið og breiddi ábreiðu yfir.

    19:14 Og þegar Sál sendi menn til þess að sækja Davíð, þá sagði hún: ,,Hann er sjúkur.``

    19:15 Þá sendi Sál mennina aftur til að vitja um Davíð og sagði: ,,Færið mér hann í rúminu, til þess að ég geti drepið hann.``

    19:16 En er sendimennirnir komu, sjá, þá lá húsgoðið í rúminu og geitarhársblæjan yfir höfðalaginu.

    19:17 Þá sagði Sál við Míkal: ,,Hví hefir þú svikið mig svo og látið óvin minn í burt fara, svo að hann hefir komist undan?`` Míkal sagði við Sál: ,,Hann sagði við mig: ,Lát mig komast burt, ella mun ég drepa þig!```

    19:18 Davíð flýði og komst undan og kom til Samúels í Rama og sagði honum frá öllu, sem Sál hafði gjört honum. Og hann fór með Samúel og þeir bjuggu í Najót.

    19:19 Nú var Sál sagt svo frá: ,,Sjá, Davíð er í Najót í Rama!``

    19:20 Sendi Sál þá menn til að sækja Davíð. En er þeir sáu hóp spámanna, sem voru í spámannlegum guðmóði, og Samúel standa þar sem foringja þeirra, þá kom Guðs andi yfir sendimenn Sáls, svo að þeir komust einnig í spámannlegan guðmóð.

    19:21 Og menn sögðu Sál frá þessu, og hann sendi aðra menn, en þeir komust einnig í spámannlegan guðmóð. Þá sendi Sál enn menn hið þriðja sinn, en þeir komust einnig í spámannlegan guðmóð.

    19:22 Þá fór hann sjálfur til Rama. Og er hann kom að vatnsþrónni miklu í Sekó, þá spurði hann og mælti: ,,Hvar eru þeir Samúel og Davíð?`` Og menn sögðu: ,,Þeir eru í Najót í Rama.``

    19:23 En er hann fór þaðan til Najót í Rama, þá kom og Guðs andi yfir hann, og var hann stöðugt í spámannlegum guðmóði alla leiðina til Najót í Rama.

    19:24 Þá fór hann einnig af klæðum sínum, og hann var líka í spámannlegum guðmóði frammi fyrir Samúel og lá þar nakinn allan þennan dag og alla nóttina. Fyrir því segja menn: ,,Er og Sál meðal spámannanna?``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine