Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - 1SAMUEL 21

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    21:1 Davíð kom til Nób, til Ahímeleks prests, en Ahímelek gekk skelkaður í móti Davíð og mælti til hans: ,,Hví ert þú einsamall og enginn maður með þér?``

    21:2 Davíð svaraði Ahímelek presti: ,,Konungur fól mér erindi nokkurt og sagði við mig: ,Enginn maður má vita neitt um erindi það, er ég sendi þig í og ég hefi falið þér.` Fyrir því hefi ég stefnt sveinunum á vissan stað.

    21:3 Og ef þú hefir nú fimm brauð hjá þér, þá gef mér þau, eða hvað sem fyrir hendi er.``

    21:4 Prestur svaraði Davíð og sagði: ,,Ég hefi ekkert óheilagt brauð hjá mér, en heilagt brauð er til, _ aðeins að sveinarnir hafi haldið sér frá konum.``

    21:5 Davíð svaraði presti og mælti til hans: ,,Já, vissulega. Kvenna hefir oss verið varnað undanfarið. Þegar ég fór að heiman, voru ker sveinanna heilög. Að vísu er þetta ferðalag óheilagt, en nú verður allt helgað!``

    21:6 Þá gaf prestur honum heilagt brauð, því að þar var ekkert brauð, nema skoðunarbrauðin, sem tekin eru burt frá augliti Drottins, en volg brauð lögð í stað þeirra, þá er þau eru tekin.

    21:7 En þar var þennan dag einn af þjónum Sáls, inni byrgður fyrir augliti Drottins. Hann hét Dóeg og var Edómíti og yfirmaður hirða Sáls.

    21:8 Davíð sagði við Ahímelek: ,,Hefir þú ekki spjót eða sverð hér hjá þér? Því að ég tók hvorki sverð mitt né vopn mín með mér, svo bar bráðan að um konungs erindi.``

    21:9 Þá sagði prestur: ,,Hér er sverð Golíats Filista, sem þú lagðir að velli í Eikidal, sveipað dúk á bak við hökulinn. Ef þú vilt hafa það, þá tak það, því að hér er ekkert annað en það.`` Davíð sagði: ,,Það er sverða best, fá mér það.``

    21:10 Síðan tók Davíð sig upp og flýði þennan sama dag fyrir Sál, og kom til Akís konungs í Gat.

    21:11 Og þjónar Akís sögðu við hann: ,,Er þetta ekki Davíð, konungur landsins? Var það ekki um hann, að sungið var við dansinn: Sál felldi sín þúsund og Davíð sín tíu þúsund?``

    21:12 Davíð festi þessi orð í huga og var mjög hræddur við Akís konung í Gat.

    21:13 Fyrir því gjörði hann sér upp vitfirringu fyrir augum þeirra og lét sem óður maður innan um þá, sló á vængjahurðir hliðsins sem á bumbu og lét slefuna renna ofan í skeggið.

    21:14 Þá sagði Akís við þjóna sína: ,,Þér sjáið að maðurinn er vitstola. Hví komið þér með hann til mín?

    21:15 Hefi ég ekki nóg af vitfirringum, úr því að þér hafið komið með þennan til að ærast frammi fyrir mér? Hvað á hann að gjöra í mitt hús?``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine