Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - 1SAMUEL 8

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    8:1 Er Samúel var orðinn gamall, setti hann sonu sína dómara yfir Ísrael.

    8:2 Frumgetinn sonur hans hét Jóel, en annar sonur hans Abía. Þeir dæmdu í Beerseba.

    8:3 En synir hans fetuðu ekki í fótspor hans, heldur hneigðust þeir til ágirndar og þágu mútur og hölluðu réttinum.

    8:4 Þá söfnuðust allir öldungar Ísraels saman og fóru á fund Samúels í Rama

    8:5 og sögðu við hann: ,,Sjá, þú ert nú orðinn gamall og synir þínir feta ekki í fótspor þín. Set oss því konung til að dæma oss, eins og er hjá öllum öðrum þjóðum.``

    8:6 En Samúel mislíkaði það, að þeir sögðu: ,,Gef oss konung til þess að dæma oss!`` Og Samúel bað til Drottins.

    8:7 Drottinn sagði við Samúel: ,,Lát þú að orðum lýðsins í öllu því, sem þeir biðja þig um, því að þeir hafa ekki hafnað þér, heldur hafa þeir hafnað mér, að ég skuli ekki lengur vera konungur yfir þeim.

    8:8 Svona hafa þeir ávallt breytt frá þeim degi, er ég leiddi þá út af Egyptalandi, allt fram á þennan dag. Þeir hafa yfirgefið mig og þjónað öðrum guðum. Öldungis á sama hátt fara þeir nú og með þig.

    8:9 Lát því nú að orðum þeirra. Þó skalt þú vara þá alvarlega við, og segja þeim háttu konungsins, sem ríkja á yfir þeim.``

    8:10 Þá sagði Samúel lýðnum, sem heimti af honum konung, öll orð Drottins

    8:11 og mælti: ,,Þessi mun verða háttur konungsins, sem yfir yður á að ríkja: Sonu yðar mun hann taka og setja þá við vagn sinn og á hesta sína, og þeir munu hlaupa fyrir vagni hans,

    8:12 og hann mun skipa þá höfuðsmenn yfir þúsund og höfuðsmenn yfir fimmtíu, og setja þá til að plægja akurland sitt og skera upp korn sitt og gjöra hernaðartygi sín og ökutygi.

    8:13 Og dætur yðar mun hann taka og láta þær búa til smyrsl, elda og baka.

    8:14 Og bestu lendur yðar, víngarða og olífugarða mun hann taka og gefa þjónum sínum,

    8:15 og af sáðlöndum yðar og víngörðum mun hann taka tíund og gefa hana geldingum sínum og þjónum sínum.

    8:16 Og þræla yðar og ambáttir og hina bestu uxa yðar og asna yðar mun hann taka og hafa til sinna verka.

    8:17 Af sauðfénaði yðar mun hann taka tíund, en sjálfir munuð þér verða þrælar hans.

    8:18 Þá munuð þér hrópa undan konungi yðar, er þér þá hafið kjörið yður, en þá mun Drottinn ekki svara yður.``

    8:19 En fólkið vildi ekki hlýða fortölum Samúels og sagði: ,,Nei, konungur skal yfir oss vera,

    8:20 svo að vér séum eins og allar aðrar þjóðir, og konungur vor skal dæma oss og vera fyrirliði vor og heyja bardaga vora.``

    8:21 Samúel hlýddi á öll ummæli lýðsins og tjáði þau fyrir Drottni.

    8:22 En Drottinn sagði við Samúel: ,,Lát þú að orðum þeirra og set yfir þá konung.`` Þá sagði Samúel við Ísraelsmenn: ,,Farið burt, hver til síns heimkynnis.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine