Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - 2SAMUEL 1

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    1:1 Eftir dauða Sáls, þá er Davíð var heim kominn og hafði unnið sigur á Amalekítum og hann hafði verið tvo daga um kyrrt í Siklag,

    1:2 þá kom skyndilega þriðja daginn maður úr herbúðum Sáls. Var hann í rifnum klæðum og hafði ausið mold yfir höfuð sér. Og er hann kom til Davíðs, féll hann til jarðar og laut honum.

    1:3 Og Davíð sagði við hann: ,,Hvaðan kemur þú?`` Hann svaraði honum: ,,Ég komst undan úr herbúðum Ísraels.``

    1:4 Davíð sagði við hann: ,,Hvernig hefir gengið? Seg mér það.`` Hann svaraði: ,,Liðið er flúið úr orustunni, og margir úr liðinu eru líka fallnir og dauðir. Líka eru þeir Sál og Jónatan sonur hans dauðir.``

    1:5 Þá sagði Davíð við manninn, sem flutti honum tíðindin: ,,Hvernig veistu það, að þeir Sál og Jónatan sonur hans eru dauðir?``

    1:6 Þá svaraði maðurinn, sem flutti honum tíðindin: ,,Alveg af tilviljun kom ég upp á Gilbóafjall. Þar hitti ég Sál. Studdist hann við spjót sitt, en vagnar og riddarar voru á hælum honum.

    1:7 Hann sneri sér þá við, og er hann sá mig, kallaði hann á mig, og ég svaraði: ,Hér er ég.`

    1:8 Og hann sagði við mig: ,Hver ert þú?` Ég svaraði: ,Ég er Amalekíti.`

    1:9 Þá sagði hann við mig: ,Kom þú hingað til mín og deyð þú mig, því að mig sundlar, og þó er ég enn með fullu fjöri.`

    1:10 Þá gekk ég til hans og vann á honum, því að ég vissi að hann gat ekki lifað eftir ófarir sínar. Tók ég kórónuna af höfði honum og hringinn af armlegg hans og færi ég þér nú, herra minn!``

    1:11 Þá þreif Davíð í klæði sín og reif þau sundur. Svo gjörðu og allir menn, þeir er með honum voru.

    1:12 Og þeir syrgðu og grétu og föstuðu til kvelds sakir Sáls og Jónatans sonar hans og sakir lýðs Drottins og húss Ísraels, af því að þeir voru fallnir fyrir sverði.

    1:13 Þá sagði Davíð við manninn, sem flutti honum tíðindin: ,,Hvaðan ert þú?`` Hann svaraði: ,,Ég er sonur hjábýlings nokkurs, sem er Amalekíti.``

    1:14 Þá sagði Davíð við hann: ,,Hvernig dirfðist þú að hefja hönd til þess að drepa Drottins smurða?``

    1:15 Og Davíð kallaði á einn af sveinunum og mælti: ,,Kom þú hingað og drep hann.`` Og hann hjó hann banahögg.

    1:16 En Davíð mælti til hans: ,,Blóð þitt komi yfir höfuð þér! því að þú hefir sjálfur kveðið upp dóm yfir þér, er þú sagðir: ,Ég hefi deytt Drottins smurða.```

    1:17 Davíð orti þetta sorgarkvæði eftir þá Sál og Jónatan son hans,

    1:18 og hann bauð að kenna Júda sonum Kvæðið um bogann. Sjá, það er ritað í Bók hinna réttlátu:

    1:19 Prýðin þín, Ísrael, liggur vegin á fjöllum þínum. En að hetjurnar skuli vera fallnar!

    1:20 Segið ekki frá því í Gat, kunngjörið það eigi á Askalon-strætum, svo að dætur Filista fagni eigi og dætur óumskorinna hlakki eigi.

    1:21 Þér Gilbóafjöll, eigi drjúpi dögg né regn á yður, þér svikalönd, því að þar var snarað burt skildi kappanna, skildi Sáls, sem eigi verður framar olíu smurður.

    1:22 Frá blóði hinna vegnu, frá feiti kappanna hörfaði bogi Jónatans ekki aftur, og eigi hvarf sverð Sáls heim við svo búið.

    1:23 Sál og Jónatan, ástúðugir og ljúfir í lífinu, skildu eigi heldur í dauðanum. Þeir voru örnum léttfærari, ljónum sterkari.

    1:24 Ísraels dætur, grátið Sál! Hann skrýddi yður skarlati yndislega, hann festi gullskart á klæðnað yðar.

    1:25 En að hetjurnar skyldu falla í bardaganum og Jónatan liggja veginn á hæðum þínum!

    1:26 Sárt trega ég þig, bróðir minn Jónatan, mjög varstu mér hugljúfur! Ást þín var mér undursamlegri en ástir kvenna.

    1:27 En að hetjurnar skuli vera fallnar og hervopnin glötuð!

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine