Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - ACTS 16

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    16:1 Hann kom til Derbe og Lýstru. Þar var lærisveinn nokkur, Tímóteus að nafni, sonur trúaðrar konu af Gyðinga ætt, en faðir hans var grískur.

    16:2 Bræðurnir í Lýstru og Íkóníum báru honum gott orð.

    16:3 Páll vildi hafa hann með sér og umskar hann sökum Gyðinga, er voru í þeim byggðum, því að allir vissu þeir, að faðir hans var grískur.

    16:4 Þeir fóru nú um borgirnar, fluttu mönnum þær ályktanir, sem postularnir og öldungarnir í Jerúsalem höfðu samþykkt, og buðu að varðveita þær.

    16:5 En söfnuðirnir styrktust í trúnni og urðu fjölmennari dag frá degi.

    16:6 Þeir fóru um Frýgíu og Galataland, því heilagur andi varnaði þeim að boða orðið í Asíu.

    16:7 Og sem þeir voru komnir að Mýsíu, reyndu þeir að fara til Biþýníu, en andi Jesú leyfði það eigi.

    16:8 Þeir fóru þá um Mýsíu og komu niður til Tróas.

    16:9 Um nóttina birtist Páli sýn: Maður nokkur makedónskur stóð hjá honum og bað hann: ,,Kom yfir til Makedóníu og hjálpa oss!``

    16:10 En jafnskjótt og hann hafði séð þessa sýn, leituðum vér færis að komast til Makedóníu, þar sem vér skildum, að Guð hafði kallað oss til þess að flytja þeim fagnaðarerindið.

    16:11 Nú lögðum vér út frá Tróas og sigldum beint til Samóþrake, en næsta dag til Neapólis

    16:12 og þaðan til Filippí. Hún er helsta borg í þessum hluta Makedóníu, rómversk nýlenda. Í þeirri borg dvöldumst vér nokkra daga.

    16:13 Hvíldardaginn gengum vér út fyrir hliðið að á einni, en þar hugðum vér vera bænastað. Settumst vér niður og töluðum við konurnar, sem voru þar saman komnar.

    16:14 Kona nokkur guðrækin úr Þýatíruborg, Lýdía að nafni, er verslaði með purpura, hlýddi á. Opnaði Drottinn hjarta hennar, og hún tók við því, sem Páll sagði.

    16:15 Hún var skírð og heimili hennar og hún bað oss: ,,Gangið inn í hús mitt og dveljist þar, fyrst þér teljið mig trúa á Drottin.`` Þessu fylgdi hún fast fram.

    16:16 Eitt sinn, er vér gengum til bænastaðarins, mætti oss ambátt nokkur, sem hafði spásagnaranda og aflaði húsbændum sínum mikils gróða með því að spá.

    16:17 Hún elti Pál og oss og hrópaði: ,,Menn þessir eru þjónar Guðs hins hæsta, og boða þeir yður veg til hjálpræðis!``

    16:18 Þetta gjörði hún dögum saman. Páli féll það illa. Loks sneri hann sér við og sagði við andann: ,,Ég býð þér í nafni Jesú Krists að fara út af henni.`` Og hann fór út á samri stundu.

    16:19 Nú sem húsbændur hennar sáu, að þar fór ábatavon þeirra, gripu þeir Pál og Sílas og drógu þá á torgið fyrir valdsmennina.

    16:20 Þeir færðu þá til höfuðsmannanna og sögðu: ,,Menn þessir gjöra mestu óspektir í borg vorri. Þeir eru Gyðingar

    16:21 og boða siði, sem oss, rómverskum mönnum, leyfist hvorki að þýðast né fylgja.``

    16:22 Múgurinn réðst og gegn þeim, og höfuðsmennirnir létu fletta þá klæðum og skipuðu að húðstrýkja þá.

    16:23 Og er þeir höfðu lostið þá mörg högg, vörpuðu þeir þeim í fangelsi og buðu fangaverðinum að gæta þeirra vandlega.

    16:24 Þegar hann hafði fengið slíka skipun, varpaði hann þeim í innsta fangelsið og felldi stokk á fætur þeim.

    16:25 Um miðnætti báðust þeir Páll og Sílas fyrir og lofsungu Guði, en bandingjarnir hlustuðu á þá.

    16:26 Þá varð skyndilega landskjálfti mikill, svo að grunnur fangelsisins riðaði. Jafnskjótt opnuðust allar dyr, og fjötrarnir féllu af öllum.

    16:27 Fangavörðurinn vaknaði við, og er hann sá fangelsisdyrnar opnar, dró hann sverð sitt og vildi fyrirfara sér, þar eð hann hugði fangana flúna.

    16:28 Þá kallaði Páll hárri raustu: ,,Gjör þú sjálfum þér ekkert mein, vér erum hér allir!``

    16:29 En hann bað um ljós, stökk inn og féll óttasleginn til fóta Páli og Sílasi.

    16:30 Síðan leiddi hann þá út og sagði: ,,Herrar mínir, hvað á ég að gjöra til að verða hólpinn?``

    16:31 En þeir sögðu: ,,Trú þú á Drottin Jesú, og þú munt verða hólpinn og heimili þitt.``

    16:32 Og þeir fluttu honum orð Drottins og öllum á heimili hans.

    16:33 Á þessari sömu næturstund tók hann þá með sér og laugaði meiðsli þeirra eftir höggin, og var hann þegar skírður og allt hans fólk.

    16:34 Síðan fór hann með þá upp í hús sitt, bar þeim mat, og var hann og allt heimafólk hans fagnandi yfir því að hafa tekið trú á Guð.

    16:35 Þegar dagur rann, sendu höfuðsmennirnir vandsveina og sögðu: ,,Lát þú menn þessa lausa.``

    16:36 Fangavörðurinn flutti Páli þessi orð: ,,Höfuðsmennirnir hafa sent boð um, að þið skuluð látnir lausir. Gangið nú út og farið í friði.``

    16:37 En Páll sagði við þá: ,,Þeir hafa opinberlega látið húðstrýkja okkur, rómverska menn, án dóms og laga og varpa í fangelsi, og nú ætla þeir leynilega að hleypa okkur út. Ég held nú síður. Þeir skulu koma sjálfir og leiða okkur út.``

    16:38 Vandsveinarnir fluttu höfuðsmönnunum þessi orð. En þeir urðu hræddir, er þeir heyrðu, að þeir væru rómverskir,

    16:39 og komu og friðmæltust við þá, leiddu þá út og báðu þá að fara burt úr borginni.

    16:40 Þegar þeir voru komnir út úr fangelsinu, fóru þeir heim til Lýdíu, fundu bræðurna og hughreystu þá. Síðan héldu þeir af stað.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine