Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - ACTS 5

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    5:1 En maður nokkur, Ananías að nafni, seldi ásamt Saffíru, konu sinni, eign

    5:2 og dró undan af verðinu með vitund konu sinnar, en kom með nokkuð af því og lagði fyrir fætur postulanna.

    5:3 En Pétur mælti: ,,Ananías, hví fyllti Satan hjarta þitt, svo að þú laugst að heilögum anda og dróst undan af verði lands þíns?

    5:4 Var landið ekki þitt, meðan þú áttir það, og var ekki andvirði þess á þínu valdi? Hvernig gastu þá látið þér hugkvæmast slíkt tiltæki? Ekki hefur þú logið að mönnum, heldur Guði.``

    5:5 Þegar Ananías heyrði þetta, féll hann niður og gaf upp öndina, og miklum ótta sló á alla þá, sem heyrðu.

    5:6 En ungu mennirnir stóðu upp og bjuggu um hann, báru hann út og jörðuðu.

    5:7 Að liðnum svo sem þrem stundum kom kona hans inn og vissi ekki, hvað við hafði borið.

    5:8 Þá spurði Pétur hana: ,,Seg mér, selduð þið jörðina fyrir þetta verð?`` En hún svaraði: ,,Já, fyrir þetta verð.``

    5:9 Pétur mælti þá við hana: ,,Hvernig gátuð þið orðið samþykk um að freista anda Drottins? Þú heyrir við dyrnar fótatak þeirra, sem greftruðu mann þinn. Þeir munu bera þig út.``

    5:10 Jafnskjótt féll hún niður við fætur hans og gaf upp öndina. Ungu mennirnir komu inn, fundu hana dauða, báru út og jörðuðu hjá manni hennar.

    5:11 Og miklum ótta sló á allan söfnuðinn og alla, sem heyrðu þetta.

    5:12 Fyrir hendur postulanna gjörðust mörg tákn og undur meðal lýðsins. Allur söfnuðurinn kom einum huga saman í Súlnagöngum Salómons.

    5:13 Engir aðrir þorðu að samlagast þeim, en fólk virti þá mikils.

    5:14 Og enn fleiri urðu þeir, sem trúðu á Drottin, fjöldi karla og kvenna.

    5:15 Menn báru jafnvel sjúka út á strætin og lögðu þá á rekkjur og börur, ef verða mætti, er Pétur gengi hjá, að alltént skugginn af honum félli á einhvern þeirra.

    5:16 Einnig kom fjöldi fólks frá borgunum umhverfis Jerúsalem og flutti með sér sjúka menn og þjáða af óhreinum öndum. Þeir læknuðust allir.

    5:17 Þá hófst æðsti presturinn handa og allur sá flokkur, sem fylgdi honum, saddúkearnir. Fullir ofsa

    5:18 létu þeir taka postulana höndum og varpa í fangelsið.

    5:19 En engill Drottins opnaði um nóttina dyr fangelsisins, leiddi þá út og sagði:

    5:20 ,,Farið og gangið fram í helgidóminum og talið til lýðsins öll þessi lífsins orð.``

    5:21 Þeir hlýddu og fóru í dögun í helgidóminn og kenndu. Nú kom æðsti presturinn og hans menn, kölluðu saman ráðið, alla öldunga Ísraels, og sendu þjóna til fangelsisins að sækja postulana.

    5:22 Þeir komu í fangelsið og fundu þá ekki, sneru aftur og skýrðu svo frá:

    5:23 ,,Fangelsið fundum vér að öllu tryggilega læst, og varðmennirnir stóðu fyrir dyrum, en er vér lukum upp, fundum vér engan inni.``

    5:24 Þegar varðforingi helgidómsins og æðstu prestarnir heyrðu þetta, urðu þeir ráðþrota og spurðu, hvar þetta ætlaði að lenda.

    5:25 En þá kom maður og bar þeim þessa frétt: ,,Mennirnir, sem þér settuð í fangelsið, standa í helgidóminum og eru að kenna lýðnum.``

    5:26 Þá fór varðforinginn með þjónunum og sótti þá. Beittu þeir samt ekki ofbeldi, því þeir óttuðust, að fólkið grýtti þá.

    5:27 Þegar þeir voru komnir með þá, leiddu þeir þá fram fyrir ráðið, og æðsti presturinn tók að yfirheyra þá og sagði:

    5:28 ,,Stranglega bönnuðum vér yður að kenna í þessu nafni, og nú hafið þér fyllt Jerúsalem með kenningu yðar og viljið steypa yfir oss blóði þessa manns.``

    5:29 En Pétur og hinir postularnir svöruðu: ,,Framar ber að hlýða Guði en mönnum.

    5:30 Guð feðra vorra hefur upp vakið Jesú, sem þér hengduð á tré og tókuð af lífi.

    5:31 Hann hefur Guð hafið sér til hægri handar og gjört hann að foringja og frelsara til að veita Ísrael afturhvarf og fyrirgefningu synda sinna.

    5:32 Vér erum vottar alls þessa, og heilagur andi, sem Guð hefur gefið þeim, er honum hlýða.``

    5:33 Þegar þeir heyrðu þetta, fylltust þeir bræði og hugðust deyða þá.

    5:34 Reis þá upp í ráðinu farísei nokkur, Gamalíel að nafni, kennari í lögmálinu, virtur af öllum lýð. Hann bauð, að mennirnir væru látnir fara út stundarkorn.

    5:35 Síðan sagði hann: ,,Ísraelsmenn, athugið vel, hvað þér gjörið við þessa menn.

    5:36 Ekki alls fyrir löngu kom Þevdas fram og þóttist vera eitthvað. Hann aðhylltust um fjögur hundruð manns. En hann var drepinn, og allir þeir, sem fylgdu honum, tvístruðust og hurfu.

    5:37 Eftir hann kom fram Júdas frá Galíleu á dögum skrásetningarinnar og sneri fólki til fylgis við sig. Hann fórst líka, og þeir dreifðust allir, sem fylgdu honum.

    5:38 Og nú segi ég yður: Látið þessa menn eiga sig og sleppið þeim. Sé þetta ráð eða verk frá mönnum, verður það að engu,

    5:39 en sé það frá Guði, þá megnið þér ekki að yfirbuga þá. Eigi má það verða, að þér berjist við sjálfan Guð.``

    5:40 Þeir féllust á mál hans, kölluðu á postulana, húðstrýktu þá, fyrirbuðu þeim að tala í Jesú nafni og létu þá síðan lausa.

    5:41 Þeir fóru burt frá ráðinu, glaðir yfir því, að þeir höfðu verið virtir þess að þola háðung vegna nafns Jesú.

    5:42 Létu þeir eigi af að kenna dag hvern í helgidóminum og í heimahúsum og boða fagnaðarerindið um, að Jesús sé Kristur.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine