Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - ACTS 9

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    9:1 En Sál blés enn ógnum og manndrápum gegn lærisveinum Drottins. Gekk hann til æðsta prestsins

    9:2 og beiddist bréfa af honum til samkundanna í Damaskus, að hann mætti flytja í böndum til Jerúsalem þá, er hann kynni að finna og væru þessa vegar, hvort heldur karla eða konur.

    9:3 En þegar hann var á ferð sinni kominn í nánd við Damaskus, leiftraði skyndilega um hann ljós af himni.

    9:4 Hann féll til jarðar og heyrði rödd segja við sig: ,,Sál, Sál, hví ofsækir þú mig?``

    9:5 En hann sagði: ,,Hver ert þú, herra?`` Þá var svarað: ,,Ég er Jesús, sem þú ofsækir.

    9:6 En statt upp og gakk inn í borgina, og þér mun verða sagt, hvað þú átt að gjöra.``

    9:7 Förunautar hans stóðu orðlausir. Þeir heyrðu að vísu raustina, en sáu engan.

    9:8 Sál reis á fætur, en þegar hann lauk upp augunum, sá hann ekkert. Þeir leiddu hann við hönd sér inn í Damaskus.

    9:9 Þrjá daga var hann sjónlaus og át hvorki né drakk.

    9:10 Í Damaskus var lærisveinn nokkur, sem hét Ananías. Við hann sagði Drottinn í sýn: ,,Ananías.`` Hann svaraði: ,,Hér er ég, Drottinn.``

    9:11 Drottinn sagði við hann: ,,Far þegar í stræti það, sem kallað er Hið beina, og í húsi Júdasar skaltu spyrja eftir manni frá Tarsus, er heitir Sál. Hann er að biðja.

    9:12 Og hann hefur í sýn séð mann, Ananías að nafni, koma inn og leggja hendur yfir sig, til þess að hann fái aftur sjón.``

    9:13 Ananías svaraði: ,,Drottinn, heyrt hef ég marga segja frá manni þessum, hve mikið illt hann hefur gjört þínum heilögu í Jerúsalem.

    9:14 Og hér fer hann með vald frá æðstu prestunum að færa í bönd alla þá, sem ákalla nafn þitt.``

    9:15 Drottinn sagði við hann: ,,Far þú, því að þennan mann hef ég valið mér að verkfæri til þess að bera nafn mitt fram fyrir heiðingja, konunga og börn Ísraels,

    9:16 og ég mun sýna honum, hversu mikið hann verður að þola vegna nafns míns.``

    9:17 Þá fór Ananías af stað, gekk inn í húsið og lagði hendur yfir hann og mælti: ,,Sál, bróðir, Drottinn hefur sent mig, Jesús, sá er birtist þér á leið þinni hingað. Þú átt að fá aftur sjón þína og fyllast heilögum anda.``

    9:18 Jafnskjótt var sem hreistur félli af augum hans, hann fékk aftur sjónina og lét þegar skírast.

    9:19 Síðan neytti hann matar og styrktist. Sál var nokkra daga hjá lærisveinunum í Damaskus

    9:20 og tók þegar að prédika í samkunduhúsunum, að Jesús væri sonur Guðs.

    9:21 Allir þeir, sem heyrðu það, undruðust stórum og sögðu: ,,Er þetta ekki maðurinn, sem í Jerúsalem hugðist eyða þeim, er ákölluðu þetta nafn? Kom hann ekki hingað til að fara með þá í böndum til æðstu prestanna?``

    9:22 En Sál efldist æ meir og gjörði þá Gyðinga, sem bjuggu í Damaskus, rökþrota, er hann sannaði, að Jesús væri Kristur.

    9:23 Að allmörgum dögum liðnum réðu Gyðingar með sér að taka hann af lífi.

    9:24 En Sál fékk vitneskju um ráðagjörð þeirra. Þeir gættu borgarhliðanna nótt og dag til að ná lífi hans.

    9:25 En lærisveinarnir tóku hann um nótt og komu honum út fyrir borgarmúrinn með því að láta hann síga ofan í körfu.

    9:26 Þá er hann kom til Jerúsalem, reyndi hann að samlaga sig lærisveinunum, en þeir hræddust hann allir og trúðu ekki, að hann væri lærisveinn.

    9:27 En Barnabas tók hann að sér, fór með hann til postulanna og skýrði þeim frá, hvernig hann hefði séð Drottin á veginum, hvað hann hefði sagt við hann og hversu einarðlega hann hefði talað í Jesú nafni í Damaskus.

    9:28 Dvaldist hann nú með þeim í Jerúsalem, gekk þar út og inn og talaði einarðlega í nafni Drottins.

    9:29 Hann talaði og háði kappræður við grískumælandi Gyðinga, en þeir leituðust við að ráða hann af dögum.

    9:30 Þegar bræðurnir urðu þessa vísir, fóru þeir með hann til Sesareu og sendu hann áfram til Tarsus.

    9:31 Nú hafði kirkjan frið um alla Júdeu, Galíleu og Samaríu. Hún byggðist upp og gekk fram í ótta Drottins og óx við styrkingu heilags anda.

    9:32 Svo bar við, er Pétur var að ferðast um og vitja allra, að hann kom og til hinna heilögu, sem áttu heima í Lýddu.

    9:33 Þar fann hann mann nokkurn, Eneas að nafni, er í átta ár hafði legið rúmfastur. Hann var lami.

    9:34 Pétur sagði við hann: ,,Eneas, Jesús Kristur læknar þig, statt upp og bú um þig.`` Jafnskjótt stóð hann upp.

    9:35 Allir þeir, sem áttu heima í Lýddu og Saron, sáu hann, og þeir sneru sér til Drottins.

    9:36 Í Joppe var lærisveinn, kona að nafni Tabíþa, á grísku Dorkas. Hún var mjög góðgerðasöm og örlát við snauða.

    9:37 En á þeim dögum tók hún sótt og andaðist. Var hún lauguð og lögð í loftstofu.

    9:38 Nú er Lýdda í grennd við Joppe, og höfðu lærisveinarnir heyrt, að Pétur væri þar. Sendu þeir tvo menn til hans og báðu hann: ,,Kom án tafar til vor.``

    9:39 Pétur brá við og fór með þeim. Þegar þangað kom, fóru þeir með hann upp í loftstofuna, og allar ekkjurnar komu til hans grátandi og sýndu honum kyrtla og yfirhafnir, sem Dorkas hafði gjört, meðan hún var hjá þeim.

    9:40 En Pétur lét alla fara út, féll á kné og baðst fyrir. Síðan sneri hann sér að líkinu og sagði: ,,Tabíþa, rís upp.`` En hún opnaði augun, sá Pétur og settist upp.

    9:41 Og hann rétti henni höndina og reisti hana á fætur, kallaði síðan á hina heilögu og ekkjurnar og leiddi hana fram lifandi.

    9:42 Þetta varð hljóðbært um alla Joppe, og margir tóku trú á Drottin.

    9:43 Var Pétur um kyrrt í Joppe allmarga daga hjá Símoni nokkrum sútara.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine