Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - AMOS 2

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    2:1 Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Móabíta vil ég eigi snúa aftur með það _ af því að þeir brenndu bein Edómítakonungs að kalki,

    2:2 vil ég senda eld gegn Móab, og hann mun eyða höllum Keríjótborgar. Og Móabítar munu deyja í vopnagný, við heróp og lúðurhljóm.

    2:3 Ég vil afmá stjórnandann meðal þeirra og deyða alla höfðingja þeirra með honum, _ segir Drottinn.

    2:4 Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Júdamanna vil ég eigi snúa aftur með það _ af því að þeir hafa hafnað lögmáli Drottins og eigi haldið boðorð hans, heldur látið falsgoð sín villa sig, þau er feður þeirra eltu,

    2:5 vil ég senda eld gegn Júda, og hann mun eyða höllum Jerúsalem.

    2:6 Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Ísraelsmanna vil ég eigi snúa aftur með það _ af því að þeir selja saklausan manninn fyrir silfur og fátæklinginn fyrir eina ilskó,

    2:7 þeir fíkjast í moldarkornin á höfði hinna snauðu og hrinda aumingjunum í ógæfu, faðir og sonur ganga til kvensniftar til þess að vanhelga mitt heilaga nafn,

    2:8 þeir liggja á veðteknum klæðum hjá hverju altari og drekka sektarvín í húsi Guðs síns.

    2:9 Og þó ruddi ég Amorítum úr vegi þeirra, er svo voru háir sem sedrustré og svo sterkir sem eikitré. Ég eyddi ávöxtum þeirra að ofanverðu og rótum þeirra að neðan.

    2:10 Ég flutti yður út af Egyptalandi og leiddi yður í fjörutíu ár í eyðimörkinni, til þess að þér mættuð eignast land Amoríta.

    2:11 Ég uppvakti spámenn meðal sona yðar og Nasírea meðal æskumanna yðar. Er þetta eigi svo, Ísraelsmenn? _ segir Drottinn.

    2:12 En þér gáfuð Nasíreunum vín að drekka og bönnuðuð spámönnunum að spá!

    2:13 Sjá, ég vil láta jörðina undir yður riða, eins og vagn riðar, sem hlaðinn er kornkerfum.

    2:14 Þá skal hinn frái ekki hafa neitt hæli að flýja í og hinn sterki ekki fá neytt krafta sinna og kappinn skal ekki forða mega fjörvi sínu.

    2:15 Bogmaðurinn skal eigi fá staðist, hinn frái eigi fá komist undan og riddarinn ekki forða mega fjörvi sínu.

    2:16 Og hinn hugdjarfasti meðal kappanna _ nakinn skal hann á þeim degi í burt flýja, _ segir Drottinn.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine