Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - AMOS 5

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    5:1 Heyrið þetta orð, sem ég mæli yfir yður sem harmkvæði, þér Ísraelsmenn!

    5:2 Fallin er mærin Ísrael, rís aldrei aftur, flöt liggur hún á sínu eigin landi, enginn reisir hana.

    5:3 Svo segir Drottinn Guð: Sú borg, sem sendir frá sér þúsund manns, mun hafa eftir hundrað, og sú sem sendir frá sér hundrað, mun hafa eftir tíu í Ísraelsríki.

    5:4 Svo segir Drottinn við Ísraels hús: Leitið mín, til þess að þér megið lífi halda.

    5:5 En leitið ekki til Betel! Og til Gilgal skuluð þér ekki fara og yfir til Beerseba skuluð þér ekki halda. Því að Gilgal skal fara í útlegð og Betel verða að auðn.

    5:6 Leitið Drottins, til þess að þér megið lífi halda. Ella mun hann ráðast á Jósefs hús eins og eldur og eyða, án þess að nokkur sé í Betel, sem slökkvi.

    5:7 Þeir sem umhverfa réttinum í malurt og varpa réttlætinu til jarðar,

    5:8 Hann, sem skóp sjöstjörnuna og Óríon, sem gjörir niðmyrkrið að björtum morgni og dag að dimmri nótt, sem kallaði á vötn sjávarins og jós þeim yfir jörðina, Drottinn er nafn hans.

    5:9 Hann lætur eyðing leiftra yfir hina sterku, og eyðing kemur yfir vígi.

    5:10 þeir hata þann, sem ver réttinn í borgarhliðinu, og hafa viðbjóð á þeim, sem talar satt.

    5:11 Sökum þess að þér fótum troðið hina snauðu og takið af þeim gjafir í korni, þá skuluð þér að vísu byggja hús úr höggnu grjóti, en eigi búa í þeim, skuluð planta yndislega víngarða, en ekki drekka vínið, sem úr þeim kemur.

    5:12 Því að ég veit, að misgjörðir yðar eru margar og syndir yðar miklar. Þér þröngvið hinum saklausa, þiggið mútur og hallið rétti hinna fátæku í borgarhliðinu.

    5:13 Fyrir því þegir hygginn maður á slíkri tíð, því að það er vond tíð.

    5:14 Leitið hins góða, en ekki hins illa, til þess að þér megið lífi halda, og þá mun Drottinn, Guð allsherjar vera með yður, eins og þér hafið sagt.

    5:15 Hatið hið illa og elskið hið góða, eflið réttinn í borgarhliðinu. Má vera að Drottinn, Guð allsherjar miskunni sig þá yfir leifar Jósefs.

    5:16 Fyrir því segir Drottinn, Guð allsherjar, Drottinn: Á öllum torgum skal vera harmakvein, og á öllum strætum skal sagt verða: ,,Vei, vei!`` Og akurmennirnir skulu kalla þá er kveina kunna, til sorgarathafnar og harmakveins,

    5:17 og í öllum víngörðum skal vera harmakvein, þá er ég fer um land þitt, _ segir Drottinn.

    5:18 Vei þeim, sem óska þess, að dagur Drottins komi. Hvað skal yður dagur Drottins? Hann er dimmur, en ekki bjartur _

    5:19 eins og ef maður flýði undan ljóni, en yrði á vegi fyrir bjarndýri, kæmist þó heim og styddi hendi sinni við húsvegginn, en þá biti höggormur hann.

    5:20 Já, dimmur er dagur Drottins, en ekki bjartur, myrkur og án nokkurrar ljósglætu.

    5:21 Ég hata, ég fyrirlít hátíðir yðar og hefi enga unun af hátíðasamkomum yðar.

    5:22 Þótt þér færið mér brennifórnir, þá hefi ég enga velþóknun á fórnargjöfum yðar, ég lít ekki við heillafórnum af alikálfum yðar.

    5:23 Burt frá mér með glamur ljóða þinna, ég vil ekki heyra hljóm harpna þinna.

    5:24 Lát heldur réttinn vella fram sem vatn og réttlætið sem sírennandi læk.

    5:25 Færðuð þér mér, Ísraels hús, sláturfórnir og matfórnir í fjörutíu ár á eyðimörkinni?

    5:26 En þér skuluð fá að bera Sikkút, konung yðar, og stjörnu Guðs yðar, Kevan, guðalíkneski yðar, er þér hafið gjört yður,

    5:27 og ég vil herleiða yður austur fyrir Damaskus, _ segir Drottinn. Guð allsherjar er nafn hans.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine