Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - ECCLESIASTES 10

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    10:1 Dauðar flugur valda ódaun með því að hleypa ólgu í olíu smyrslarans. Ofurlítill aulaskapur er þyngri á metunum heldur en viska, heldur en sómi.

    10:2 Hjarta viturs manns stefnir á heillabraut, en hjarta heimskingjans leiðir hann í ógæfu.

    10:3 Og þegar aulinn er kominn út á veginn, brestur og á vitið, og hann segir við hvern mann, að hann sé auli.

    10:4 Ef reiði drottnarans rís í gegn þér, þá yfirgef ekki stöðu þína, því að stilling afstýrir stórum glappaskotum.

    10:5 Til er böl, sem ég hefi séð undir sólinni, nokkurs konar yfirsjón af hálfu valdhafans:

    10:6 Heimskan er sett í háu stöðurnar, en göfugmennin sitja í niðurlægingu.

    10:7 Ég sá þræla ríðandi hestum og höfðingja fótgangandi eins og þræla.

    10:8 Sá sem grefur gröf, getur fallið í hana, og þann sem rífur niður vegg, getur höggormur bitið.

    10:9 Sá sem sprengir steina, getur meitt sig á þeim, sá sem klýfur við, getur með því stofnað sér í hættu.

    10:10 Ef öxin er orðin sljó og eggin er ekki brýnd, þá verður maðurinn að neyta því meiri orku. Það er ávinningur að undirbúa sérhvað með hagsýni.

    10:11 Ef höggormurinn bítur, af því að særingar hafa verið vanræktar, þá kemur særingamaðurinn að engu liði.

    10:12 Orð af munni viturs manns eru yndisleg, en varir heimskingjans vinna honum tjón.

    10:13 Fyrstu orðin fram úr honum eru heimska, og endir ræðu hans er ill flónska.

    10:14 Heimskinginn talar mörg orð. Og þó veit maðurinn ekki, hvað verða muni. Og hvað verða muni eftir hans dag _ hver segir honum það?

    10:15 Amstur heimskingjans þreytir hann, hann ratar ekki veginn inn í borgina.

    10:16 Vei þér, land, sem hefir dreng að konungi og höfðingjar þínir setjast að áti að morgni dags!

    10:17 Sælt ert þú, land, sem hefir eðalborinn mann að konungi og höfðingjar þínir eta á réttum tíma, sér til styrkingar, en ekki til þess að verða drukknir.

    10:18 Fyrir leti síga bjálkarnir niður, og vegna iðjulausra handa lekur húsið.

    10:19 Til gleðskapar búa menn máltíðir, og vín gjörir lífið skemmtilegt og peningarnir veita allt.

    10:20 Formæl ekki konunginum, jafnvel ekki í huga þínum, og formæl ekki ríkum manni í svefnherbergjum þínum, því að fuglar loftsins kynnu að bera burt hljóðið og hinir vængjuðu að hafa orðin eftir.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine