Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - EPHESIANS 6

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    6:1 Þér börn, hlýðið foreldrum yðar vegna Drottins, því að það er rétt.

    6:2 ,,Heiðra föður þinn og móður,`` _ það er hið fyrsta boðorð með fyrirheiti:

    6:3 ,,til þess að þér vegni vel og þú verðir langlífur á jörðinni.``

    6:4 Og þér feður, reitið ekki börn yðar til reiði, heldur alið þau upp með aga og umvöndun Drottins.

    6:5 Þér þrælar, hlýðið yðar jarðnesku herrum með lotningu og ótta, í einlægni hjartans, eins og það væri Kristur.

    6:6 Ekki með augnaþjónustu, eins og þeir er mönnum vilja þóknast, heldur eins og þjónar Krists, er gjöra vilja Guðs af heilum huga.

    6:7 Veitið þjónustu yðar af fúsu geði, eins og Drottinn ætti í hlut og ekki menn.

    6:8 Þér vitið og sjálfir, að sérhver mun fá aftur af Drottni það góða, sem hann gjörir, hvort sem hann er þræll eða frjáls maður.

    6:9 Og þér, sem eigið þræla, breytið eins við þá. Hættið að ógna þeim. Þér vitið, að þeir eiga í himnunum sama Drottin og þér og hjá honum er ekkert manngreinarálit.

    6:10 Að lokum: Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans.

    6:11 Klæðist alvæpni Guðs, til þess að þér getið staðist vélabrögð djöfulsins.

    6:12 Því að baráttan, sem vér eigum í, er ekki við menn af holdi og blóði, heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum.

    6:13 Takið því alvæpni Guðs, til þess að þér getið veitt mótstöðu á hinum vonda degi og haldið velli, þegar þér hafið sigrað allt.

    6:14 Standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins

    6:15 og skóaðir á fótunum með fúsleik til að flytja fagnaðarboðskap friðarins.

    6:16 Takið umfram allt skjöld trúarinnar, sem þér getið slökkt með öll hin eldlegu skeyti hins vonda.

    6:17 Takið við hjálmi hjálpræðisins og sverði andans, sem er Guðs orð.

    6:18 Gjörið það með bæn og beiðni og biðjið á hverri tíð í anda. Verið því árvakrir og staðfastir í bæn fyrir öllum heilögum.

    6:19 Biðjið fyrir mér, að mér verði gefin orð að mæla, þá er ég lýk upp munni mínum, til þess að ég kunngjöri með djörfung leyndardóm fagnaðarerindisins.

    6:20 Þess boðberi er ég í fjötrum mínum. Biðjið, að ég geti flutt það með djörfung, eins og mér ber að tala.

    6:21 En til þess að þér fáið einnig að vita um hagi mína, hvernig mér líður, þá mun Týkíkus, minn elskaði bróðir og trúi aðstoðarmaður í þjónustu Drottins, skýra yður frá öllu.

    6:22 Ég sendi hann til yðar einkum í því skyni, að þér fáið að vita, hvernig oss líður, og til þess að hann uppörvi yður.

    6:23 Friður sé með bræðrunum og kærleikur, samfara trú frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine