Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - EXODUS 17

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    17:1 Allur söfnuður Ísraelsmanna tók sig nú upp frá Sín-eyðimörk, og fóru þeir í áföngum að boði Drottins og settu herbúðir sínar í Refídím. En þar var ekkert vatn handa fólkinu að drekka.

    17:2 Þá þráttaði fólkið við Móse og sagði: ,,Gef oss vatn að drekka!`` En Móse sagði við þá: ,,Hví þráttið þér við mig? Hví freistið þér Drottins?``

    17:3 Og fólkið þyrsti þar eftir vatni, og fólkið möglaði gegn Móse og sagði: ,,Hví fórstu með oss frá Egyptalandi til þess að láta oss og börn vor og fénað deyja af þorsta?``

    17:4 Þá hrópaði Móse til Drottins og sagði: ,,Hvað skal ég gjöra við þetta fólk? Það vantar lítið á að þeir grýti mig.``

    17:5 En Drottinn sagði við Móse: ,,Gakk þú fram fyrir fólkið og tak með þér nokkra af öldungum Ísraels, og tak í hönd þér staf þinn, er þú laust með ána, og gakk svo af stað.

    17:6 Sjá, ég mun standa frammi fyrir þér þar á klettinum á Hóreb, en þú skalt ljósta á klettinn, og mun þá vatn spretta af honum, svo að fólkið megi drekka.``

    17:7 Og Móse gjörði svo í augsýn öldunga Ísraels. Og hann kallaði þennan stað Massa og Meríba sökum þráttanar Ísraelsmanna, og fyrir því að þeir höfðu freistað Drottins og sagt: ,,Hvort mun Drottinn vera meðal vor eður ekki?``

    17:8 Þá komu Amalekítar og áttu orustu við Ísraelsmenn í Refídím.

    17:9 Þá sagði Móse við Jósúa: ,,Vel oss menn og far út og berst við Amalekíta. Á morgun mun ég standa efst uppi á hæðinni og hafa staf Guðs í hendi mér.``

    17:10 Jósúa gjörði sem Móse hafði sagt honum og lagði til orustu við Amalekíta, en þeir Móse, Aron og Húr gengu efst upp á hæðina.

    17:11 Þá gjörðist það, að alla þá stund, er Móse hélt uppi hendi sinni, veitti Ísraelsmönnum betur, en þegar er hann lét síga höndina, veitti Amalekítum betur.

    17:12 En með því að Móse urðu þungar hendurnar, tóku þeir stein og létu undir hann, og settist hann á steininn, en þeir Aron og Húr studdu hendur hans, sinn á hvora hlið, og héldust þannig hendur hans stöðugar allt til sólarlags.

    17:13 En Jósúa lagði Amalekíta og lið þeirra að velli með sverðseggjum.

    17:14 Þá sagði Drottinn við Móse: ,,Rita þú þetta í bók til minningar og gjör Jósúa það hugfast, því að ég vil vissulega afmá nafn Amalekíta af jörðinni.``

    17:15 Og Móse reisti þar altari og nefndi það ,,Jahve-nisí``.

    17:16 Og hann sagði: ,,Með upplyftri hendi að hásæti Drottins sver ég: ,Ófrið mun Drottinn heyja við Amalekíta frá kyni til kyns.```

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine