Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - EXODUS 40

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    40:1 Drottinn talaði við Móse og sagði:

    40:2 ,,Á fyrsta degi hins fyrsta mánaðar skalt þú reisa búð samfundatjaldsins.

    40:3 Þar skalt þú setja sáttmálsörkina og byrgja fyrir örkina með fortjaldinu.

    40:4 Og þú skalt bera borðið þangað og raða því, sem á því skal vera. Síðan skalt þú bera þangað ljósastikuna og setja upp lampa hennar.

    40:5 Og þú skalt setja hið gullna reykelsisaltari fyrir framan sáttmálsörkina og hengja dúkbreiðuna fyrir búðardyrnar.

    40:6 Og þú skalt setja brennifórnaraltarið fyrir framan dyr samfundatjalds-búðarinnar.

    40:7 Og kerið skalt þú setja milli samfundatjaldsins og altarisins og láta vatn í það.

    40:8 Síðan skalt þú reisa forgarðinn umhverfis og hengja dúkbreiðu fyrir forgarðshliðið.

    40:9 Þá skalt þú taka smurningarolíuna og smyrja búðina og allt, sem í henni er, og vígja hana með öllum áhöldum hennar, svo að hún sé heilög.

    40:10 Og þú skalt smyrja brennifórnaraltarið og öll áhöld þess, og þú skalt vígja altarið, og skal altarið þá vera háheilagt.

    40:11 Og þú skalt smyrja kerið og stétt þess og vígja það.

    40:12 Þá skalt þú leiða Aron og sonu hans að dyrum samfundatjaldsins og þvo þá úr vatni.

    40:13 Og þú skalt færa Aron í hin helgu klæði, smyrja hann og vígja, að hann þjóni mér í prestsembætti.

    40:14 Þú skalt og leiða fram sonu hans og færa þá í kyrtlana,

    40:15 og þú skalt smyrja þá, eins og þú smurðir föður þeirra, að þeir þjóni mér í prestsembætti, og skal smurning þeirra veita þeim ævinlegan prestdóm frá kyni til kyns.``

    40:16 Og Móse gjörði svo. Eins og Drottinn hafði boðið honum, svo gjörði hann í alla staði.

    40:17 Búðin var reist í fyrsta mánuði hins annars árs, fyrsta dag mánaðarins.

    40:18 Reisti Móse búðina, lagði undirstöðurnar, sló upp þiljunum, setti í slárnar og reisti upp stólpana.

    40:19 Og hann þandi tjaldvoðina yfir búðina og lagði tjaldþökin þar yfir, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

    40:20 Hann tók sáttmálið og lagði það í örkina, setti stengurnar í örkina og lét arkarlokið yfir örkina.

    40:21 Og hann flutti örkina inn í búðina, setti upp fortjaldsdúkbreiðuna og byrgði fyrir sáttmálsörkina, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

    40:22 Hann setti borðið inn í samfundatjaldið, við norðurhlið búðarinnar, fyrir utan fortjaldið,

    40:23 og hann raðaði á það brauðunum frammi fyrir Drottni, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

    40:24 Hann setti upp ljósastikuna í samfundatjaldinu gegnt borðinu við suðurhlið búðarinnar.

    40:25 Og hann setti upp lampana frammi fyrir Drottni, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

    40:26 Hann setti upp gullaltarið inni í samfundatjaldinu fyrir framan fortjaldið,

    40:27 og brenndi á því ilmreykelsi, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

    40:28 Síðan hengdi hann dúkbreiðuna fyrir dyr búðarinnar,

    40:29 setti brennifórnaraltarið við dyr samfundatjalds-búðarinnar og fórnaði á því brennifórn og matfórn, eins og Drottinn hafði boðið Móse.

    40:30 Hann setti kerið milli samfundatjaldsins og altarisins og lét vatn í það til þvottar,

    40:31 og þvoðu þeir Móse, Aron og synir hans hendur sínar og fætur úr því.

    40:32 Hvert sinn er þeir gengu inn í samfundatjaldið og nálguðust altarið, þvoðu þeir sér, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

    40:33 Síðan reisti hann forgarðinn umhverfis búðina og altarið og hengdi dúkbreiðuna fyrir forgarðshliðið, og hafði Móse þá aflokið verkinu.

    40:34 Þá huldi skýið samfundatjaldið, og dýrð Drottins fyllti búðina,

    40:35 og mátti Móse ekki inn ganga í samfundatjaldið, því að skýið lá yfir því og dýrð Drottins fyllti búðina.

    40:36 Hvert sinn er skýið hófst upp frá búðinni, lögðu Ísraelsmenn upp, alla þá stund er þeir voru á ferðinni.

    40:37 En er skýið hófst ekki upp, lögðu Ísraelsmenn ekki af stað fyrr en þann dag er skýið hófst upp.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine