Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - EZEKIEL 48

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    48:1 Og þetta eru nöfn ættkvíslanna: Yst í norðri, frá hafinu í áttina til Hetlón þangað að, er leið liggur til Hamat, og þaðan til Hasar Enón, _ er þá Damaskusland fyrir norðan, fram með Hamat _, og fær hver land frá austri til vesturs: Dan, einn landshluti.

    48:2 Og meðfram Dans landi, frá austri til vesturs: Asser, einn landshluti.

    48:3 Og meðfram Assers landi, frá austri til vesturs: Naftalí, einn landshluti.

    48:4 Og meðfram Naftalí landi, frá austri til vesturs: Manasse, einn landshluti.

    48:5 Og meðfram Manasse landi, frá austri til vesturs: Efraím, einn landshluti.

    48:6 Og meðfram Efraíms landi, frá austri til vesturs: Rúben, einn landshluti.

    48:7 Og meðfram Rúbens landi, frá austri til vesturs: Júda, einn landshluti.

    48:8 Meðfram Júda landi, frá austri til vesturs, skal landið, er þér færið að fórnargjöf, sem þér skuluð láta af hendi, liggja, 25.000 álnir á breidd og jafnt að lengd hlutum ættkvíslanna, frá austri til vesturs, og helgidómurinn skal vera í því miðju.

    48:9 En landið, er þér skuluð helga Drottni, er 25.000 álnir á lengd og 20.000 álnir á breidd.

    48:10 Og þeim, sem nú skal greina, skal hin heilaga fórnargjöf tilheyra: prestunum landspilda 25.000 álna að norðanverðu, 10.000 álna að vestanverðu, 10.000 álna að austanverðu og 25.000 álna að sunnanverðu. Og helgidómur Drottins skal vera á henni miðri.

    48:11 Vígðu prestunum, niðjum Sadóks, þeim er gætt hafa þjónustu minnar, sem eigi gengu afleiðis, þá er aðrir Ísraelsmenn gengu afleiðis, svo sem og levítarnir hafa gengið afleiðis,

    48:12 þeim skal það tilheyra sem hluti af fórnargjöf landsins, sem háheilagt land, við hliðina á landi levítanna,

    48:13 en levítunum skal tilheyra jafnstórt land og prestanna: 25.000 álnir á lengd og 10.000 álnir á breidd, alls 25.000 álnir á lengd og 20.000 álnir á breidd.

    48:14 Af því mega þeir ekkert selja og ekki farga neinu af því í skiptum, né heldur má þessi ágætasti hluti landsins ganga yfir í annarra eigu, því að hann er helgaður Drottni.

    48:15 En þær 5.000 álnir, sem eftir eru af breiddinni meðfram 25.000 álnunum, eru óheilagt land handa borginni til ábúðar og beitilands, en borgin skal standa í þeim reit miðjum.

    48:16 Og þetta er mál hennar: Norðurhliðin 4.500 álnir og suðurhliðin 4.500 álnir og austurhliðin 4.500 álnir og vesturhliðin 4.500 álnir.

    48:17 Og útjörð borgarinnar skal vera 250 álnir til norðurs, 250 til suðurs, 250 til austurs og 250 til vesturs.

    48:18 Og það sem eftir er af lengdinni meðfram hinni helgu fórnargjöf, 10.000 álnir til austurs og 10.000 álnir til vesturs, afurðir þess skulu vera íbúum borgarinnar til fæðslu.

    48:19 Og hvað íbúa borgarinnar snertir, þá skulu byggja hana menn af öllum ættkvíslum Ísraels.

    48:20 Alls skuluð þér láta af hendi sem fórnargjöf 25.000 álnir í ferhyrning: hina heilögu fórnargjöf ásamt landeign borgarinnar.

    48:21 Það, sem eftir er, skal tilheyra landshöfðingjanum, beggja vegna við hina heilögu fórnargjöf og landeign borgarinnar, austur á bóginn meðfram 25.000 álnunum að austurtakmörkunum og vestur á bóginn meðfram 25.000 álnunum að vesturtakmörkunum, samsvarandi hlutum ættkvíslanna. Það tilheyrir landshöfðingjanum, og hin heilaga fórnargjöf og helgidómur musterisins skal vera í því miðju.

    48:22 Og eignarland levítanna og eignarland borgarinnar skal liggja mitt inni í því, sem landshöfðingjanum tilheyrir. Milli Júda lands og Benjamíns lands skal það land liggja, er landshöfðingjanum tilheyrir.

    48:23 En hinar ættkvíslirnar eru, frá austri til vesturs: Benjamín, einn landshluti.

    48:24 Og meðfram Benjamínslandi, frá austri til vesturs: Símeon, einn landshluti.

    48:25 Og meðfram Símeons landi, frá austri til vesturs: Íssakar, einn landshluti.

    48:26 Og meðfram Íssakars landi, frá austri til vesturs: Sebúlon, einn landshluti.

    48:27 Og meðfram Sebúlons landi, frá austri til vesturs: Gað, einn landshluti.

    48:28 En meðfram Gaðs landi, að sunnanverðu, gegnt hádegisstað, skulu takmörkin liggja frá Tamar yfir Meríba-vötn við Kades til Egyptalandsár og þaðan til hafsins mikla.

    48:29 Þetta er landið, sem þér skuluð úthluta ættkvíslum Ísraels til arfleifðar, og þetta eru hlutir þeirra _ segir Drottinn Guð.

    48:30 Og þessi eru útgönguhlið borgarinnar, og eru hlið borgarinnar nefnd eftir ættkvíslum Ísraels: Á norðurhliðinni, sem er 4.500 álnir að máli,

    48:31 eru þrjú hlið: Rúbenshlið eitt, Júdahlið eitt, Levíhlið eitt.

    48:32 Á austurhliðinni, sem er 4.500 álnir, eru þrjú hlið: Jósefshlið eitt, Benjamínshlið eitt, Danshlið eitt.

    48:33 Á suðurhliðinni, sem er 4.500 álnir að máli, eru þrjú hlið: Símeonshlið eitt, Íssakarshlið eitt, Sebúlonshlið eitt.

    48:34 Og á vesturhliðinni, sem er 4.500 álnir, eru þrjú hlið: Gaðshlið eitt, Assershlið eitt, Naftalíhlið eitt.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine