Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - EZEKIEL 9

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    9:1 Þessu næst kallaði hann hárri röddu í eyru mín: ,,Refsingar borgarinnar nálgast!``

    9:2 Þá komu sex menn frá efra hliðinu, sem snýr í norður, og hafði hver þeirra eyðingarverkfæri í hendi sér, og meðal þeirra var einn maður, sem var líni klæddur og hafði skriffæri við síðu sér. Þeir komu og námu staðar hjá eiraltarinu.

    9:3 Dýrð Ísraels Guðs hafði hafið sig frá kerúbunum, þar sem hún hafði verið, yfir að þröskuldi hússins. Og hann kallaði á línklædda manninn, sem hafði skriffærin við síðu sér.

    9:4 Og Drottinn sagði við hann: ,,Gakk þú mitt í gegnum borgina, mitt í gegnum Jerúsalem, og set merki á enni þeirra manna, sem andvarpa og kveina yfir öllum þeim svívirðingum, sem framdar eru inni í henni.``

    9:5 En til hinna mælti hann að mér áheyrandi: ,,Farið á eftir honum um borgina og höggvið niður, lítið engan vægðarauga og sýnið enga meðaumkun.

    9:6 Öldunga og æskumenn, meyjar og börn og konur skuluð þér brytja niður, en engan mann skuluð þér snerta, sem merkið er á. Og takið fyrst til hjá helgidómi mínum!`` Og þeir tóku fyrst til á öldungum þeim, sem voru fyrir framan musterið.

    9:7 Og hann sagði við þá: ,,Horfið ekki í að saurga musterið og fyllið strætin vegnum mönnum. Gangið nú út!`` Þeir gengu þá út og hjuggu niður mannfólkið í borginni.

    9:8 Meðan þeir brytjuðu niður, féll ég fram á ásjónu mína, kallaði og sagði: ,,Æ, Drottinn Guð, ætlar þú að gjöreyða öllum eftirleifum Ísraels, þar sem þú eys út reiði þinni yfir Jerúsalem?``

    9:9 Þá sagði hann við mig: ,,Misgjörð Ísraelsmanna og Júdamanna er afskaplega mikil, og landið er fullt af blóðugu ranglæti og borgin er full af ofbeldisverkum, því að þeir segja: ,Drottinn hefir yfirgefið landið` og ,Drottinn sér það ekki.`

    9:10 Fyrir því skal ég heldur ekki líta þá vægðarauga og enga meðaumkun sýna. Ég læt athæfi þeirra þeim sjálfum í koll koma.``

    9:11 Þá kom línklæddi maðurinn, sem hafði skriffærin við síðu sér, aftur og sagði: ,,Ég hefi gjört eins og þú bauðst mér.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine