Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - GALATIANS 1

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    1:1 Páll postuli _ ekki sendur af mönnum né að tilhlutun manns, heldur að tilhlutun Jesú Krists og Guðs föður, sem uppvakti hann frá dauðum _

    1:2 og allir bræðurnir, sem með mér eru, heilsa söfnuðunum í Galatalandi.

    1:3 Náð sé með yður og friður frá Guði föður og Drottni vorum Jesú Kristi,

    1:4 sem gaf sjálfan sig fyrir syndir vorar, til þess að frelsa oss frá hinni yfirstandandi vondu öld, samkvæmt vilja Guðs vors og föður.

    1:5 Honum sé dýrð um aldir alda, amen.

    1:6 Mig furðar, að þér svo fljótt látið snúast frá honum, sem kallaði yður í náð Krists, til annars konar fagnaðarerindis,

    1:7 sem þó er ekki til; heldur eru einhverjir að trufla yður og vilja umhverfa fagnaðarerindinu um Krist.

    1:8 En þótt jafnvel vér eða engill frá himni færi að boða yður annað fagnaðarerindi en það, sem vér höfum boðað yður, þá sé hann bölvaður.

    1:9 Eins og vér höfum áður sagt, eins segi ég nú aftur: Ef nokkur boðar yður annað fagnaðarerindi en það, sem þér hafið veitt viðtöku, þá sé hann bölvaður.

    1:10 Er ég nú að reyna að sannfæra menn eða Guð? Er ég að leitast við að þóknast mönnum? Ef ég væri enn að þóknast mönnum, þá væri ég ekki þjónn Krists.

    1:11 Það læt ég yður vita, bræður, að fagnaðarerindið, sem ég hef boðað, er ekki mannaverk.

    1:12 Ekki hef ég tekið við því af manni né látið kenna mér það, heldur fengið það fyrir opinberun Jesú Krists.

    1:13 Þér hafið heyrt um háttsemi mína áður fyrri í Gyðingdóminum, hversu ákaflega ég ofsótti söfnuð Guðs og vildi eyða honum.

    1:14 Ég fór lengra í Gyðingdóminum en margir jafnaldrar mínir meðal þjóðar minnar og var miklu vandlætingasamari um erfikenningu forfeðra minna.

    1:15 En þegar Guði, sem hafði útvalið mig frá móðurlífi og af náð sinni kallað,

    1:16 þóknaðist að opinbera mér son sinn, til þess að ég boðaði fagnaðarerindið um hann meðal heiðingjanna, þá ráðgaðist ég eigi við neinn mann,

    1:17 ekki fór ég heldur upp til Jerúsalem til þeirra, sem voru postular á undan mér, heldur fór ég jafnskjótt til Arabíu og sneri svo aftur til Damaskus.

    1:18 Síðan fór ég eftir þrjú ár upp til Jerúsalem til að kynnast Kefasi og dvaldist hjá honum hálfan mánuð.

    1:19 Engan af hinum postulunum sá ég, heldur aðeins Jakob, bróður Drottins.

    1:20 Guð veit, að ég lýg því ekki, sem ég skrifa yður.

    1:21 Síðan kom ég í héruð Sýrlands og Kilikíu.

    1:22 Ég var persónulega ókunnur kristnu söfnuðunum í Júdeu.

    1:23 Þeir höfðu einungis heyrt sagt: ,,Sá sem áður ofsótti oss, boðar nú trúna, sem hann áður vildi eyða.``

    1:24 Og þeir vegsömuðu Guð vegna mín.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine