Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - GALATIANS 3

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    3:1 Þér óskynsömu Galatar! Hver hefur töfrað yður? Þér hafið þó fengið skýra mynd af Jesú Kristi á krossinum, málaða fyrir augum yðar.

    3:2 Um þetta eitt vil ég fræðast af yður: Öðluðust þér andann fyrir lögmálsverk eða við að hlýða á fagnaðarerindið og trúa?

    3:3 Eruð þér svo óskynsamir? Þér sem byrjuðuð í anda, ætlið þér nú að enda í holdi?

    3:4 Hafið þér til einskis reynt svo mikið? _ ef það þá er til einskis!

    3:5 Hvað um það, _ sá sem veitir yður andann og framkvæmir máttarverk meðal yðar, gjörir hann það vegna lögmálsverka yðar eða vegna þess að þér heyrið og trúið?

    3:6 Svo var og um Abraham, ,,hann trúði Guði, og það var honum til réttlætis reiknað.``

    3:7 Þér sjáið þá, að þeir sem byggja á trúnni, þeir eru einmitt synir Abrahams.

    3:8 Ritningin sá það fyrir, að Guð mundi réttlæta heiðingjana fyrir trú, og því boðaði hún Abraham fyrirfram þann fagnaðarboðskap: ,,Af þér skulu allar þjóðir blessun hljóta.``

    3:9 Þannig hljóta þeir, sem byggja á trúnni, blessun ásamt hinum trúaða Abraham.

    3:10 En bölvun hvílir á öllum þeim, sem byggja á lögmálsverkum, því að ritað er: ,,Bölvaður er sá, sem ekki heldur fast við allt það, sem í lögmálsbókinni er ritað, og breytir eftir því.``

    3:11 En það er augljóst að fyrir Guði réttlætist enginn með lögmáli, því að ,,hinn réttláti mun lifa fyrir trú.``

    3:12 En lögmálið spyr ekki um trú. Það segir: ,,Sá, sem breytir eftir boðum þess, mun lifa fyrir þau.``

    3:13 Kristur keypti oss undan bölvun lögmálsins með því að verða bölvun fyrir oss, því að ritað er: ,,Bölvaður er hver sá, sem á tré hangir.``

    3:14 Þannig skyldi heiðingjunum hlotnast blessun Abrahams í Kristi Jesú, og vér öðlast fyrir trúna andann, sem fyrirheitið var.

    3:15 Bræður, ég tek dæmi úr mannlegu lífi: Enginn ónýtir eða eykur við staðfesta arfleiðsluskrá, enda þótt hún sé aðeins af manni gjörð.

    3:16 Nú voru fyrirheitin gefin Abraham og afkvæmi hans, _ þar stendur ekki ,,og afkvæmum``, eins og margir ættu í hlut, heldur ,,og afkvæmi þínu``, eins og þegar um einn er að ræða, og það er Kristur.

    3:17 Með þessu vildi ég sagt hafa: Sáttmála, sem áður var staðfestur af Guði, getur lögmálið, sem kom fjögur hundruð og þrjátíu árum síðar, ekki ónýtt, svo að það felli fyrirheitið úr gildi.

    3:18 Sé því þá svo farið, að arfurinn fáist með lögmáli, þá fæst hann ekki framar með fyrirheiti, en Guð veitti Abraham náð sína með fyrirheiti.

    3:19 Hvað er þá lögmálið? Vegna afbrotanna var því bætt við, þangað til afkvæmið kæmi, sem fyrirheitið hljóðaði um. Fyrir umsýslan engla er það til orðið, fyrir tilstilli meðalgangara.

    3:20 En meðalgangara gjörist ekki þörf þar sem einn á í hlut, en Guð er einn.

    3:21 Er þá lögmálið gegn fyrirheitum Guðs? Fjarri fer því. Ef vér hefðum fengið lögmál, sem veitt gæti líf, þá fengist réttlætið vissulega með lögmáli.

    3:22 En ritningin segir, að allt sé hneppt undir vald syndarinnar, til þess að fyrirheitið veitist þeim, sem trúa, fyrir trú á Jesú Krist.

    3:23 Áður en trúin kom, vorum vér í gæslu lögmálsins innilokaðir, þangað til trúin, sem í vændum var, opinberaðist.

    3:24 Þannig hefur lögmálið orðið tyftari vor, þangað til Kristur kom, til þess að vér réttlættumst af trú.

    3:25 En nú, eftir að trúin er komin, erum vér ekki lengur undir tyftara.

    3:26 Þér eruð allir Guðs börn fyrir trúna á Krist Jesú.

    3:27 Allir þér, sem eruð skírðir til samfélags við Krist, þér hafið íklæðst Kristi.

    3:28 Hér er enginn Gyðingur né grískur, þræll né frjáls maður, karl né kona. Þér eruð allir eitt í Kristi Jesú.

    3:29 En ef þér tilheyrið Kristi, þá eruð þér niðjar Abrahams, erfingjar eftir fyrirheitinu.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine