Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - GALATIANS 5

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    5:1 Til frelsis frelsaði Kristur oss. Standið því stöðugir og látið ekki aftur leggja á yður ánauðarok.

    5:2 Takið eftir því, sem ég, Páll, segi yður: Ef þér látið umskerast, þá gagnar Kristur yður ekkert.

    5:3 Og enn vitna ég fyrir hverjum manni, sem lætur umskerast: Hann er skyldur til að halda allt lögmálið.

    5:4 Þér eruð orðnir viðskila við Krist, þér sem ætlið að réttlætast með lögmáli. Þér eruð fallnir úr náðinni.

    5:5 En vér væntum í andanum að öðlast af trúnni réttlætinguna, sem er von vor.

    5:6 Í Kristi Jesú er ekkert komið undir umskurn né yfirhúð, heldur undir trú, sem starfar í kærleika.

    5:7 Þér hlupuð vel. Hver hefur hindrað yður í að hlýða sannleikanum?

    5:8 Þær fortölur voru ekki frá honum, sem kallaði yður.

    5:9 Lítið súrdeig sýrir allt deigið.

    5:10 Ég hef það traust til yðar í Drottni, að þér verðið sama sinnis og ég. Sá sem truflar yður mun bera sinn dóm, hver sem hann svo er.

    5:11 En hvað mig snertir, bræður, ef ég er enn þá að prédika umskurn, hví er þá enn verið að ofsækja mig? Þá væri hneyksli krossins tekið burt.

    5:12 Vel mættu þeir, sem koma yður í uppnám, aflima sig.

    5:13 Þér voruð, bræður, kallaðir til frelsis. Notið aðeins ekki frelsið til færis fyrir holdið, heldur þjónið hver öðrum í kærleika.

    5:14 Allt lögmálið er uppfyllt með þessu eina boðorði: ,,Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.``

    5:15 En ef þér bítist og etið hver annan upp, þá gætið þess, að þér tortímist ekki hver fyrir öðrum.

    5:16 En ég segi: Lifið í andanum, og þá fullnægið þér alls ekki girnd holdsins.

    5:17 Holdið girnist gegn andanum, og andinn gegn holdinu. Þau standa hvort gegn öðru, til þess að þér gjörið ekki það, sem þér viljið.

    5:18 En ef þér leiðist af andanum, þá eruð þér ekki undir lögmáli.

    5:19 Holdsins verk eru augljós: Frillulífi, óhreinleiki, saurlífi,

    5:20 skurðgoðadýrkun, fjölkynngi, fjandskapur, deilur, metingur, reiði, eigingirni, tvídrægni, flokkadráttur,

    5:21 öfund, ofdrykkja, svall og annað þessu líkt. Og það segi ég yður fyrir, eins og ég hef áður sagt, að þeir, sem slíkt gjöra, munu ekki erfa Guðs ríki.

    5:22 En ávöxtur andans er: Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska,

    5:23 hógværð og bindindi. Gegn slíku er lögmálið ekki.

    5:24 En þeir, sem tilheyra Kristi Jesú, hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum.

    5:25 Fyrst andinn er líf vort skulum vér lifa í andanum!

    5:26 Verum ekki hégómagjarnir, svo að vér áreitum hver annan og öfundum hver annan.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine