Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - GENESIS 21

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    21:1 Drottinn vitjaði Söru, eins og hann hafði lofað, og Drottinn gjörði við Söru eins og hann hafði sagt.

    21:2 Og Sara varð þunguð og fæddi Abraham son í elli hans, um þær mundir, sem Guð hafði sagt honum.

    21:3 Og Abraham gaf nafn syni sínum, þeim er honum fæddist, sem Sara fæddi honum, og kallaði hann Ísak.

    21:4 Abraham umskar Ísak son sinn, þá er hann var átta daga gamall, eins og Guð hafði boðið honum.

    21:5 En Abraham var hundrað ára gamall, þegar Ísak sonur hans fæddist honum.

    21:6 Sara sagði: ,,Guð hefir gjört mig að athlægi. Hver sem heyrir þetta, mun hlæja að mér.``

    21:7 Og hún mælti: ,,Hver skyldi hafa sagt við Abraham, að Sara mundi hafa börn á brjósti, og þó hefi ég alið honum son í elli hans.``

    21:8 Sveinninn óx og var vaninn af brjósti, og Abraham gjörði mikla veislu þann dag, sem Ísak var tekinn af brjósti.

    21:9 En Sara sá son Hagar hinnar egypsku, er hún hafði fætt Abraham, að leik með Ísak, syni hennar.

    21:10 Þá sagði hún við Abraham: ,,Rek þú burt ambátt þessa og son hennar, því að ekki skal sonur þessarar ambáttar taka arf með syni mínum, með Ísak.``

    21:11 En Abraham sárnaði þetta mjög vegna sonar síns.

    21:12 Þá sagði Guð við Abraham: ,,Lát þig ekki taka sárt til sveinsins og ambáttar þinnar. Hlýð þú Söru í öllu því, er hún segir þér, því að afkomendur þínir munu verða kenndir við Ísak.

    21:13 En ég mun einnig gjöra ambáttarsoninn að þjóð, því að hann er þitt afkvæmi.``

    21:14 Og Abraham reis árla næsta morgun, tók brauð og vatnsbelg og fékk Hagar, en sveininn lagði hann á herðar henni og lét hana í burtu fara. Hún hélt þá af stað og reikaði um eyðimörkina Beerseba.

    21:15 En er vatnið var þrotið á leglinum, lagði hún sveininn inn undir einn runnann.

    21:16 Því næst gekk hún burt og settist þar gegnt við, svo sem í örskots fjarlægð, því að hún sagði: ,,Ég get ekki horft á að barnið deyi.`` Og hún settist þar gegnt við og tók að gráta hástöfum.

    21:17 En er Guð heyrði hljóð sveinsins, þá kallaði engill Guðs til Hagar af himni og mælti til hennar: ,,Hvað gengur að þér, Hagar? Vertu óhrædd, því að Guð hefir heyrt til sveinsins, þar sem hann liggur.

    21:18 Statt þú upp, reistu sveininn á fætur og leiddu hann þér við hönd, því að ég mun gjöra hann að mikilli þjóð.``

    21:19 Og Guð lauk upp augum hennar, svo að hún sá vatnsbrunn. Fór hún þá og fyllti belginn vatni og gaf sveininum að drekka.

    21:20 Og Guð var með sveininum, og hann óx upp og hafðist við í eyðimörkinni og gjörðist bogmaður.

    21:21 Og hann hafðist við í Paraneyðimörk, og móðir hans tók honum konu af Egyptalandi.

    21:22 Um sömu mundir bar svo til, að Abímelek og hershöfðingi hans Píkól mæltu þannig við Abraham: ,,Guð er með þér í öllu, sem þú gjörir.

    21:23 Vinn mér nú eið að því hér við Guð, að þú skulir eigi breyta sviksamlega, hvorki við mig né afkomendur mína. Þú skalt auðsýna mér og landinu, sem þú dvelst í sem útlendingur, hina sömu góðsemi og ég hefi auðsýnt þér.``

    21:24 Og Abraham mælti: ,,Ég skal vinna þér eið að því.``

    21:25 En Abraham átaldi Abímelek fyrir vatnsbrunninn, sem þrælar Abímeleks höfðu tekið með ofríki.

    21:26 Þá sagði Abímelek: ,,Ekki veit ég, hver það hefir gjört. Hvorki hefir þú sagt mér það né hefi ég heldur heyrt það fyrr en í dag.``

    21:27 Þá tók Abraham sauði og naut og gaf Abímelek, og þeir gjörðu sáttmála sín í milli.

    21:28 Og Abraham tók frá sjö gimbrar af hjörðinni.

    21:29 Þá mælti Abímelek til Abrahams: ,,Hvað skulu þessar sjö gimbrar, sem þú hefir tekið frá?``

    21:30 Hann svaraði: ,,Við þessum sjö gimbrum skalt þú taka af minni hendi, til vitnis um að ég hefi grafið þennan brunn.``

    21:31 Þess vegna heitir sá staður Beerseba, af því að þeir sóru þar báðir.

    21:32 Þannig gjörðu þeir sáttmála í Beerseba. Síðan tók Abímelek sig upp og Píkól hershöfðingi hans og sneru aftur til Filistalands.

    21:33 Abraham gróðursetti tamarisk-runn í Beerseba og ákallaði þar nafn Drottins, Hins Eilífa Guðs.

    21:34 Og Abraham dvaldist lengi í Filistalandi.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine