Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - GENESIS 25

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    25:1 Abraham tók sér enn konu. Hún hét Ketúra.

    25:2 Og hún ól honum Símran, Joksan, Medan, Midían, Jísbak og Súa.

    25:3 Og Joksan gat Séba og Dedan, og synir Dedans voru Assúrítar, Letúsítar og Leúmmítar.

    25:4 Og synir Midíans voru: Efa, Efer, Hanok, Abída og Eldaa. Allir þessir eru niðjar Ketúru.

    25:5 Abraham gaf Ísak allt, sem hann átti.

    25:6 En sonum þeim, sem Abraham hafði átt með hjákonunum, gaf hann gjafir og lét þá, meðan hann enn var á lífi, fara burt frá Ísak syni sínum í austurátt, til austurlanda.

    25:7 Þetta eru ævidagar Abrahams, sem hann lifði, hundrað sjötíu og fimm ár.

    25:8 Og Abraham andaðist og dó í góðri elli, gamall og saddur lífdaga, og safnaðist til síns fólks.

    25:9 Og Ísak og Ísmael synir hans jörðuðu hann í Makpelahelli í landi Efrons, sonar Hetítans Sóars, sem er gegnt Mamre,

    25:10 í landi því, sem Abraham hafði keypt af Hetítum, þar var Abraham jarðaður og Sara kona hans.

    25:11 Og eftir andlát Abrahams blessaði Guð Ísak son hans. En Ísak bjó hjá Beer-lahaj-róí.

    25:12 Þetta er ættartal Ísmaels Abrahamssonar, sem Hagar hin egypska, ambátt Söru, ól honum.

    25:13 Og þessi eru nöfn Ísmaels sona, samkvæmt nöfnum þeirra, eftir kynþáttum þeirra. Nebajót var hans frumgetinn son, þá Kedar, Adbeel, Míbsam,

    25:14 Misma, Dúma, Massa,

    25:15 Hadar, Tema, Jetúr, Nafis og Kedma.

    25:16 Þessir eru synir Ísmaels, og þessi eru nöfn þeirra, eftir þorpum þeirra og tjaldbúðum, tólf höfðingjar, eftir ættkvíslum þeirra.

    25:17 Og þetta voru æviár Ísmaels: hundrað þrjátíu og sjö ár, _ þá andaðist hann og dó, og safnaðist til síns fólks.

    25:18 Og þeir bjuggu frá Havíla til Súr, sem er fyrir austan Egyptaland, í stefnu til Assýríu. Fyrir austan alla bræður sína tók hann sér bústað.

    25:19 Þetta er saga Ísaks Abrahamssonar. Abraham gat Ísak.

    25:20 Ísak var fertugur að aldri, er hann gekk að eiga Rebekku, dóttur Betúels hins arameíska frá Paddan-aram, systur Labans hins arameíska.

    25:21 Ísak bað Drottin fyrir konu sinni, því að hún var óbyrja, og Drottinn bænheyrði hann, og Rebekka kona hans varð þunguð.

    25:22 Og er börnin hnitluðust í kviði hennar, sagði hún: ,,Sé það svona, hví lifi ég þá?`` Gekk hún þá til frétta við Drottin.

    25:23 En Drottinn svaraði henni: Þú gengur með tvær þjóðir, og tveir ættleggir munu af skauti þínu kvíslast. Annar verður sterkari en hinn, og hinn eldri mun þjóna hinum yngri.

    25:24 Er dagar hennar fullnuðust, að hún skyldi fæða, sjá, þá voru tvíburar í kviði hennar.

    25:25 Og hinn fyrri kom í ljós, rauður að lit og allur sem loðfeldur, og var hann nefndur Esaú.

    25:26 Og eftir það kom bróðir hans í ljós, og hélt hann um hælinn á Esaú, og var hann nefndur Jakob. En Ísak var sextíu ára, er hún ól þá.

    25:27 Er sveinarnir voru vaxnir, gjörðist Esaú slyngur veiðimaður og hafðist við á heiðum, en Jakob var maður gæfur og bjó í tjöldum.

    25:28 Og Ísak unni Esaú, því að villibráð þótti honum góð, en Rebekka unni Jakob.

    25:29 Einu sinni hafði Jakob soðið rétt nokkurn. Kom þá Esaú af heiðum og var dauðþreyttur.

    25:30 Þá sagði Esaú við Jakob: ,,Gef mér fljótt að eta hið rauða, þetta rauða þarna, því að ég er dauðþreyttur.`` Fyrir því nefndu menn hann Edóm.

    25:31 En Jakob mælti: ,,Seldu mér fyrst frumburðarrétt þinn.``

    25:32 Og Esaú mælti: ,,Ég er kominn í dauðann, hvað stoðar mig frumburðarréttur minn?``

    25:33 Og Jakob mælti: ,,Vinn þú mér þá fyrst eið að því!`` Og hann vann honum eiðinn og seldi Jakob frumburðarrétt sinn.

    25:34 En Jakob gaf Esaú brauð og baunarétt, og hann át og drakk og stóð upp og gekk burt. Þannig lítilsvirti Esaú frumburðarrétt sinn.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine