Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - GENESIS 29

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    29:1 Jakob hélt áfram ferð sinni og kom til lands austurbyggja.

    29:2 Og er hann litaðist um, sjá, þá var þar brunnur á mörkinni, og sjá, þar lágu þrjár sauðahjarðir við hann, því að þeir voru vanir að vatna hjörðunum við þennan brunn. En steinn mikill lá yfir munna brunnsins.

    29:3 Og er allar hjarðirnar voru þar saman reknar, veltu þeir steininum frá munna brunnsins og vötnuðu fénu, síðan létu þeir steininn aftur yfir munna brunnsins á sinn stað.

    29:4 Þá sagði Jakob við þá: ,,Kæru bræður, hvaðan eruð þér?``

    29:5 Þeir svöruðu: ,,Vér erum frá Harran.`` Og hann mælti til þeirra: ,,Þekkið þér Laban Nahorsson?`` Þeir svöruðu: ,,Já, vér þekkjum hann.``

    29:6 Og hann mælti til þeirra: ,,Líður honum vel?`` Þeir svöruðu: ,,Honum líður vel. Og sjá, þarna kemur Rakel dóttir hans með féð.``

    29:7 Og hann mælti: ,,Sjá, enn er mikið dags eftir og ekki kominn tími til að reka saman fénaðinn. Brynnið fénu, farið síðan og haldið því á haga.``

    29:8 Þeir svöruðu: ,,Það getum vér ekki fyrr en allar hjarðirnar eru saman reknar, þá velta þeir steininum frá munna brunnsins, og þá brynnum vér fénu.``

    29:9 Áður en hann hafði lokið tali sínu við þá, kom Rakel með féð, sem faðir hennar átti, því að hún sat hjá.

    29:10 En er Jakob sá Rakel, dóttur Labans móðurbróður síns, og fé Labans móðurbróður síns, þá fór hann til og velti steininum frá munna brunnsins og vatnaði fé Labans móðurbróður síns.

    29:11 Og Jakob kyssti Rakel og tók að gráta hástöfum.

    29:12 Og Jakob sagði Rakel, að hann væri frændi föður hennar og að hann væri sonur Rebekku. En hún hljóp og sagði þetta föður sínum.

    29:13 En er Laban fékk fregnina um Jakob systurson sinn, gekk hann skjótlega á móti honum, faðmaði hann að sér og minntist við hann, og leiddi hann inn í hús sitt. En hann sagði Laban alla sögu sína.

    29:14 Þá sagði Laban við hann: ,,Sannlega ert þú hold mitt og bein!`` Og hann var hjá honum heilan mánuð.

    29:15 Laban sagði við Jakob: ,,Skyldir þú þjóna mér fyrir ekki neitt, þó að þú sért frændi minn? Seg mér, hvert kaup þitt skuli vera.``

    29:16 En Laban átti tvær dætur. Hét hin eldri Lea, en Rakel hin yngri.

    29:17 Og Lea var daufeygð, en Rakel var bæði vel vaxin og fríð sýnum.

    29:18 Og Jakob elskaði Rakel og sagði: ,,Ég vil þjóna þér í sjö ár fyrir Rakel, yngri dóttur þína.``

    29:19 Laban svaraði: ,,Betra er að ég gefi þér hana en að ég gefi hana öðrum manni. Ver þú kyrr hjá mér.``

    29:20 Síðan vann Jakob fyrir Rakel í sjö ár, og þótti honum sem fáir dagar væru, sakir ástar þeirrar, er hann bar til hennar.

    29:21 Og Jakob sagði við Laban: ,,Fá mér nú konu mína, því að minn ákveðni tími er liðinn, að ég megi ganga inn til hennar.``

    29:22 Þá bauð Laban til sín öllum mönnum í þeim stað og hélt veislu.

    29:23 En um kveldið tók hann Leu dóttur sína og leiddi hana inn til hans, og hann gekk í sæng með henni.

    29:24 Og Laban fékk henni Silpu ambátt sína, að hún væri þerna Leu dóttur hans.

    29:25 En um morguninn, sjá, þá var það Lea. Og hann sagði við Laban: ,,Hví hefir þú gjört mér þetta? Hefi ég ekki unnið hjá þér fyrir Rakel? Hví hefir þú þá svikið mig?``

    29:26 Og Laban sagði: ,,Það er ekki siður í voru landi að gifta fyrr frá sér yngri dótturina en hina eldri.

    29:27 Enda þú út brúðkaupsviku þessarar, þá skulum vér einnig gefa þér hina fyrir þá vinnu, sem þú munt vinna hjá mér í enn önnur sjö ár.``

    29:28 Og Jakob gjörði svo og endaði út vikuna með henni. Þá gifti hann honum Rakel dóttur sína.

    29:29 Og Laban fékk Rakel dóttur sinni Bílu ambátt sína fyrir þernu.

    29:30 Og hann gekk einnig í sæng með Rakel og hann elskaði Rakel meira en Leu. Og hann vann hjá honum í enn önnur sjö ár.

    29:31 Er Drottinn sá, að Lea var fyrirlitin, opnaði hann móðurlíf hennar, en Rakel var óbyrja.

    29:32 Og Lea varð þunguð og ól son og nefndi hann Rúben, því að hún sagði: ,,Drottinn hefir séð raunir mínar. Nú mun bóndi minn elska mig.``

    29:33 Og hún varð þunguð í annað sinn og ól son. Þá sagði hún: ,,Drottinn hefir heyrt að ég er fyrirlitin. Fyrir því hefir hann einnig gefið mér þennan son.`` Og hún nefndi hann Símeon.

    29:34 Og enn varð hún þunguð og ól son. Þá sagði hún: ,,Nú mun bóndi minn loks hænast að mér, því að ég hefi fætt honum þrjá sonu.`` Fyrir því nefndi hún hann Leví.

    29:35 Og enn varð hún þunguð og ól son og sagði: ,,Nú vil ég vegsama Drottin.`` Fyrir því nefndi hún hann Júda. Og hún lét af að eiga börn.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine