Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - GENESIS 35

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    35:1 Guð sagði við Jakob: ,,Tak þig upp og far upp til Betel og dvel þú þar og gjör þar altari Guði, sem birtist þér, þegar þú flýðir undan Esaú bróður þínum.``

    35:2 Jakob sagði við heimafólk sitt og alla, sem með honum voru: ,,Kastið burt þeim útlendu goðum, sem þér hafið hjá yður, og hreinsið yður og hafið fataskipti,

    35:3 og skulum vér taka oss upp og fara upp til Betel. Vil ég reisa þar altari þeim Guði, sem bænheyrði mig á tíma neyðar minnar og hefir verið með mér á þeim vegi, sem ég hefi farið.``

    35:4 Og þeir fengu Jakob öll þau útlendu goð, sem þeir höfðu hjá sér, og hringana, sem þeir höfðu í eyrum sér, og gróf Jakob það undir eikinni, sem er hjá Síkem.

    35:5 Því næst fóru þeir af stað. En ótti frá Guði var yfir öllum borgunum, sem voru umhverfis þá, svo að sonum Jakobs var ekki veitt eftirför.

    35:6 Og Jakob kom til Lúz, sem er í Kanaanlandi (það er Betel), hann og allt fólkið, sem með honum var.

    35:7 Og hann reisti þar altari og kallaði staðinn El-Betel, því að Guð hafði birst honum þar, þegar hann flýði undan bróður sínum.

    35:8 Þar andaðist Debóra, fóstra Rebekku, og var jörðuð fyrir neðan Betel, undir eikinni, og fyrir því heitir hún Gráteik.

    35:9 Enn birtist Guð Jakob, er hann var á heimleið frá Mesópótamíu, og blessaði hann.

    35:10 Og Guð sagði við hann: ,,Nafn þitt er Jakob. Eigi skalt þú héðan af Jakob heita, heldur skal nafn þitt vera Ísrael.`` Og hann nefndi hann Ísrael.

    35:11 Og Guð sagði við hann: ,,Ég er Almáttugur Guð. Ver þú frjósamur og auk kyn þitt. Þjóð, já fjöldi þjóða skal frá þér koma, og konungar skulu út ganga af lendum þínum.

    35:12 Og landið, sem ég gaf Abraham og Ísak, mun ég gefa þér, og niðjum þínum eftir þig mun ég gefa landið.``

    35:13 Því næst sté Guð upp frá honum, þaðan sem hann talaði við hann.

    35:14 Jakob reisti upp merki á þeim stað, sem Guð talaði við hann, merkisstein, og dreypti yfir hann dreypifórn og hellti yfir hann olíu.

    35:15 Og Jakob nefndi staðinn, þar sem Guð talaði við hann, Betel.

    35:16 Þeir tóku sig upp frá Betel. En er þeir áttu skammt eftir ófarið til Efrata, tók Rakel léttasótt og kom hart niður.

    35:17 Og er hún kom svo hart niður í barnburðinum, sagði ljósmóðirin við hana: ,,Óttast þú ekki, því að nú eignast þú annan son.``

    35:18 Og er hún var í andlátinu, _ því að hún dó _, þá nefndi hún hann Benóní, en faðir hans nefndi hann Benjamín.

    35:19 Því næst andaðist Rakel og var jörðuð við veginn til Efrata, það er Betlehem.

    35:20 Jakob reisti minnismerki á leiði hennar. Þar er legsteinn Rakelar allt til þessa dags.

    35:21 Ísrael hélt áfram ferðinni og sló tjöldum sínum hinumegin við Mígdal Eder.

    35:22 Meðan Ísrael hafðist við í því byggðarlagi, bar svo við, að Rúben fór og lagðist með Bílu, hjákonu föður síns. Og Ísrael varð þess áskynja. Jakob átti tólf sonu.

    35:23 Synir Leu: Rúben, frumgetinn son Jakobs, Símeon, Leví, Júda, Íssakar og Sebúlon.

    35:24 Synir Rakelar: Jósef og Benjamín.

    35:25 Synir Bílu, þernu Rakelar: Dan og Naftalí.

    35:26 Synir Silpu, þernu Leu: Gað og Asser. Þetta eru synir Jakobs, sem honum fæddust í Mesópótamíu.

    35:27 Og Jakob kom til Ísaks föður síns í Mamre við Kirjat Arba, það er Hebron, þar sem Abraham og Ísak höfðu dvalist sem útlendingar.

    35:28 En dagar Ísaks voru hundrað og áttatíu ár.

    35:29 Og Ísak andaðist og dó og safnaðist til síns fólks, gamall og saddur lífdaga, og Esaú og Jakob synir hans jörðuðu hann.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine