Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - GENESIS 40

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    40:1 Eftir þetta varð sá atburður, að byrlari konungsins í Egyptalandi og bakarinn brutu á móti herra sínum, Egyptalandskonungi.

    40:2 Og Faraó reiddist báðum hirðmönnum sínum, yfirbyrlaranum og yfirbakaranum,

    40:3 og lét setja þá í varðhald í húsi lífvarðarforingjans, í myrkvastofuna, þar sem Jósef var í haldi.

    40:4 Og lífvarðarforinginn setti Jósef til þess að þjóna þeim, og voru þeir nú um hríð í varðhaldi.

    40:5 Þá dreymdi þá báða draum, byrlara og bakara konungsins í Egyptalandi, sem haldnir voru í myrkvastofunni, sinn drauminn hvorn sömu nóttina, og hafði hvor draumurinn sína þýðingu.

    40:6 Og er Jósef kom inn til þeirra um morguninn, sá hann að þeir voru óglaðir.

    40:7 Spurði hann þá hirðmenn Faraós, sem voru með honum í varðhaldi í húsi húsbónda hans, og mælti: ,,Hvers vegna eruð þið svo daprir í bragði í dag?``

    40:8 En þeir svöruðu honum: ,,Okkur hefir dreymt draum, og hér er enginn, sem geti ráðið hann.`` Þá sagði Jósef við þá: ,,Er það ekki Guðs að ráða drauma? Segið mér þó.``

    40:9 Þá sagði yfirbyrlarinn Jósef draum sinn og mælti við hann: ,,Mér þótti í svefninum sem vínviður stæði fyrir framan mig.

    40:10 Á vínviðinum voru þrjár greinar, og jafnskjótt sem hann skaut frjóöngum, spruttu blóm hans út og klasar hans báru fullvaxin vínber.

    40:11 En ég hélt á bikar Faraós í hendinni og tók vínberin og sprengdi þau í bikar Faraós og rétti svo bikarinn að Faraó.``

    40:12 Þá sagði Jósef við hann: ,,Ráðning draumsins er þessi: Þrjár vínviðargreinarnar merkja þrjá daga.

    40:13 Að þrem dögum liðnum mun Faraó hefja höfuð þitt og setja þig aftur inn í embætti þitt. Munt þú þá rétta Faraó bikarinn, eins og áður var venja, er þú varst byrlari hans.

    40:14 En minnstu mín, er þér gengur í vil, og gjör þá miskunn á mér að minnast á mig við Faraó, svo að þú megir frelsa mig úr þessu húsi.

    40:15 Því að mér var með leynd stolið úr landi Hebrea, og eigi hefi ég heldur hér neitt það til saka unnið, að ég yrði settur í þessa dýflissu.``

    40:16 En er yfirbakarinn sá, að ráðning hans var góð, sagði hann við Jósef: ,,Mig dreymdi líka, að ég bæri á höfðinu þrjár karfir með hveitibrauði.

    40:17 Og í efstu körfunni var alls konar sælgætisbrauð handa Faraó, og fuglarnir átu það úr körfunni á höfði mér.``

    40:18 Þá svaraði Jósef og mælti: ,,Ráðning draumsins er þessi: Þrjár karfirnar merkja þrjá daga.

    40:19 Að þrem dögum liðnum mun Faraó hefja höfuð þitt af þér og festa þig á gálga, og fuglarnir munu eta af þér hold þitt.``

    40:20 Og það bar til á þriðja degi, á afmælisdegi Faraós, að hann hélt öllum þjónum sínum veislu. Hóf hann þá upp höfuð yfirbyrlarans og höfuð yfirbakarans í viðurvist þjóna sinna.

    40:21 Setti hann yfirbyrlarann aftur í embætti hans, að hann mætti aftur bera Faraó bikarinn,

    40:22 en yfirbakarann lét hann hengja, eins og Jósef hafði ráðið drauminn fyrir þá.

    40:23 En eigi minntist yfirbyrlarinn Jósefs, heldur gleymdi honum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine