Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - HEBREWS 3

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    3:1 Bræður heilagir! Þér eruð hluttakar himneskrar köllunar. Gefið því gætur að Jesú, postula og æðsta presti játningar vorrar.

    3:2 Hann var trúr þeim, er hafði skipað hann, eins og Móse var það líka í öllu hans húsi.

    3:3 En hann er verður meiri dýrðar en Móse, eins og sá, er húsið gjörði, á meiri heiður en húsið sjálft.

    3:4 Sérhvert hús er gjört af einhverjum, en Guð er sá, sem allt hefur gjört.

    3:5 Móse var að sönnu trúr í öllu hans húsi, eins og þjónn, til vitnisburðar um það, sem átti að verða talað,

    3:6 en Kristur eins og sonur yfir húsi hans. Og hans hús erum vér, ef vér höldum djörfunginni og voninni, sem vér miklumst af.

    3:7 Því er það, eins og heilagur andi segir: Ef þér heyrið raust hans í dag,

    3:8 þá forherðið ekki hjörtu yðar, eins og í uppreisninni á degi freistingarinnar á eyðimörkinni;

    3:9 þar sem feður yðar freistuðu mín og reyndu mig, þótt þeir fengju að sjá verkin mín í fjörutíu ár.

    3:10 Þess vegna varð ég gramur kynslóð þessari og sagði: Án afláts villast þeir í hjörtum sínum. Þeir þekktu ekki vegu mína.

    3:11 Og ég sór í bræði minni: Eigi skulu þeir inn ganga til hvíldar minnar.

    3:12 Gætið þess, bræður, að enginn yðar búi yfir vondu vantrúar hjarta og falli frá lifanda Guði.

    3:13 Áminnið heldur hver annan hvern dag, á meðan enn heitir ,,í dag``, til þess að enginn yðar forherðist af táli syndarinnar.

    3:14 Því að vér erum orðnir hluttakar Krists, svo framarlega sem vér höldum staðfastlega allt til enda trausti voru, eins og það var að upphafi.

    3:15 Sagt er: ,,Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar eins og í uppreisninni`` _

    3:16 Hverjir voru þá þeir, sem heyrt höfðu og gjörðu þó uppreisn? Voru það ekki einmitt allir þeir, sem út höfðu farið af Egyptalandi fyrir tilstilli Móse?

    3:17 Og hverjum ,,var hann gramur í fjörutíu ár``? Var það ekki þeim, sem syndgað höfðu og báru beinin á eyðimörkinni?

    3:18 Og hverjum ,,sór hann, að eigi skyldu þeir ganga inn til hvíldar hans,`` nema hinum óhlýðnu?

    3:19 Vér sjáum, að sakir vantrúar fengu þeir eigi gengið inn.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine