Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - ISAIAH 3

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    3:1 Sjá, hinn alvaldi, Drottinn allsherjar sviptir Jerúsalem og Júda hverri stoð og styttu, allri stoð brauðs og allri stoð vatns,

    3:2 hetjum og hermönnum, dómendum og spámönnum, spásagnamönnum og öldungum,

    3:3 höfuðsmönnum, virðingamönnum, ráðgjöfum, hugvitsmönnum og kunnáttumönnum.

    3:4 Ég vil fá þeim ungmenni fyrir höfðingja, og smásveinar skulu drottna yfir þeim.

    3:5 Á meðal fólksins skal maður manni þrengja. Ungmennið mun hrokast upp í móti öldungnum og skrílmennið upp í móti tignarmanninum.

    3:6 Þegar einhver þrífur í bróður sinn í húsi föður síns og segir: ,,Þú átt yfirhöfn, ver þú stjórnari vor, og þetta fallandi ríki skal vera undir þinni hendi,``

    3:7 þá mun hann á þeim degi hefja upp raust sína og segja: ,,Ég vil ekki vera sáralæknir, og í húsi mínu er hvorki til brauð né klæði. Gjörið mig ekki að þjóðstjóra.``

    3:8 Jerúsalem er að hruni komin og Júda er að falla, af því að tunga þeirra og athæfi var gegn Drottni til þess að storka dýrðaraugum hans.

    3:9 Andlitssvipur þeirra vitnar í gegn þeim, og þeir gjöra syndir sínar heyrinkunnar, eins og Sódóma, og leyna þeim ekki. Vei þeim, því að þeir hafa bakað sjálfum sér ógæfu.

    3:10 Heill hinum réttlátu, því að þeim mun vel vegna, því að þeir munu njóta ávaxtar verka sinna.

    3:11 Vei hinum óguðlega, honum mun illa vegna, því að honum mun goldið verða eftir tilgjörðum hans.

    3:12 Harðstjóri þjóðar minnar er drengur, og konur drottna yfir henni. Þjóð mín, leiðtogar þínir leiða þig afleiðis og villa fyrir þér veginn.

    3:13 Drottinn gengur fram til að sækja sökina, hann stendur frammi til að dæma þjóðirnar.

    3:14 Drottinn gengur fram til dóms í gegn öldungum lýðs síns og höfðingjum hans: ,,Það eruð þér, sem hafið etið upp víngarðinn. Rændir fjármunir fátæklinganna eru í húsum yðar.

    3:15 Hvernig getið þér fengið af yður að fótum troða lýð minn og merja sundur andlit hinna snauðu,`` _ segir hinn alvaldi, Drottinn allsherjar.

    3:16 Drottinn sagði: Sökum þess að dætur Síonar eru drembilátar og ganga hnakkakerrtar, gjóta út undan sér augunum og tifa í göngunni og láta glamra í ökklaspennunum,

    3:17 þá mun Drottinn gjöra kláðugan hvirfil Síonar dætra og gjöra bera blygðan þeirra.

    3:18 Á þeim degi mun Drottinn burt nema skart þeirra: ökklaspennurnar, ennisböndin, hálstinglin,

    3:19 eyrnaperlurnar, armhringana, andlitsskýlurnar,

    3:20 motrana, ökklafestarnar, beltin, ilmbaukana, töfraþingin,

    3:21 fingurgullin, nefhringana,

    3:22 glitklæðin, nærklæðin, möttlana og pyngjurnar,

    3:23 speglana, líndúkana, vefjarhettina og slæðurnar.

    3:24 Koma mun ódaunn fyrir ilm, reiptagl fyrir belti, skalli fyrir hárfléttur, aðstrengdur hærusekkur í stað skrautskikkju, brennimerki í stað fegurðar.

    3:25 Menn þínir munu fyrir sverði falla og kappar þínir í orustu.

    3:26 Hlið borgarinnar munu kveina og harma, og hún sjálf mun sitja einmana á jörðinni.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine