Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - ISAIAH 39

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    39:1 Um þær mundir sendi Meródak Baladan Baladansson, konungur í Babýlon, bréf og gjafir til Hiskía, því að hann hafði frétt, að hann hefði verið sjúkur, en væri nú aftur heill orðinn.

    39:2 Hiskía fagnaði komu þeirra og sýndi þeim féhirslu sína, silfrið og gullið, ilmjurtirnar og hina dýru olíu og allt vopnabúr sitt og allt, sem til var í fjársjóðum hans. Var enginn sá hlutur í höll Hiskía eða nokkurs staðar í ríki hans, að eigi sýndi hann þeim.

    39:3 Þá kom Jesaja spámaður til Hiskía konungs og sagði við hann: ,,Hvert var erindi þessara manna, og hvaðan eru þeir til þín komnir?`` Hiskía svaraði: ,,Af fjarlægu landi eru þeir til mín komnir, frá Babýlon.``

    39:4 Þá sagði hann: ,,Hvað sáu þeir í höll þinni?`` Hiskía svaraði: ,,Allt, sem í höll minni er, hafa þeir séð. Enginn er sá hlutur í fjársjóðum mínum, að eigi hafi ég sýnt þeim.``

    39:5 Þá sagði Jesaja við Hiskía: ,,Heyr þú orð Drottins allsherjar.

    39:6 Sjá, þeir dagar munu koma, að allt, sem er í höll þinni, og það, sem feður þínir hafa saman dregið allt til þessa dags, mun flutt verða til Babýlon. Ekkert skal eftir verða _ segir Drottinn.

    39:7 Og nokkrir af sonum þínum, sem af þér munu koma og þú munt geta, munu teknir verða og gjörðir að hirðsveinum í höll konungsins í Babýlon.``

    39:8 En Hiskía sagði við Jesaja: ,,Gott er það orð Drottins, er þú hefir talað.`` Því að hann hugsaði: ,,Farsæld og friður helst þó meðan ég lifi.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine