Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JEREMIAH 28

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    28:1 Þetta ár _ í upphafi ríkisstjórnar Sedekía konungs í Júda, fjórða árið, í fimmta mánuðinum _ sagði Hananja spámaður Assúrsson frá Gíbeon við mig í musteri Drottins í viðurvist prestanna og alls lýðsins:

    28:2 ,,Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Ég brýt sundur ok Babelkonungs!

    28:3 Áður en tvö ár eru liðin, flyt ég aftur á þennan stað öll áhöldin úr musteri Drottins, þau er Nebúkadnesar Babelkonungur tók á þessum stað og flutti til Babýlon.

    28:4 Jekonja Jójakímsson, Júdakonung, og alla hina herleiddu úr Júda, þá er komnir eru til Babýlon, flyt ég og aftur á þennan stað _ segir Drottinn _ því að ég brýt sundur ok Babelkonungs!``

    28:5 Þá talaði Jeremía spámaður til Hananja spámanns í viðurvist prestanna og alls lýðsins, sem stóð í musteri Drottins,

    28:6 og Jeremía spámaður mælti: ,,Verði svo! Drottinn gjöri það! Drottinn láti orð þín, er þú hefir spáð, rætast, svo að hann flytji aftur frá Babýlon á þennan stað áhöldin úr musteri Drottins og alla hina herleiddu!

    28:7 En heyr þessi orð, sem ég kunngjöri þér og öllum lýðnum:

    28:8 Þeir spámenn, sem komið hafa fram á undan mér og á undan þér frá alda öðli, þeir spáðu voldugum löndum og stórum konungsríkjum ófriði, óhamingju og drepsótt.

    28:9 En sá spámaður, sem spáir heill, _ ef orð hans rætast, þá þekkist á því sá spámaður, er Drottinn hefir sannarlega sent.``

    28:10 Þá tók Hananja spámaður okið af hálsi Jeremía spámanns og braut það sundur.

    28:11 Síðan mælti Hananja í viðurvist alls lýðsins á þessa leið: ,,Svo segir Drottinn: Eins skal ég sundurbrjóta ok Nebúkadnesars Babelkonungs áður tvö ár eru liðin af hálsi allra þjóða!`` En Jeremía spámaður fór leiðar sinnar.

    28:12 En orð Drottins kom til Jeremía, eftir að Hananja spámaður hafði sundurbrotið okið af hálsi Jeremía spámanns:

    28:13 Far og seg við Hananja: Svo segir Drottinn: Tré-ok hefir þú sundurbrotið, en ég vil í þess stað gjöra járn-ok!

    28:14 Því að svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Járnok legg ég á háls allra þessara þjóða, til þess að þær verði þegnskyldar Nebúkadnesar Babelkonungi og þjóni honum, já, jafnvel dýr merkurinnar gef ég honum.

    28:15 Þá sagði Jeremía spámaður við Hananja spámann: ,,Heyr þú, Hananja! Drottinn hefir ekki sent þig, og þó hefir þú ginnt lýð þennan til að reiða sig á lygar!

    28:16 Fyrir því segir Drottinn svo: Sjá, ég kippi þér burt af jörðinni. Á þessu ári skalt þú deyja, því að þú hefir prédikað fráhvarf frá Drottni.``

    28:17 Og Hananja spámaður dó þetta ár, í sjöunda mánuðinum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine