Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JEREMIAH 47

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    47:1 Þetta birtist Jeremía spámanni sem orð Drottins um Filista, áður en Faraó vann Gasa:

    47:2 Svo segir Drottinn: Sjá, vatn kemur streymandi úr norðri og verður að á, sem flæðir yfir. Það flóir yfir landið og það, sem í því er, yfir borgir og íbúa þeirra, svo að menn æpa hátt og allir íbúar landsins hljóða

    47:3 vegna dynsins af hófastappi hesta hans, vegna skröltsins í vögnum hans og glymsins í hjólum hans. Feðurnir líta ekki við til barna sinna af því að hendur þeirra eru orðnar lémagna

    47:4 vegna dagsins, sem kominn er til að eyða öllum Filistum, til að uppræta fyrir Týrus og Sídon sérhvern hjálparmann sem enn er eftir. Því að Drottinn mun eyða Filistum, leifum Kaftór strandar.

    47:5 Gasa er orðin sköllótt, Askalon í eyði lögð; þér leifar Anakíta, hversu lengi ætlið þér að rista á yður skinnsprettur?

    47:6 Æ, sverð Drottins, hve lengi ætlar þú að vera hvíldarlaust? Drag þig aftur í slíðrar þínar, still þig og hljóðna!

    47:7 Hvernig ætti það að hvílast, þar sem Drottinn hefir gefið því skipun? Til Askalon og til strandar hafsins, _ þangað hefir hann ætlað því för.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine