Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOB 1

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    1:1 Einu sinni var maður í Ús-landi. Hann hét Job. Hann var maður ráðvandur og réttlátur, guðhræddur og grandvar.

    1:2 Hann átti sjö sonu og þrjár dætur,

    1:3 og aflafé hans var sjö þúsund sauða, þrjú þúsund úlfalda, fimm hundruð sameyki nauta, fimm hundruð ösnur og mjög mörg hjú, og var maður sá meiri öllum austurbyggjum.

    1:4 Synir hans voru vanir að fara og búa veislu heima hjá sér, hver sinn dag, og þeir buðu systrum sínum þremur að eta og drekka með sér.

    1:5 En er veisludagar voru liðnir, sendi Job eftir þeim og helgaði þau. Reis hann árla morguns og fórnaði brennifórn fyrir hvert þeirra. Því að Job hugsaði: ,,Vera má að börn mín hafi syndgað og formælt Guði í hjarta sínu.`` Svo gjörði Job alla daga.

    1:6 Nú bar svo til einn dag, að synir Guðs komu til þess að ganga fyrir Drottin, og kom Satan og meðal þeirra.

    1:7 Mælti þá Drottinn til Satans: ,,Hvaðan kemur þú?`` Satan svaraði Drottni og sagði: ,,Ég hefi verið að reika um jörðina og arka fram og aftur um hana.``

    1:8 Og Drottinn mælti til Satans: ,,Veittir þú athygli þjóni mínum Job? því að enginn er hans líki á jörðu, maður ráðvandur og réttlátur, guðhræddur og grandvar.``

    1:9 Og Satan svaraði Drottni og sagði: ,,Ætli Job óttist Guð fyrir ekki neitt? Hefir þú ekki lagt skjólgarð um hann og hús hans og allt, sem hann á, hringinn í kring?

    1:10 Handaverk hans hefir þú blessað, og fénaður hans breiðir sig um landið.

    1:11 En rétt þú út hönd þína og snert þú allt, sem hann á, og mun hann þá formæla þér upp í opið geðið.``

    1:12 Þá mælti Drottinn til Satans: ,,Sjá, veri allt, sem hann á, á þínu valdi, en á sjálfan hann mátt þú ekki leggja hönd þína.`` Gekk Satan þá burt frá augliti Drottins.

    1:13 Nú bar svo til einn dag, er synir hans og dætur átu og drukku vín í húsi elsta bróður síns,

    1:14 að sendimaður kom til Jobs og sagði: ,,Nautin voru að plægja og ösnurnar voru á beit rétt hjá þeim.

    1:15 Gjörðu þá Sabear athlaup og tóku þau, en sveinana drápu þeir. Ég einn komst undan til að flytja þér tíðindin.``

    1:16 En áður en hann hafði lokið máli sínu, kom annar og sagði: ,,Eldur Guðs féll af himni og kveikti í hjörðinni og sveinunum og eyddi þeim. Ég einn komst undan til að flytja þér tíðindin.``

    1:17 En áður en sá hafði lokið máli sínu, kom annar og sagði: ,,Kaldear fylktu þremur flokkum, gjörðu áhlaup á úlfaldana og tóku þá, en sveinana drápu þeir. Ég einn komst undan til að flytja þér tíðindin.``

    1:18 Áður en sá hafði lokið máli sínu, kom annar og sagði: ,,Synir þínir og dætur átu og drukku vín í húsi elsta bróður síns.

    1:19 Kom þá skyndilega fellibylur austan yfir eyðimörkina og lenti á fjórum hornum hússins, svo að það féll ofan yfir sveinana, og þeir dóu. Ég einn komst undan til að flytja þér tíðindin.``

    1:20 Þá stóð Job upp og reif skikkju sína og skar af sér hárið, og féll til jarðar, tilbað

    1:21 og sagði: Nakinn kom ég af móðurskauti og nakinn mun ég aftur þangað fara. Drottinn gaf og Drottinn tók, lofað veri nafn Drottins.

    1:22 Í öllu þessu syndgaði Job ekki, og ekki átaldi hann Guð heimskulega.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine