Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOHN 11

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    11:1 Maður sá var sjúkur, er Lasarus hét, frá Betaníu, þorpi Maríu og Mörtu, systur hennar.

    11:2 En María var sú er smurði Drottin smyrslum og þerraði fætur hans með hári sínu. Bróðir hennar, Lasarus, var sjúkur.

    11:3 Nú gjörðu systurnar Jesú orðsending: ,,Herra, sá sem þú elskar, er sjúkur.``

    11:4 Þegar hann heyrði það, mælti hann: ,,Þessi sótt er ekki banvæn, heldur Guði til dýrðar, að Guðs sonur vegsamist hennar vegna.``

    11:5 Jesús elskaði þau Mörtu og systur hennar og Lasarus.

    11:6 Þegar hann frétti, að hann væri veikur, var hann samt um kyrrt á sama stað í tvo daga.

    11:7 Að þeim liðnum sagði hann við lærisveina sína: ,,Förum aftur til Júdeu.``

    11:8 Lærisveinarnir sögðu við hann: ,,Rabbí, nýlega voru Gyðingar að því komnir að grýta þig, og þú ætlar þangað aftur?``

    11:9 Jesús svaraði: ,,Eru ekki stundir dagsins tólf? Sá sem gengur um að degi, hrasar ekki, því hann sér ljós þessa heims.

    11:10 En sá sem gengur um að nóttu, hrasar, því hann hefur ekki ljósið í sér.``

    11:11 Þetta mælti hann, og sagði síðan við þá: ,,Lasarus, vinur vor, er sofnaður. En nú fer ég að vekja hann.``

    11:12 Þá sögðu lærisveinar hans: ,,Herra, ef hann er sofnaður, batnar honum.``

    11:13 En Jesús talaði um dauða hans. Þeir héldu hins vegar, að hann ætti við venjulegan svefn.

    11:14 Þá sagði Jesús þeim berum orðum: ,,Lasarus er dáinn,

    11:15 og yðar vegna fagna ég því, að ég var þar ekki, til þess að þér skuluð trúa. En förum nú til hans.``

    11:16 Tómas, sem nefndist tvíburi, sagði þá við hina lærisveinana: ,,Vér skulum fara líka til að deyja með honum.``

    11:17 Þegar Jesús kom, varð hann þess vís, að Lasarus hafði verið fjóra daga í gröfinni.

    11:18 Betanía var nálægt Jerúsalem, hér um bil fimmtán skeiðrúm þaðan.

    11:19 Margir Gyðingar voru komnir til Mörtu og Maríu að hugga þær eftir bróðurmissinn.

    11:20 Þegar Marta frétti, að Jesús væri að koma, fór hún á móti honum, en María sat heima.

    11:21 Marta sagði við Jesú: ,,Herra, ef þú hefðir verið hér, væri bróðir minn ekki dáinn.

    11:22 En einnig nú veit ég, að Guð mun gefa þér hvað sem þú biður hann um.``

    11:23 Jesús segir við hana: ,,Bróðir þinn mun upp rísa.``

    11:24 Marta segir: ,,Ég veit, að hann rís upp í upprisunni á efsta degi.``

    11:25 Jesús mælti: ,,Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.

    11:26 Og hver sem lifir og trúir á mig, mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?``

    11:27 Hún segir við hann: ,,Já, herra. Ég trúi, að þú sért Kristur, Guðs sonur, sem koma skal í heiminn.``

    11:28 Að svo mæltu fór hún, kallaði á Maríu systur sína og sagði í hljóði: ,,Meistarinn er hér og vill finna þig.``

    11:29 Þegar María heyrði þetta, reis hún skjótt á fætur og fór til hans.

    11:30 En Jesús var ekki enn kominn til þorpsins, heldur var hann enn á þeim stað, þar sem Marta hafði mætt honum.

    11:31 Gyðingarnir, sem voru heima hjá Maríu að hugga hana, sáu, að hún stóð upp í skyndi og gekk út, og fóru þeir á eftir henni. Þeir hugðu, að hún hefði farið til grafarinnar að gráta þar.

    11:32 María kom þangað, sem Jesús var, og er hún sá hann, féll hún honum til fóta og sagði við hann: ,,Herra, ef þú hefðir verið hér, væri bróðir minn ekki dáinn.``

    11:33 Þegar Jesús sá hana gráta og Gyðingana gráta, sem með henni komu, komst hann við í anda og varð hrærður mjög

    11:34 og sagði: ,,Hvar hafið þér lagt hann?`` Þeir sögðu: ,,Herra, kom þú og sjá.``

    11:35 Þá grét Jesús.

    11:36 Gyðingar sögðu: ,,Sjá, hversu hann hefur elskað hann!``

    11:37 En nokkrir þeirra sögðu: ,,Gat ekki sá maður, sem opnaði augu hins blinda, einnig varnað því, að þessi maður dæi?``

    11:38 Jesús varð aftur hrærður mjög og fór til grafarinnar. Hún var hellir og steinn fyrir.

    11:39 Jesús segir: ,,Takið steininn frá!`` Marta, systir hins dána, segir við hann: ,,Herra, það er komin nálykt af honum, það er komið á fjórða dag.``

    11:40 Jesús segir við hana: ,,Sagði ég þér ekki: ,Ef þú trúir, munt þú sjá dýrð Guðs`?``

    11:41 Nú var steinninn tekinn frá. En Jesús hóf upp augu sín og mælti: ,,Faðir, ég þakka þér, að þú hefur bænheyrt mig.

    11:42 Ég vissi að sönnu, að þú heyrir mig ávallt, en ég sagði þetta vegna mannfjöldans, sem stendur hér umhverfis, til þess að þeir trúi, að þú hafir sent mig.``

    11:43 Að svo mæltu hrópaði hann hárri röddu: ,,Lasarus, kom út!``

    11:44 Hinn dáni kom út vafinn líkblæjum á fótum og höndum og með sveitadúk bundinn um andlitið. Jesús segir við þá: ,,Leysið hann og látið hann fara.``

    11:45 Margir Gyðingar, sem komnir voru til Maríu og sáu það, sem Jesús gjörði, tóku nú að trúa á hann.

    11:46 En nokkrir þeirra fóru til farísea og sögðu þeim, hvað hann hafði gjört.

    11:47 Æðstu prestarnir og farísearnir kölluðu þá saman ráðið og sögðu: ,,Hvað eigum vér að gjöra? Þessi maður gjörir mörg tákn.

    11:48 Ef vér leyfum honum að halda svo áfram, munu allir trúa á hann, og þá koma Rómverjar og taka bæði helgidóm vorn og þjóð.``

    11:49 En einn þeirra, Kaífas, sem það ár var æðsti prestur, sagði við þá: ,,Þér vitið ekkert

    11:50 og hugsið ekkert um það, að yður er betra, að einn maður deyi fyrir lýðinn, en að öll þjóðin tortímist.``

    11:51 Þetta sagði hann ekki af sjálfum sér, en þar sem hann var æðsti prestur það ár, gat hann spáð því, að Jesús mundi deyja fyrir þjóðina,

    11:52 og ekki fyrir þjóðina eina, heldur og til að safna saman í eitt dreifðum börnum Guðs.

    11:53 Upp frá þeim degi voru þeir ráðnir í að taka hann af lífi.

    11:54 Jesús gekk því ekki lengur um meðal Gyðinga á almannafæri, heldur fór hann þaðan til staðar í grennd við eyðimörkina, í þorp sem heitir Efraím, og þar dvaldist hann með lærisveinum sínum.

    11:55 Nú nálguðust páskar Gyðinga, og margir fóru úr sveitinni upp til Jerúsalem fyrir páskana til að hreinsa sig.

    11:56 Menn leituðu að Jesú og sögðu sín á milli í helgidóminum: ,,Hvað haldið þér? Skyldi hann ekki koma til hátíðarinnar?``

    11:57 En æðstu prestar og farísear höfðu gefið út skipun um það, að ef nokkur vissi hvar hann væri, skyldi hann segja til, svo að þeir gætu tekið hann.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine