Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOHN 13

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    13:1 Hátíð páskanna var að ganga í garð. Jesús vissi, að stund hans var kominn og að hann færi burt úr þessum heimi til föðurins. Hann hafði elskað sína, þá sem í heiminum voru. Hann elskaði þá, uns yfir lauk.

    13:2 Kvöldmáltíð stóð yfir. Djöfullinn hafði þegar blásið því í brjóst Júdasi Símonarsyni Ískaríots að svíkja Jesú.

    13:3 Jesús vissi, að faðirinn hafði lagt allt í hendur honum, að hann var frá Guði kominn og var að fara til Guðs.

    13:4 Hann stóð upp frá máltíðinni, lagði af sér yfirhöfnina, tók líndúk og batt um sig.

    13:5 Síðan hellti hann vatni í mundlaug og tók að þvo fætur lærisveinanna og þerra með líndúknum, sem hann hafði um sig.

    13:6 Hann kemur þá að Símoni Pétri, sem segir við hann: ,,Herra, ætlar þú að þvo mér um fæturna?``

    13:7 Jesús svaraði: ,,Nú skilur þú ekki, hvað ég er að gjöra, en seinna muntu skilja það.``

    13:8 Pétur segir við hann: ,,Aldrei að eilífu skaltu þvo fætur mína.`` Jesús svaraði: ,,Ef ég þvæ þér ekki, áttu enga samleið með mér.``

    13:9 Símon Pétur segir við hann: ,,Herra, ekki aðeins fætur mína, líka hendurnar og höfuðið.``

    13:10 Jesús segir við hann: ,,Sá sem laugast hefur, þarf ekki að þvost nema um fætur. Hann er allur hreinn. Og þér eruð hreinir, þó ekki allir.``

    13:11 Hann vissi, hver mundi svíkja hann, og því sagði hann: ,,Þér eruð ekki allir hreinir.``

    13:12 Þegar hann hafði þvegið fætur þeirra, tekið yfirhöfn sína og setst aftur niður, sagði hann við þá: ,,Skiljið þér, hvað ég hef gjört við yður?

    13:13 Þér kallið mig meistara og herra, og þér mælið rétt, því það er ég.

    13:14 Fyrst ég, sem er herra og meistari, hef nú þvegið yður um fæturna, þá ber yður einnig að þvo hver annars fætur.

    13:15 Ég hef gefið yður eftirdæmi, að þér breytið eins og ég breytti við yður.

    13:16 Sannlega, sannlega segi ég yður: Þjónn er ekki meiri en herra hans né sendiboði meiri þeim, er sendi hann.

    13:17 Þér vitið þetta, og þér eruð sælir, ef þér breytið eftir því.

    13:18 Ég tala ekki um yður alla. Ég veit, hverja ég hef útvalið. En ritningin verður að rætast: ,Sá sem etur brauð mitt, lyftir hæli sínum móti mér.`

    13:19 Ég segi yður þetta núna, áður en það verður, svo að þér trúið, þegar það er orðið, að ég er sá sem ég er.

    13:20 Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem tekur við þeim, sem ég sendi, hann tekur við mér, og sá sem tekur við mér, tekur við þeim er sendi mig.``

    13:21 Þegar Jesús hafði sagt þetta, varð honum mjög þungt um hjarta og hann sagði beinum orðum: ,,Sannlega, sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig.``

    13:22 Lærisveinarnir litu hver á annan og skildu ekki, við hvern hann ætti.

    13:23 Sá lærisveinn Jesú, sem hann elskaði, sat næstur honum.

    13:24 Símon Pétur benti honum og bað hann spyrja, hver sá væri, sem Jesús talaði um.

    13:25 Hann laut þá að Jesú og spurði: ,,Herra, hver er það?``

    13:26 Jesús svaraði: ,,Það er sá sem ég fæ bita þann, er ég dýfi nú í.`` Þá dýfði hann í bitanum, tók hann og fékk Júdasi Símonarsyni Ískaríots.

    13:27 Og eftir þann bita fór Satan inn í hann. Jesús segir við hann: ,,Það sem þú gjörir, það gjör þú skjótt!``

    13:28 En enginn þeirra, sem sátu til borðs, vissi til hvers hann sagði þetta við hann.

    13:29 En af því að Júdas hafði pyngjuna, héldu sumir þeirra, að Jesús hefði sagt við hann: ,,Kauptu það, sem vér þurfum til hátíðarinnar,`` _ eða að hann skyldi gefa eitthvað fátækum.

    13:30 Þá er hann hafði tekið við bitanum, gekk hann jafnskjótt út. Þá var nótt.

    13:31 Þegar hann var farinn út, sagði Jesús: ,,Nú er Mannssonurinn dýrlegur orðinn, og Guð er orðinn dýrlegur í honum.

    13:32 Fyrst Guð er orðinn dýrlegur í honum, mun Guð og gjöra hann dýrlegan í sér, og skjótt mun hann gjöra hann dýrlegan.

    13:33 Börnin mín, stutta stund verð ég enn með yður. Þér munuð leita mín, og eins og ég sagði Gyðingum, segi ég yður nú: Þangað sem ég fer, getið þér ekki komist.

    13:34 Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan.

    13:35 Á því munu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars.``

    13:36 Símon Pétur segir við hann: ,,Herra, hvert ferðu?`` Jesús svaraði: ,,Þú getur ekki fylgt mér nú þangað sem ég fer, en síðar muntu fylgja mér.``

    13:37 Pétur segir við hann: ,,Herra, hví get ég ekki fylgt þér nú? Ég vil leggja líf mitt í sölurnar fyrir þig.``

    13:38 Jesús svaraði: ,,Viltu leggja líf þitt í sölurnar fyrir mig? Sannlega, sannlega segi ég þér: Ekki mun hani gala fyrr en þú hefur afneitað mér þrisvar.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine