Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOHN 9

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    9:1 Á leið sinni sá hann mann, sem var blindur frá fæðingu.

    9:2 Lærisveinar hans spurðu hann: ,,Rabbí, hvort hefur þessi maður syndgað eða foreldrar hans, fyrst hann fæddist blindur?``

    9:3 Jesús svaraði: ,,Hvorki er það af því, að hann hafi syndgað eða foreldrar hans, heldur til þess að verk Guðs verði opinber á honum.

    9:4 Oss ber að vinna verk þess, er sendi mig, meðan dagur er. Það kemur nótt, þegar enginn getur unnið.

    9:5 Meðan ég er í heiminum, er ég ljós heimsins.``

    9:6 Að svo mæltu skyrpti hann á jörðina, gjörði leðju úr munnvatninu, strauk leðju á augu hans

    9:7 og sagði við hann: ,,Farðu og þvoðu þér í lauginni Sílóam.`` (Sílóam þýðir sendur.) Hann fór og þvoði sér og kom sjáandi.

    9:8 Nágrannar hans og þeir, sem höfðu áður séð hann ölmusumann, sögðu þá: ,,Er þetta ekki sá, er setið hefur og beðið sér ölmusu?``

    9:9 Sumir sögðu: ,,Sá er maðurinn,`` en aðrir sögðu: ,,Nei, en líkur er hann honum.`` Sjálfur sagði hann: ,,Ég er sá.``

    9:10 Þá sögðu þeir við hann: ,,Hvernig opnuðust augu þín?``

    9:11 Hann svaraði: ,,Maður að nafni Jesús gjörði leðju og smurði á augu mín og sagði mér að fara til Sílóam og þvo mér. Ég fór og fékk sjónina, þegar ég var búinn að þvo mér.``

    9:12 Þeir sögðu við hann: ,,Hvar er hann?`` Hann svaraði: ,,Það veit ég ekki.``

    9:13 Þeir fara til faríseanna með manninn, sem áður var blindur.

    9:14 En þá var hvíldardagur, þegar Jesús bjó til leðjuna og opnaði augu hans.

    9:15 Farísearnir spurðu hann nú líka, hvernig hann hefði fengið sjónina. Hann svaraði þeim: ,,Hann lagði leðju á augu mín, ég þvoði mér, og nú sé ég.``

    9:16 Þá sögðu nokkrir farísear: ,,Þessi maður er ekki frá Guði, fyrst hann heldur ekki hvíldardaginn.`` Aðrir sögðu: ,,Hvernig getur syndugur maður gjört þvílík tákn?`` Og ágreiningur varð með þeim.

    9:17 Þá segja þeir aftur við hinn blinda: ,,Hvað segir þú um hann, fyrst hann opnaði augu þín?`` Hann sagði: ,,Hann er spámaður.``

    9:18 Gyðingar trúðu því ekki, að hann, sem sjónina fékk, hefði verið blindur, og kölluðu fyrst á foreldra hans

    9:19 og spurðu þá: ,,Er þetta sonur ykkar, sem þið segið að hafi fæðst blindur? Hvernig er hann þá orðinn sjáandi?``

    9:20 Foreldrar hans svöruðu: ,,Við vitum, að þessi maður er sonur okkar og að hann fæddist blindur.

    9:21 En hvernig hann er nú orðinn sjáandi, vitum við ekki, né heldur vitum við, hver opnaði augu hans. Spyrjið hann sjálfan. Hann hefur aldur til. Hann getur svarað fyrir sig.``

    9:22 Þetta sögðu foreldrar hans af ótta við Gyðinga. Því Gyðingar höfðu þegar samþykkt, að ef nokkur játaði, að Jesús væri Kristur, skyldi hann samkundurækur.

    9:23 Vegna þessa sögðu foreldrar hans: ,,Hann hefur aldur til, spyrjið hann sjálfan.``

    9:24 Nú kölluðu þeir í annað sinn á manninn, sem blindur hafði verið, og sögðu við hann: ,,Gef þú Guði dýrðina. Vér vitum, að þessi maður er syndari.``

    9:25 Hann svaraði: ,,Ekki veit ég, hvort hann er syndari. En eitt veit ég, að ég, sem var blindur, er nú sjáandi.``

    9:26 Þá sögðu þeir við hann: ,,Hvað gjörði hann við þig? Hvernig opnaði hann augu þín?``

    9:27 Hann svaraði þeim: ,,Ég er búinn að segja yður það, og þér hlustuðuð ekki á það. Hví viljið þér heyra það aftur? Viljið þér líka verða lærisveinar hans?``

    9:28 Þeir atyrtu hann og sögðu: ,,Þú ert lærisveinn hans, vér erum lærisveinar Móse.

    9:29 Vér vitum, að Guð talaði við Móse, en um þennan vitum vér ekki, hvaðan hann er.``

    9:30 Maðurinn svaraði þeim: ,,Þetta er furðulegt, að þér vitið ekki, hvaðan hann er, og þó opnaði hann augu mín.

    9:31 Vér vitum, að Guð heyrir ekki syndara. En ef einhver er guðrækinn og gjörir vilja hans, þann heyrir hann.

    9:32 Frá alda öðli hefur ekki heyrst, að nokkur hafi opnað augu þess, sem blindur var borinn.

    9:33 Ef þessi maður væri ekki frá Guði, gæti hann ekkert gjört.``

    9:34 Þeir svöruðu honum: ,,Þú ert syndum vafinn frá fæðingu og ætlar að kenna oss!`` Og þeir ráku hann út.

    9:35 Jesús heyrði, að þeir hefðu rekið hann út. Hann fann hann og sagði við hann: ,,Trúir þú á Mannssoninn?``

    9:36 Hinn svaraði: ,,Herra, hver er sá, að ég megi trúa á hann?``

    9:37 Jesús sagði við hann: ,,Þú hefur séð hann, hann er sá sem er nú að tala við þig.``

    9:38 En hann sagði: ,,Ég trúi, herra,`` og féll fram fyrir honum.

    9:39 Jesús sagði: ,,Til dóms er ég kominn í þennan heim, svo að blindir sjái og hinir sjáandi verði blindir.``

    9:40 Þetta heyrðu þeir farísear, sem með honum voru, og spurðu: ,,Erum vér þá líka blindir?``

    9:41 Jesús sagði við þá: ,,Ef þér væruð blindir, væruð þér án sakar. En nú segist þér vera sjáandi, því varir sök yðar.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine