Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JOSHUA 12

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    12:1 Þessir eru konungar landsins, þeir er Ísraelsmenn unnu sigur á og tóku lönd af hinumegin Jórdanar, austanmegin, frá Arnoná til Hermonfjalls og allt sléttlendið austanmegin:

    12:2 Síhon, Amorítakonungur, sem bjó í Hesbon og réð landi frá Aróer, sem liggur á bakka Arnonár, og dalnum miðjum og hálfu Gíleað að Jabboká, sem er á landamærum Ammóníta,

    12:3 og sléttlendinu að Genesaretvatni að austanverðu og að vatninu á sléttlendinu, Saltasjó, að austanverðu, suður undir Bet Jesímót, og til suðurs að Pisgahlíðum.

    12:4 Sömuleiðis land Ógs, konungs í Basan, sem var einn þeirra Refaíta, er eftir voru, og bjó í Astarót og Edreí

    12:5 og réð yfir Hermonfjöllum, Salka og öllu Basan, að landamærum Gesúra og Maakatíta, og yfir hálfu Gíleað, að landamærum Síhons, konungs í Hesbon.

    12:6 Móse, þjónn Drottins, og Ísraelsmenn höfðu unnið sigur á þeim, og Móse, þjónn Drottins, hafði gefið Rúbenítum, Gaðítum og hálfri ættkvísl Manasse landið til eignar.

    12:7 Þessir eru konungar landsins, þeir er Jósúa og Ísraelsmenn unnu sigur á fyrir vestan Jórdan, frá Baal Gað í Líbanonsdal til Skallabergs, sem liggur upp til Seír, _ en landið gaf Jósúa ættkvíslum Ísraels til eignar eftir skiptingu þeirra _,

    12:8 í fjalllendinu, á láglendinu, á sléttlendinu, í fjallahlíðunum, í eyðimörkinni og í suðurlandinu, _ land Hetíta, Amoríta, Kanaaníta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta:

    12:9 Konungurinn í Jeríkó einn, konungurinn í Aí, sem er hjá Betel, einn,

    12:10 konungurinn í Jerúsalem einn, konungurinn í Hebron einn,

    12:11 konungurinn í Jarmút einn, konungurinn í Lakís einn,

    12:12 konungurinn í Eglon einn, konungurinn í Geser einn,

    12:13 konungurinn í Debír einn, konungurinn í Geder einn,

    12:14 konungurinn í Horma einn, konungurinn í Arad einn,

    12:15 konungurinn í Líbna einn, konungurinn í Adúllam einn,

    12:16 konungurinn í Makeda einn, konungurinn í Betel einn,

    12:17 konungurinn í Tappúa einn, konungurinn í Hefer einn,

    12:18 konungurinn í Afek einn, konungurinn í Saron einn,

    12:19 konungurinn í Madón einn, konungurinn í Hasór einn,

    12:20 konungurinn í Simrón Meróm einn, konungurinn í Aksaf einn,

    12:21 konungurinn í Taanak einn, konungurinn í Megíddó einn,

    12:22 konungurinn í Kedes einn, konungurinn í Jokneam hjá Karmel einn,

    12:23 konungurinn í Dór í Dórshæðum einn, konungur heiðingjanna í Gilgal einn,

    12:24 konungurinn í Tirsa einn, _ alls þrjátíu og einn konungur.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine