Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JUDGES 12

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    12:1 Efraímsmönnum var stefnt saman. Þeir héldu í norður og sögðu við Jefta: ,,Hví hefir þú farið að berjast við Ammóníta og eigi kvatt oss þér til fylgdar? Nú munum vér leggja eld í hús þitt yfir þér.``

    12:2 Þá sagði Jefta við þá: ,,Ég og þjóð mín áttum í miklum deilum við Ammóníta. Beiddist ég þá liðs hjá yður, en þér hjálpuðuð mér ekki úr höndum þeirra.

    12:3 Og er ég sá, að þér ætluðuð ekki að hjálpa mér, þá lagði ég líf mitt í hættu og fór í móti Ammónítum, og Drottinn gaf þá í hendur mér. Hvers vegna komið þér þá í dag til mín til þess að berjast við mig?``

    12:4 Og Jefta safnaði saman öllum mönnum í Gíleað og barðist við Efraímíta, og unnu Gíleaðsmenn sigur á Efraímítum, því að Efraímítar höfðu sagt: ,,Þér eruð flóttamenn frá Efraím! Gíleað liggur mitt í Efraím, mitt í Manasse.``

    12:5 Gíleaðítar settust um Jórdanvöðin yfir til Efraím. Og þegar flóttamaður úr Efraím sagði: ,,Leyf mér yfir um!`` þá sögðu Gíleaðsmenn við hann: ,,Ert þú Efraímíti?`` Ef hann svaraði: ,,Nei!``

    12:6 þá sögðu þeir við hann: ,,Segðu ,Sjibbólet.``` Ef hann þá sagði: ,,Sibbólet,`` og gætti þess eigi að bera það rétt fram, þá gripu þeir hann og drápu hann við Jórdanvöðin. Féllu þá í það mund af Efraím fjörutíu og tvær þúsundir.

    12:7 Jefta var dómari í Ísrael í sex ár. Síðan andaðist Jefta Gíleaðíti og var grafinn í einni af Gíleaðs borgum.

    12:8 Eftir Jefta var Íbsan frá Betlehem dómari í Ísrael.

    12:9 Hann átti þrjátíu sonu, og þrjátíu dætur gifti hann burt frá sér, og þrjátíu konur færði hann sonum sínum annars staðar að. Hann var dómari í Ísrael í sjö ár.

    12:10 Síðan andaðist Íbsan og var grafinn í Betlehem.

    12:11 Eftir hann var Elón Sebúloníti dómari í Ísrael. Hann var dómari í Ísrael í tíu ár.

    12:12 Síðan andaðist Elón Sebúloníti og var grafinn í Ajalon í Sebúlon-landi.

    12:13 Eftir hann var Abdón Híllelsson Píratóníti dómari í Ísrael.

    12:14 Hann átti fjörutíu sonu og þrjátíu sonasonu, sem riðu sjötíu ösnufolum. Hann var dómari í Ísrael í átta ár.

    12:15 Síðan andaðist Abdón Híllelsson Píratóníti og var grafinn í Píratón í Efraímlandi á Amalekítafjöllum.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine