Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - JUDGES 15

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    15:1 Að nokkrum tíma liðnum kom Samson um hveitiuppskerutímann að vitja konu sinnar og hafði með sér hafurkið. Og hann sagði við föður hennar: ,,Leyf mér að ganga inn í afhýsið til konu minnar!`` En faðir hennar vildi ekki leyfa honum inn að ganga.

    15:2 Og faðir hennar sagði: ,,Ég var fullviss um, að þú hefðir fengið megna óbeit á henni og gifti hana því brúðarsveini þínum, en yngri systir hennar er fríðari en hún, hana skalt þú fá í hennar stað.``

    15:3 Þá sagði Samson við þá: ,,Nú ber ég enga sök á því við Filista, þó að ég vinni þeim mein.``

    15:4 Síðan fór Samson og veiddi þrjú hundruð refi, tók blys, sneri hölunum saman og batt eitt blys millum hverra tveggja hala.

    15:5 Síðan kveikti hann í blysunum og sleppti því næst refunum inn á kornakra Filista og brenndi þannig bæði kerfaskrúf, óslegið korn, víngarða og olíugarða.

    15:6 Þá sögðu Filistar: ,,Hver hefir gjört þetta?`` Og menn svöruðu: ,,Samson, tengdasonur Timnítans, því að hann hefir tekið frá honum konuna og gift hana brúðarsveini hans.`` Þá fóru Filistar upp þangað og brenndu hana inni og föður hennar.

    15:7 En Samson sagði við þá: ,,Fyrst þér aðhafist slíkt, mun ég ekki hætta fyrr en ég hefi hefnt mín á yður.``

    15:8 Síðan barði hann svo óþyrmilega á þeim, að sundur gengu lær og leggir. Og hann fór þaðan og settist að í Etamklettaskoru.

    15:9 Þá fóru Filistar upp eftir og settu herbúðir sínar í Júda og dreifðu sér um Lekí.

    15:10 Og Júdamenn sögðu: ,,Hví hafið þér farið í móti oss?`` En þeir svöruðu: ,,Vér erum hingað komnir til þess að binda Samson, svo að vér megum með hann fara sem hann hefir farið með oss.``

    15:11 Þá fóru þrjú þúsund manns frá Júda ofan til Etamklettaskoru og sögðu við Samson: ,,Veist þú ekki, að Filistar drottna yfir oss? Hví hefir þú þá gjört oss þetta?`` Hann svaraði þeim: ,,Eins og þeir fóru með mig, svo hefi ég farið með þá.``

    15:12 Þeir sögðu við hann: ,,Vér erum hingað komnir til að binda þig, svo að vér getum selt þig í hendur Filista.`` Þá sagði Samson við þá: ,,Vinnið mér eið að því, að þér sjálfir skulið ekki drepa mig.``

    15:13 Þeir svöruðu honum: ,,Nei, vér munum aðeins binda þig og selja þig í hendur þeirra _ en drepa þig munum vér ekki.`` Og þeir bundu hann með tveimur reipum nýjum og fóru með hann burt frá klettinum.

    15:14 En er Samson kom til Lekí, fóru Filistar með ópi miklu í móti honum. Þá kom andi Drottins yfir hann, og urðu reipin, sem voru um armleggi hans, sem þræðir í eldi brunnir, og hrukku fjötrarnir sundur af höndum hans.

    15:15 Og hann fann nýjan asnakjálka, rétti út höndina og tók hann og laust með honum þúsund manns.

    15:16 Þá sagði Samson: ,,Með asnakjálka hefi ég gjörsamlega flegið þá, með asnakjálka hefi ég banað þúsund manns!``

    15:17 Og er hann hafði mælt þetta, varpaði hann kjálkanum úr hendi sér, og var þessi staður upp frá því nefndur Ramat Lekí.

    15:18 En Samson var mjög þyrstur og hrópaði því til Drottins og mælti: ,,Þú hefir veitt þennan mikla sigur fyrir hönd þjóns þíns, en nú hlýt ég að deyja af þorsta og falla í hendur óumskorinna manna!``

    15:19 Þá klauf Guð holuna, sem var í Lekí, svo að vatn rann fram úr henni. En er hann hafði drukkið, kom andi hans aftur og hann lifnaði við. Fyrir því var hún nefnd Hrópandans lind. Hún er í Lekí fram á þennan dag.

    15:20 En Samson var dómari í Ísrael um daga Filista í tuttugu ár.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine