Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - LEVITICUS 24

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    24:1 Drottinn talaði við Móse og sagði:

    24:2 ,,Bjóð þú Ísraelsmönnum að færa þér tæra olíu af steyttum olífuberjum til ljósastikunnar, svo að lampar verði ávallt settir upp.

    24:3 Fyrir utan fortjald sáttmálsins í samfundatjaldinu skal Aron tilreiða þá frá kveldi til morguns frammi fyrir Drottni stöðuglega. Það er ævarandi lögmál fyrir yður frá kyni til kyns.

    24:4 Hann skal raða lömpunum á gull-ljósastikuna frammi fyrir Drottni stöðuglega.

    24:5 Þú skalt taka fínt mjöl og baka úr því tólf kökur. Skulu vera tveir tíundupartar úr efu í hverri köku.

    24:6 Og þú skalt leggja þær í tvær raðir, sex í hvora röð, á gullborðið frammi fyrir Drottni.

    24:7 Og þú skalt láta hjá hvorri röð hreina reykelsiskvoðu, og skal hún vera sem ilmhluti af brauðinu, eldfórn Drottni til handa.

    24:8 Á hverjum hvíldardegi skal hann raða þessu frammi fyrir Drottni stöðuglega. Er það ævinlegur sáttmáli af hálfu Ísraelsmanna.

    24:9 Skal Aron og synir hans fá það og eta það á helgum stað, því að það heyrir honum sem háhelgur hluti af eldfórnum Drottins eftir ævinlegu lögmáli.``

    24:10 Sonur ísraelskrar konu gekk út meðal Ísraelsmanna, en faðir hans var egypskur. Lenti þá sonur ísraelsku konunnar í deilu við ísraelskan mann í herbúðunum.

    24:11 Og sonur ísraelsku konunnar lastmælti nafninu og formælti. Þeir leiddu hann fyrir Móse. En móðir hans hét Selómít Díbrísdóttir, af ættkvísl Dans.

    24:12 Og þeir settu hann í varðhald, til þess að þeim kæmi úrskurður fyrir munn Drottins.

    24:13 Og Drottinn talaði við Móse og sagði:

    24:14 ,,Leið þú lastmælandann út fyrir herbúðirnar, og allir þeir, er heyrt hafa, skulu leggja hendur sínar á höfuð honum, og því næst skal allur söfnuðurinn grýta hann.

    24:15 Og þú skalt tala við Ísraelsmenn og segja: ,Hver sá, er formælir Guði sínum, bakar sér synd.

    24:16 Og sá er lastmælir nafni Drottins, skal líflátinn verða. Allur söfnuðurinn skal vægðarlaust grýta hann. Hvort heldur er útlendur maður eða innborinn, lastmæli hann nafninu, skal hann líflátinn.

    24:17 Og ljósti einhver mann til bana, skal hann líflátinn verða.

    24:18 Og sá, er lýstur skepnu til bana, skal bæta hana, líf fyrir líf.

    24:19 Og veiti maður náunga sínum áverka, þá skal honum gjört hið sama, sem hann hefir gjört:

    24:20 Beinbrot fyrir beinbrot, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, hinn sami áverki, er hann hefir veitt öðrum, skal honum veittur.

    24:21 Og sá, er lýstur skepnu til bana, skal bæta hana, en sá, er lýstur mann til bana, skal líflátinn.

    24:22 Þér skuluð hafa ein lög, hvort heldur útlendur maður eða innborinn á í hlut, því að ég er Drottinn, Guð yðar.```

    24:23 Og Móse talaði við Ísraelsmenn, og þeir leiddu lastmælandann út fyrir herbúðirnar og lömdu hann grjóti. Og Ísraelsmenn gjörðu svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine