Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - LUKE 1

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    1:1 Margir hafa tekið sér fyrir hendur að rekja sögu þeirra viðburða, er gjörst hafa meðal vor,

    1:2 samkvæmt því, sem oss hafa flutt þeir menn, er frá öndverðu voru sjónarvottar og þjónar orðsins.

    1:3 Nú hef ég athugað kostgæfilega allt þetta frá upphafi og réð því einnig af að rita samfellda sögu fyrir þig, göfugi Þeófílus,

    1:4 svo að þú megir ganga úr skugga um sannindi þeirra frásagna, sem þú hefur fræðst um.

    1:5 Á dögum Heródesar, konungs í Júdeu, var uppi prestur nokkur að nafni Sakaría, af sveit Abía. Kona hans var og af ætt Arons og hét Elísabet.

    1:6 Þau voru bæði réttlát fyrir Guði og lifðu vammlaus eftir öllum boðum og ákvæðum Drottins.

    1:7 En þau áttu ekki barn, því að Elísabet var óbyrja, og bæði voru þau hnigin að aldri.

    1:8 En svo bar við, er röðin kom að sveit hans og hann var að gegna þjónustu fyrir Guði,

    1:9 að það féll í hans hlut, samkvæmt venju prestdómsins, að ganga inn í musteri Drottins og fórna reykelsi.

    1:10 En allur fólksfjöldinn var fyrir utan á bæn, meðan reykelsisfórnin var færð.

    1:11 Birtist honum þá engill Drottins, sem stóð hægra megin við reykelsisaltarið.

    1:12 Sakaría varð hverft við sýn þessa, og ótta sló á hann.

    1:13 En engillinn sagði við hann: ,,Óttast þú eigi, Sakaría, því bæn þín er heyrð. Elísabet kona þín mun fæða þér son, og þú skalt láta hann heita Jóhannes.

    1:14 Og þér mun veitast gleði og fögnuður, og margir munu gleðjast vegna fæðingar hans.

    1:15 Því að hann mun verða mikill í augliti Drottins. Aldrei mun hann drekka vín né áfengan drykk, en fyllast heilögum anda þegar frá móðurlífi.

    1:16 Og mörgum af Ísraels sonum mun hann snúa til Drottins, Guðs þeirra.

    1:17 Og hann mun ganga fyrir honum í anda og krafti Elía til að snúa hjörtum feðra til barna og óhlýðnum til hugarfars réttlátra og búa Drottni altygjaðan lýð.``

    1:18 Sakaría sagði við engilinn: ,,Af hverju get ég vitað þetta? Ég er gamall og kona mín hnigin að aldri.``

    1:19 En engillinn svaraði honum: ,,Ég er Gabríel, sem stend frammi fyrir Guði, ég var sendur til að tala við þig og flytja þér þessa gleðifregn.

    1:20 Og þú munt verða mállaus og ekki geta talað til þess dags, er þetta kemur fram, vegna þess að þú trúðir ekki orðum mínum, en þau munu rætast á sínum tíma.``

    1:21 Og fólkið beið eftir Sakaría og undraðist, hve honum dvaldist í musterinu.

    1:22 En er hann kom út, gat hann ekki talað við þá, og skildu þeir, að hann hafði séð sýn í musterinu. Hann gaf þeim bendingar og var mállaus áfram.

    1:23 Og er þjónustudagar hans voru liðnir, fór hann heim til sín.

    1:24 En eftir þessa daga varð Elísabet kona hans þunguð, og hún leyndi sér í fimm mánuði og sagði:

    1:25 ,,Þannig hefur Drottinn gjört við mig, er hann leit til mín að afmá hneisu mína í augum manna.``

    1:26 En á sjötta mánuði var Gabríel engill sendur frá Guði til borgar í Galíleu, sem heitir Nasaret,

    1:27 til meyjar, er var föstnuð manni, sem Jósef hét, af ætt Davíðs, en mærin hét María.

    1:28 Og engillinn kom inn til hennar og sagði: ,,Heil vert þú, sem nýtur náðar Guðs! Drottinn er með þér.``

    1:29 En hún varð hrædd við þessi orð og hugleiddi, hvílík þessi kveðja væri.

    1:30 Og engillinn sagði við hana: ,,Óttast þú eigi, María, því að þú hefur fundið náð hjá Guði.

    1:31 Þú munt þunguð verða og son ala, og þú skalt láta hann heita JESÚ.

    1:32 Hann mun verða mikill og kallaður sonur hins hæsta. Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs föður hans,

    1:33 og hann mun ríkja yfir ætt Jakobs að eilífu, og á ríki hans mun enginn endir verða.``

    1:34 Þá sagði María við engilinn: ,,Hvernig má þetta verða, þar eð ég hef ekki karlmanns kennt?``

    1:35 Og engillinn sagði við hana: ,,Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur hins hæsta mun yfirskyggja þig. Fyrir því mun og barnið verða kallað heilagt, sonur Guðs.

    1:36 Elísabet, frændkona þín, er einnig orðin þunguð að syni í elli sinni, og þetta er sjötti mánuður hennar, sem kölluð var óbyrja,

    1:37 en Guði er enginn hlutur um megn.``

    1:38 Þá sagði María: ,,Sjá, ég er ambátt Drottins. Verði mér eftir orðum þínum.`` Og engillinn fór burt frá henni.

    1:39 En á þeim dögum tók María sig upp og fór með flýti til borgar nokkurrar í fjallbyggðum Júda.

    1:40 Hún kom inn í hús Sakaría og heilsaði Elísabetu.

    1:41 Þá varð það, þegar Elísabet heyrði kveðju Maríu, að barnið tók viðbragð í lífi hennar, og Elísabet fylltist heilögum anda

    1:42 og hrópaði hárri röddu: ,,Blessuð ert þú meðal kvenna og blessaður ávöxtur lífs þíns.

    1:43 Hvaðan kemur mér þetta, að móðir Drottins míns kemur til mín?

    1:44 Þegar kveðja þín hljómaði í eyrum mér, tók barnið viðbragð af gleði í lífi mínu.

    1:45 Sæl er hún, sem trúði því, að rætast mundi það, sem sagt var við hana frá Drottni.``

    1:46 Og María sagði: Önd mín miklar Drottin,

    1:47 og andi minn gleðst í Guði, frelsara mínum.

    1:48 Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar, héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

    1:49 Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört, og heilagt er nafn hans.

    1:50 Miskunn hans við þá, er óttast hann, varir frá kyni til kyns.

    1:51 Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

    1:52 Valdhöfum hefur hann steypt af stóli og upp hafið smælingja,

    1:53 hungraða hefur hann fyllt gæðum, en látið ríka tómhenta frá sér fara.

    1:54 Hann hefur minnst miskunnar sinnar og tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

    1:55 eins og hann talaði til feðra vorra, við Abraham og niðja hans ævinlega.

    1:56 En María dvaldist hjá henni hér um bil þrjá mánuði og sneri síðan heim til sín.

    1:57 Nú kom sá tími, að Elísabet skyldi verða léttari, og ól hún son.

    1:58 Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu, hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni, og samfögnuðu henni.

    1:59 Á áttunda degi komu þeir að umskera sveininn, og vildu þeir láta hann heita Sakaría í höfuðið á föður sínum.

    1:60 Þá mælti móðir hans: ,,Eigi skal hann svo heita, heldur Jóhannes.``

    1:61 En þeir sögðu við hana: ,,Enginn er í ætt þinni, sem heitir því nafni.``

    1:62 Bentu þeir þá föður hans, að hann léti þá vita, hvað sveinninn skyldi heita.

    1:63 Hann bað um spjald og reit: ,,Jóhannes er nafn hans,`` og urðu þeir allir undrandi.

    1:64 Jafnskjótt laukst upp munnur hans og tunga, og hann fór að tala og lofaði Guð.

    1:65 En ótta sló á alla nágranna þeirra og þótti þessi atburður miklum tíðindum sæta í allri fjallbyggð Júdeu.

    1:66 Og allir, sem þetta heyrðu, festu það í huga sér og sögðu: ,,Hvað mun barn þetta verða?`` Því að hönd Drottins var með honum.

    1:67 En Sakaría faðir hans fylltist heilögum anda og mælti af spámannlegri andagift:

    1:68 Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

    1:69 Hann hefur reist oss horn hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

    1:70 eins og hann talaði fyrir munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

    1:71 frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra, er hata oss.

    1:72 Hann hefur auðsýnt feðrum vorum miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

    1:73 þess eiðs, er hann sór Abraham föður vorum

    1:74 að hrífa oss úr höndum óvina og veita oss að þjóna sér óttalaust

    1:75 í heilagleik og réttlæti fyrir augum hans alla daga vora.

    1:76 Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta, því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

    1:77 og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu, sem er fyrirgefning synda þeirra.

    1:78 Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur upp renna sól af hæðum að vitja vor

    1:79 og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans, og beina fótum vorum á friðar veg.

    1:80 En sveinninn óx og varð þróttmikill í anda. Hann dvaldist í óbyggðum til þess dags, er hann skyldi koma fram fyrir Ísrael.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine