Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - LUKE 10

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    10:1 Eftir þetta kvaddi Drottinn til aðra, sjötíu og tvo að tölu, og sendi þá á undan sér, tvo og tvo, í hverja þá borg og stað, sem hann ætlaði sjálfur að koma til.

    10:2 Og hann sagði við þá: ,,Uppskeran er mikil, en verkamenn fáir. Biðjið því herra uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar.

    10:3 Farið! Ég sendi yður eins og lömb meðal úlfa.

    10:4 Hafið ekki pyngju, ekki mal né skó, og heilsið engum á leiðinni.

    10:5 Hvar sem þér komið í hús, þá segið fyrst: ,Friður sé með þessu húsi.`

    10:6 Og sé þar friðar sonur, mun friður yðar hvíla yfir honum, ella hverfa aftur til yðar.

    10:7 Verið um kyrrt í sama húsi, neytið þess, sem þar er fram boðið í mat og drykk. Verður er verkamaðurinn launa sinna. Eigi skuluð þér flytjast hús úr húsi.

    10:8 Og hvar sem þér komið í borg og tekið er við yður, þá neytið þess, sem fyrir yður er sett.

    10:9 Læknið þá, sem þar eru sjúkir, og segið þeim: ,Guðs ríki er komið í nánd við yður.`

    10:10 En hvar sem þér komið í borg og eigi er við yður tekið, þá farið út á strætin og segið:

    10:11 ,Jafnvel það dust, sem loðir við fætur vora úr borg yðar, þurrkum vér af oss handa yður. Vitið samt þetta, að Guðs ríki er komið í nánd.`

    10:12 Ég segi yður: Bærilegra mun Sódómu á þeim degi en þeirri borg.

    10:13 Vei þér, Korasín! Vei þér, Betsaída! Ef gjörst hefðu í Týrus og Sídon kraftaverkin, sem gjörðust í ykkur, hefðu þeir löngu iðrast og setið í sekk og ösku.

    10:14 En Týrus og Sídon mun bærilegra í dóminum en ykkur.

    10:15 Og þú Kapernaum! Verður þú hafin til himins? Nei, til heljar mun þér steypt verða.

    10:16 Sá sem á yður hlýðir, hlýðir á mig, og sá sem yður hafnar, hafnar mér. En sá sem hafnar mér, hafnar þeim er sendi mig.``

    10:17 Nú komu þeir sjötíu og tveir aftur með fögnuði og sögðu: ,,Herra, jafnvel illir andar eru oss undirgefnir í þínu nafni.``

    10:18 En hann mælti við þá: ,,Ég sá Satan hrapa af himni sem eldingu.

    10:19 Ég hef gefið yður vald að stíga á höggorma og sporðdreka og yfir öllu óvinarins veldi. Alls ekkert mun yður mein gjöra.

    10:20 Gleðjist samt ekki af því, að andarnir eru yður undirgefnir, gleðjist öllu heldur af hinu, að nöfn yðar eru skráð í himnunum.``

    10:21 Á sömu stundu varð hann glaður í heilögum anda og sagði: ,,Ég vegsama þig, faðir, herra himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum, en opinberað það smælingjum. Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.

    10:22 Allt er mér falið af föður mínum, og enginn veit, hver sonurinn er, nema faðirinn, né hver faðirinn er, nema sonurinn og sá sem sonurinn vill opinbera hann.``

    10:23 Og hann sneri sér að lærisveinum sínum og sagði við þá einslega: ,,Sæl eru þau augu, sem sjá það sem þér sjáið.

    10:24 Því að ég segi yður: Margir spámenn og konungar vildu sjá það sem þér sjáið, en sáu það ekki, og heyra það sem þér heyrið, en heyrðu það ekki.``

    10:25 Lögvitringur nokkur sté fram, vildi freista hans og mælti: ,,Meistari, hvað á ég að gjöra til þess að öðlast eilíft líf?``

    10:26 Jesús sagði við hann: ,,Hvað er ritað í lögmálinu? Hvernig lest þú?``

    10:27 Hann svaraði: ,,Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og öllum huga þínum, og náunga þinn eins og sjálfan þig.``

    10:28 Jesús sagði við hann: ,,Þú svaraðir rétt. Gjör þú þetta, og þú munt lifa.``

    10:29 En hann vildi réttlæta sjálfan sig og sagði við Jesú: ,,Hver er þá náungi minn?``

    10:30 Því svaraði Jesús svo: ,,Maður nokkur fór frá Jerúsalem ofan til Jeríkó og féll í hendur ræningjum. Þeir flettu hann klæðum og börðu hann, hurfu brott síðan og létu hann eftir dauðvona.

    10:31 Svo vildi til, að prestur nokkur fór ofan sama veg og sá manninn, en sveigði fram hjá.

    10:32 Eins kom og levíti þar að, sá hann og sveigði fram hjá.

    10:33 En Samverji nokkur, er var á ferð, kom að honum, og er hann sá hann, kenndi hann í brjósti um hann,

    10:34 gekk til hans, batt um sár hans og hellti í þau viðsmjöri og víni. Og hann setti hann á sinn eigin eyk, flutti hann til gistihúss og lét sér annt um hann.

    10:35 Daginn eftir tók hann upp tvo denara, fékk gestgjafanum og mælti: ,Lát þér annt um hann og það sem þú kostar meiru til, skal ég borga þér, þegar ég kem aftur.`

    10:36 Hver þessara þriggja sýnist þér hafa reynst náungi þeim manni, sem féll í hendur ræningjum?``

    10:37 Hann mælti: ,,Sá sem miskunnarverkið gjörði á honum.`` Jesús sagði þá við hann: ,,Far þú og gjör hið sama.``

    10:38 Á ferð þeirra kom Jesús í þorp nokkurt, og kona að nafni Marta bauð honum heim.

    10:39 Hún átti systur, er María hét, og settist hún við fætur Drottins og hlýddi á orð hans.

    10:40 En Marta lagði allan hug á að veita sem mesta þjónustu. Og hún gekk til hans og mælti: ,,Herra, hirðir þú eigi um það, að systir mín lætur mig eina um að þjóna gestum? Seg þú henni að hjálpa mér.``

    10:41 En Drottinn svaraði henni: ,,Marta, Marta, þú ert áhyggjufull og mæðist í mörgu,

    10:42 en eitt er nauðsynlegt. María valdi góða hlutskiptið. Það verður ekki frá henni tekið.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine