Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - LUKE 14

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    14:1 Hvíldardag nokkurn kom Jesús í hús eins af höfðingjum farísea til máltíðar, og höfðu þeir gætur á honum.

    14:2 Þá var þar frammi fyrir honum maður einn vatnssjúkur.

    14:3 Jesús tók þá til máls og sagði við lögvitringana og faríseana: ,,Er leyfilegt að lækna á hvíldardegi eða ekki?``

    14:4 Þeir þögðu við. En hann tók á honum, læknaði hann og lét hann fara.

    14:5 Og Jesús mælti við þá: ,,Nú á einhver yðar asna eða naut, sem fellur í brunn, mun hann ekki óðara draga það upp, þótt hvíldardagur sé?``

    14:6 Þeir gátu engu svarað þessu.

    14:7 Jesús gaf því gætur, hvernig þeir, sem boðnir voru, völdu sér hefðarsætin, tók dæmi og sagði við þá:

    14:8 ,,Þegar einhver býður þér til brúðkaups, þá set þig ekki í hefðarsæti. Svo getur farið, að manni þér fremri að virðingu sé boðið,

    14:9 og sá komi, er ykkur bauð, og segi við þig: ,Þoka fyrir manni þessum.` Þá verður þú með kinnroða að taka ysta sæti.

    14:10 Far þú heldur, er þér er boðið, og set þig í ysta sæti, svo að sá sem bauð þér segi við þig, þegar hann kemur: ,Vinur, flyt þig hærra upp!` Mun þér þá virðing veitast frammi fyrir öllum, er sitja til borðs með þér.

    14:11 Því að hver sem upp hefur sjálfan sig, mun auðmýktur verða, en sá sem auðmýkir sjálfan sig, mun upp hafinn verða.``

    14:12 Þá sagði hann við gestgjafa sinn: ,,Þegar þú heldur miðdegisverð eða kvöldverð, bjóð þá hvorki vinum þínum né bræðrum, ættingjum né ríkum nágrönnum. Þeir bjóða þér aftur, og þú færð endurgjald.

    14:13 Þegar þú gjörir veislu, þá bjóð þú fátækum og örkumla, höltum og blindum,

    14:14 og munt þú sæll verða, því þeir geta ekki endurgoldið þér, en þú færð það endurgoldið í upprisu réttlátra.``

    14:15 Þegar einn þeirra, er að borði sátu, heyrði þetta, sagði hann við Jesú: ,,Sæll er sá, sem neytir brauðs í Guðs ríki.``

    14:16 Jesús sagði við hann: ,,Maður nokkur gjörði mikla kvöldmáltíð og bauð mörgum.

    14:17 Er stundin kom, að veislan skyldi vera, sendi hann þjón sinn að segja þeim, er boðnir voru: ,Komið, nú er allt tilbúið.`

    14:18 En þeir tóku allir að afsaka sig einum munni. Hinn fyrsti sagði við hann: ,Ég hef keypt akur og verð að fara og líta á hann. Ég bið þig, haf mig afsakaðan.`

    14:19 Annar sagði: ,Ég hef keypt fimm tvenndir akneyta og er á förum að reyna þau. Ég bið þig, haf mig afsakaðan.`

    14:20 Og enn annar sagði: ,Konu hef ég eignast, ekki get ég komið.`

    14:21 Þjónninn kom og tjáði herra sínum þetta. Þá reiddist húsbóndinn og sagði við þjón sinn: ,Far þú fljótt út á stræti og götur borgarinnar, og leið inn hingað fátæka, örkumla, blinda og halta.`

    14:22 Og þjónninn sagði: ,Herra, það er gjört, sem þú bauðst, og enn er rúm.`

    14:23 Þá sagði húsbóndinn við þjóninn: ,Far þú út um brautir og gerði og þrýstu þeim að koma inn, svo að hús mitt fyllist.

    14:24 Því ég segi yður, að enginn þeirra manna, er boðnir voru, mun smakka kvöldmáltíð mína.```

    14:25 Mikill fjöldi fólks var honum samferða. Hann sneri sér við og sagði við þá:

    14:26 ,,Ef einhver kemur til mín og hatar ekki föður sinn og móður, konu og börn, bræður og systur og enda sitt eigið líf, sá getur ekki verið lærisveinn minn.

    14:27 Hver sem ber ekki sinn kross og fylgir mér, getur ekki verið lærisveinn minn.

    14:28 Hver yðar sest ekki fyrst við, ef hann ætlar að reisa turn, og reiknar kostnaðinn, hvort hann eigi nóg til að ljúka verkinu?

    14:29 Ella má svo fara, að hann leggi undirstöðu, en fái ekki við lokið, og allir, sem það sjá, taki að spotta hann

    14:30 og segja: ,Þessi maður fór að byggja, en gat ekki lokið.`

    14:31 Eða hvaða konungur fer með hernaði gegn öðrum konungi og sest ekki fyrst við og ráðgast um, hvort honum sé fært að mæta með tíu þúsundum þeim er fer á móti honum með tuttugu þúsundir?

    14:32 Sé svo ekki, gerir hann menn á fund hans, meðan hann er enn langt undan, og spyr um friðarkosti.

    14:33 Þannig getur enginn yðar verið lærisveinn minn, nema hann segi skilið við allt sem hann á.

    14:34 Saltið er gott, en ef saltið sjálft dofnar, með hverju á þá að krydda það?

    14:35 Hvorki er það hæft á tún né taðhaug. Því er fleygt. Hver sem eyru hefur að heyra, hann heyri.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine