Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - LUKE 17

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    17:1 Hann sagði við lærisveina sína: ,,Eigi verður umflúið, að til ginninga komi, en vei þeim er veldur.

    17:2 Betra væri honum að hafa mylnustein um hálsinn og vera varpað í hafið en að tæla einn af þessum smælingjum til falls.

    17:3 Hafið gát á sjálfum yður. Ef bróðir þinn syndgar, þá ávíta hann, og ef hann iðrast, þá fyrirgef honum.

    17:4 Og þótt hann misgjöri við þig sjö sinnum á dag og snúi sjö sinnum aftur til þín og segi: ,Ég iðrast,` þá skalt þú fyrirgefa honum.``

    17:5 Postularnir sögðu við Drottin: ,,Auk oss trú!``

    17:6 En Drottinn sagði: ,,Ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn, gætuð þér sagt við mórberjatré þetta: ,Ríf þig upp með rótum og fest rætur í sjónum,` og það mundi hlýða yður.

    17:7 Hafi einhver yðar þjón, er plægir eða hirðir fénað, segir hann þá við hann, þegar hann kemur inn af akri: ,Kom þegar og set þig til borðs`?

    17:8 Segir hann ekki fremur við hann: ,Bú þú mér kvöldverð, gyrð þig og þjóna mér, meðan ég et og drekk, síðan getur þú etið og drukkið.`

    17:9 Og er hann þakklátur þjóni sínum fyrir að gjöra það, sem boðið var?

    17:10 Eins skuluð þér segja, þá er þér hafið gjört allt, sem yður var boðið: ,Ónýtir þjónar erum vér, vér höfum gjört það eitt, sem vér vorum skyldir að gjöra.```

    17:11 Svo bar við á ferð hans til Jerúsalem, að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu.

    17:12 Og er hann kom inn í þorp nokkurt, mættu honum tíu menn líkþráir. Þeir stóðu álengdar,

    17:13 hófu upp raust sína og kölluðu: ,,Jesús, meistari, miskunna þú oss!``

    17:14 Er hann leit þá, sagði hann við þá: ,,Farið og sýnið yður prestunum.`` Þeir héldu af stað og nú brá svo við, að þeir urðu hreinir.

    17:15 En einn þeirra sneri aftur, er hann sá, að hann var heill orðinn, og lofaði Guð hárri raustu.

    17:16 Hann féll fram á ásjónu sína að fótum Jesú og þakkaði honum. En hann var Samverji.

    17:17 Jesús sagði: ,,Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru hinir níu?

    17:18 Urðu engir til þess að snúa aftur að gefa Guði dýrðina nema þessi útlendingur?``

    17:19 Síðan mælti Jesús við hann: ,,Statt upp, og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér.``

    17:20 Farísear spurðu hann, hvenær Guðs ríki kæmi. Hann svaraði þeim: ,,Guðs ríki kemur ekki þannig, að á því beri.

    17:21 Ekki munu menn segja: Sjá, þar er það eða hér er það, því Guðs ríki er innra með yður.``

    17:22 Og hann sagði við lærisveinana: ,,Þeir dagar munu koma, að þér þráið að sjá einn dag Mannssonarins og munuð eigi sjá.

    17:23 Menn munu segja við yður: Sjá hér, sjá þar. En farið ekki og hlaupið eftir því.

    17:24 Eins og elding, sem leiftrar og lýsir frá einu skauti himins til annars, svo mun Mannssonurinn verða á degi sínum.

    17:25 En fyrst á hann margt að líða og útskúfaður verða af þessari kynslóð.

    17:26 Eins og var á dögum Nóa, svo mun og verða á dögum Mannssonarins:

    17:27 Menn átu og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags, er Nói gekk í örkina, og flóðið kom og tortímdi öllum.

    17:28 Eins var og á dögum Lots: Menn átu og drukku, keyptu og seldu, gróðursettu og byggðu.

    17:29 En daginn, sem Lot fór úr Sódómu, rigndi eldi og brennisteini af himni og tortímdi öllum.

    17:30 Eins mun verða á þeim degi, er Mannssonurinn opinberast.

    17:31 Sá sem þann dag er á þaki uppi og á muni sína í húsinu, fari ekki ofan að sækja þá. Og sá sem er á akri, skal ekki heldur hverfa aftur.

    17:32 Minnist konu Lots.

    17:33 Sá sem vill sjá lífi sínu borgið, mun týna því, en sá sem týnir því, mun öðlast líf.

    17:34 Ég segi yður: Á þeirri nóttu verða tveir í einni hvílu, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.

    17:35 Tvær munu mala á sömu kvörn, önnur verður tekin, hin eftir skilin. [

    17:36 Tveir verða á akri, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.]``

    17:37 Þeir spurðu hann þá: ,,Hvar, herra?`` En hann sagði við þá: ,,Þar munu ernirnir safnast, sem hræið er.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine