Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - LUKE 22

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    22:1 Nú fór í hönd hátíð ósýrðu brauðanna, sú er nefnist páskar.

    22:2 Og æðstu prestarnir og fræðimennirnir leituðu fyrir sér, hvernig þeir gætu ráðið hann af dögum, því að þeir voru hræddir við lýðinn.

    22:3 Þá fór Satan í Júdas, sem kallaður var Ískaríot og var í tölu þeirra tólf.

    22:4 Hann fór og ræddi við æðstu prestana og varðforingjana um það, hvernig hann skyldi framselja þeim Jesú.

    22:5 Þeir urðu glaðir við og hétu honum fé fyrir.

    22:6 Hann gekk að því og leitaði færis að framselja hann þeim, þegar fólkið væri fjarri.

    22:7 Þegar sá dagur ósýrðu brauðanna kom, er slátra skyldi páskalambinu,

    22:8 sendi Jesús þá Pétur og Jóhannes og sagði: ,,Farið og búið til páskamáltíðar fyrir oss.``

    22:9 Þeir sögðu við hann: ,,Hvar vilt þú, að við búum hana?``

    22:10 En hann sagði við þá: ,,Þegar þið komið inn í borgina, mætir ykkur maður, sem ber vatnsker. Fylgið honum inn þangað sem hann fer,

    22:11 og segið við húsráðandann: ,Meistarinn spyr þig: Hvar er herbergið, þar sem ég get neytt páskamáltíðarinnar með lærisveinum mínum?`

    22:12 Hann mun þá sýna ykkur loftsal mikinn, búinn hægindum. Hafið þar viðbúnað.``

    22:13 Þeir fóru og fundu allt eins og hann hafði sagt og bjuggu til páskamáltíðar.

    22:14 Og er stundin var komin, gekk hann til borðs og postularnir með honum.

    22:15 Og hann sagði við þá: ,,Hjartanlega hef ég þráð að neyta þessarar páskamáltíðar með yður, áður en ég líð.

    22:16 Því ég segi yður: Eigi mun ég framar neyta hennar, fyrr en hún fullkomnast í Guðs ríki.``

    22:17 Þá tók hann kaleik, gjörði þakkir og sagði: ,,Takið þetta og skiptið með yður.

    22:18 Því ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins, fyrr en Guðs ríki kemur.``

    22:19 Og hann tók brauð, gjörði þakkir, braut það, gaf þeim og sagði: ,,Þetta er líkami minn, sem fyrir yður er gefinn. Gjörið þetta í mína minningu.``

    22:20 Eins tók hann kaleikinn eftir kvöldmáltíðina og sagði: ,,Þessi kaleikur er hinn nýi sáttmáli í mínu blóði, sem fyrir yður er úthellt.

    22:21 En sjá, hönd þess, er mig svíkur, er á borðinu hjá mér.

    22:22 Mannssonurinn fer að sönnu þá leið, sem ákveðin er, en vei þeim manni, sem því veldur, að hann verður framseldur.``

    22:23 Og þeir tóku að spyrjast á um það, hver þeirra mundi verða til þess að gjöra þetta.

    22:24 Og þeir fóru að metast um, hver þeirra væri talinn mestur.

    22:25 En Jesús sagði við þá: ,,Konungar þjóða drottna yfir þeim og valdhafar þeirra kallast velgjörðamenn.

    22:26 En eigi sé yður svo farið, heldur sé hinn mesti yðar á meðal sem væri hann yngstur og foringinn sem þjónn.

    22:27 Því hvort er sá meiri, sem situr til borðs, eða hinn, sem þjónar? Er það ekki sá sem situr til borðs? Samt er ég meðal yðar eins og þjónninn.

    22:28 En þér eruð þeir sem hafið verið stöðugir með mér í freistingum mínum.

    22:29 Og yður fæ ég ríki í hendur, eins og faðir minn hefur fengið mér,

    22:30 að þér megið eta og drekka við borð mitt í ríki mínu, sitja í hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels.

    22:31 Símon, Símon, Satan krafðist yðar að sælda yður eins og hveiti.

    22:32 En ég hef beðið fyrir þér, að trú þín þrjóti ekki. Og styrk þú bræður þína, þegar þú ert snúinn við.``

    22:33 En Símon sagði við hann: ,,Herra, reiðubúinn er ég að fylgja þér bæði í fangelsi og dauða.``

    22:34 Jesús mælti: ,,Ég segi þér, Pétur: Áður en hani galar í dag, munt þú þrisvar hafa neitað því, að þú þekkir mig.``

    22:35 Og hann sagði við þá: ,,Þegar ég sendi yður út án pyngju og mals og skólausa, brast yður þá nokkuð?`` Þeir svöruðu: ,,Nei, ekkert.``

    22:36 Þá sagði hann við þá: ,,En nú skal sá, er pyngju hefur, taka hana með sér og eins sá, er mal hefur, og hinn, sem ekkert á, selji yfirhöfn sína og kaupi sverð.

    22:37 Því ég segi yður, að þessi ritning á að rætast á mér: ,með illvirkjum var hann talinn.` Og nú er að fullnast það sem um mig er ritað.``

    22:38 En þeir sögðu: ,,Herra, hér eru tvö sverð.`` Og hann sagði við þá: ,,Það er nóg.``

    22:39 Síðan fór hann út og gekk, eins og hann var vanur, til Olíufjallsins. Og lærisveinarnir fylgdu honum.

    22:40 Þegar hann kom á staðinn, sagði hann við þá: ,,Biðjið, að þér fallið ekki í freistni.``

    22:41 Og hann vék frá þeim svo sem steinsnar, féll á kné, baðst fyrir og sagði:

    22:42 ,,Faðir, ef þú vilt, þá tak þennan kaleik frá mér! En verði þó ekki minn heldur þinn vilji.`` [

    22:43 Þá birtist honum engill af himni, sem styrkti hann.

    22:44 Og hann komst í dauðans angist og baðst enn ákafar fyrir, en sveiti hans varð eins og blóðdropar, er féllu á jörðina.]

    22:45 Hann stóð upp frá bæn sinni, kom til lærisveinanna og fann þá sofandi, örmagna af hryggð.

    22:46 Og hann sagði við þá: ,,Hví sofið þér? Rísið upp og biðjið, að þér fallið ekki í freistni.``

    22:47 Meðan hann var enn að tala, kom flokkur manna, og fremstur fór einn hinna tólf, Júdas, áður nefndur. Hann gekk að Jesú til að kyssa hann.

    22:48 Jesús sagði við hann: ,,Júdas, svíkur þú Mannssoninn með kossi?``

    22:49 Þeir sem með honum voru, sáu að hverju fór og sögðu: ,,Herra, eigum vér ekki að bregða sverði?``

    22:50 Og einn þeirra hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum hægra eyrað.

    22:51 Þá sagði Jesús: ,,Hér skal staðar nema.`` Og hann snart eyrað og læknaði hann.

    22:52 Þá sagði Jesús við æðstu prestana, varðforingja helgidómsins og öldungana, sem komnir voru á móti honum: ,,Eruð þér að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja?

    22:53 Daglega var ég með yður í helgidóminum, og þér lögðuð ekki hendur á mig. En þetta er yðar tími og máttur myrkranna.``

    22:54 En þeir tóku hann höndum og leiddu brott og fóru með hann í hús æðsta prestsins. Pétur fylgdi eftir álengdar.

    22:55 Menn höfðu kveikt eld í miðjum garðinum og sátu við hann, og Pétur settist meðal þeirra.

    22:56 En þerna nokkur sá hann sitja í bjarmanum, hvessti á hann augun og sagði: ,,Þessi maður var líka með honum.``

    22:57 Því neitaði hann og sagði: ,,Kona, ég þekki hann ekki.``

    22:58 Litlu síðar sá hann annar maður og sagði: ,,Þú ert líka einn af þeim.`` En Pétur svaraði: ,,Nei, maður minn, það er ég ekki.``

    22:59 Og að liðinni um það bil einni stund fullyrti enn annar þetta og sagði: ,,Víst var þessi líka með honum, enda Galíleumaður.``

    22:60 Pétur mælti: ,,Ekki skil ég, hvað þú átt við, maður.`` Og jafnskjótt sem hann sagði þetta, gól hani.

    22:61 Og Drottinn vék sér við og leit til Péturs. Þá minntist Pétur orða Drottins, er hann mælti við hann: ,,Áður en hani galar í dag, muntu þrisvar afneita mér.``

    22:62 Og hann gekk út og grét beisklega.

    22:63 En þeir menn, sem gættu Jesú, hæddu hann og börðu,

    22:64 huldu andlit hans og sögðu: ,,Spáðu nú, hver það var, sem sló þig?``

    22:65 Og marga aðra svívirðu sögðu þeir við hann.

    22:66 Þegar dagur rann, kom öldungaráð lýðsins saman, bæði æðstu prestar og fræðimenn, og létu færa hann fyrir ráðsfund sinn.

    22:67 Þeir sögðu: ,,Ef þú ert Kristur, þá seg oss það.`` En hann sagði við þá: ,,Þótt ég segi yður það, munuð þér ekki trúa,

    22:68 og ef ég spyr yður, svarið þér ekki.

    22:69 En upp frá þessu mun Mannssonurinn sitja til hægri handar Guðs kraftar.``

    22:70 Þá spurðu þeir allir: ,,Ert þú þá sonur Guðs?`` Og hann sagði við þá: ,,Þér segið, að ég sé sá.``

    22:71 En þeir sögðu: ,,Hvað þurfum vér nú framar vitnis við? Vér höfum sjálfir heyrt það af munni hans.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine