Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - LUKE 5

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    5:1 Nú bar svo til, að hann stóð við Genesaretvatn og mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð.

    5:2 Þá sá hann tvo báta við vatnið, en fiskimennirnir voru farnir í land og þvoðu net sín.

    5:3 Hann fór út í þann bátinn, er Símon átti, og bað hann að leggja lítið eitt frá landi, settist og tók að kenna mannfjöldanum úr bátnum.

    5:4 Þegar hann hafði lokið ræðu sinni, sagði hann við Símon: ,,Legg þú út á djúpið, og leggið net yðar til fiskjar.``

    5:5 Símon svaraði: ,,Meistari, vér höfum stritað í alla nótt og ekkert fengið, en fyrst þú segir það, skal ég leggja netin.``

    5:6 Nú gjörðu þeir svo, og fengu þeir þá mikinn fjölda fiska, en net þeirra tóku að rifna.

    5:7 Bentu þeir þá félögum sínum á hinum bátnum að koma og hjálpa sér. Þeir komu og hlóðu báða bátana, svo að nær voru sokknir.

    5:8 Þegar Símon Pétur sá þetta, féll hann fyrir kné Jesú og sagði: ,,Far þú frá mér, herra, því að ég er syndugur maður.``

    5:9 En felmtur kom á hann og alla þá, sem með honum voru, vegna fiskaflans, er þeir höfðu fengið.

    5:10 Eins var um Jakob og Jóhannes Sebedeussyni, félaga Símonar. Jesús sagði þá við Símon: ,,Óttast þú ekki, héðan í frá skalt þú menn veiða.``

    5:11 Og þeir lögðu bátunum að landi, yfirgáfu allt og fylgdu honum.

    5:12 Svo bar við, er hann var í einni borginni, að þar var maður altekinn líkþrá. Hann sá Jesú, féll fram á ásjónu sína og bað hann: ,,Herra, ef þú vilt, getur þú hreinsað mig.``

    5:13 Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: ,,Ég vil, verð þú hreinn!`` Jafnskjótt hvarf af honum líkþráin.

    5:14 Og hann bauð honum að segja þetta engum. ,,En far þú,`` sagði hann, ,,sýn þig prestinum, og fórna fyrir hreinsun þína, eins og Móse bauð, þeim til vitnisburðar.``

    5:15 En fregnin um hann breiddist út því meir, og menn komu hópum saman til að hlýða á hann og læknast af meinum sínum.

    5:16 En hann dró sig einatt í hlé til óbyggðra staða og var þar á bæn.

    5:17 Dag nokkurn var hann að kenna. Þar sátu farísear og lögmálskennendur, komnir úr hverju þorpi í Galíleu og Júdeu og frá Jerúsalem, og kraftur Drottins var með honum til þess að lækna.

    5:18 Komu þá menn með lama mann í rekkju og reyndu að bera hann inn og leggja hann fyrir framan Jesú.

    5:19 En vegna mannfjöldans sáu þeir engin ráð til að komast inn með hann og fóru því upp á þak og létu hann síga í rekkjunni niður um helluþekjuna beint fram fyrir Jesú.

    5:20 Og er hann sá trú þeirra, sagði hann: ,,Maður, syndir þínar eru þér fyrirgefnar.``

    5:21 Þá tóku fræðimennirnir og farísearnir að hugsa með sér: ,,Hver er sá, er fer með slíka guðlöstun? Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?``

    5:22 En Jesús skynjaði gjörla hugsanir þeirra og sagði við þá: ,,Hvað hugsið þér í hjörtum yðar?

    5:23 Hvort er auðveldara að segja: ,Syndir þínar eru þér fyrirgefnar,` eða segja: ,Statt upp og gakk`?

    5:24 En til þess að þér vitið, að Mannssonurinn hefur vald á jörðu til að fyrirgefa syndir, þá segi ég þér:`` _ og nú talar hann við lama manninn _ ,,Statt upp, tak rekkju þína, og far heim til þín.``

    5:25 Jafnskjótt stóð hann upp frammi fyrir þeim, tók það, sem hann hafði legið á, fór heim til sín og lofaði Guð.

    5:26 En allir voru furðu lostnir og lofuðu Guð. Og þeir urðu ótta slegnir og sögðu: ,,Óskiljanlegt er það, sem vér höfum séð í dag.``

    5:27 Eftir þetta fór hann út. Þá sá hann tollheimtumann, Leví að nafni, sitja hjá tollbúðinni og sagði við hann: ,,Fylg þú mér!``

    5:28 Og hann stóð upp, yfirgaf allt og fylgdi honum.

    5:29 Leví bjó honum veislu mikla í húsi sínu, og þar sat að borði með þeim mikill fjöldi tollheimtumanna og annarra.

    5:30 En farísearnir og fræðimenn þeirra vönduðu um við lærisveina hans og sögðu: ,,Hvers vegna etið þér og drekkið með tollheimtumönnum og bersyndugum?``

    5:31 Og Jesús svaraði þeim: ,,Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru.

    5:32 Ég er ekki kominn til að kalla réttláta, heldur syndara til iðrunar.``

    5:33 En þeir sögðu við hann: ,,Lærisveinar Jóhannesar fasta oft og fara með bænir og eins lærisveinar farísea, en þínir eta og drekka.``

    5:34 Jesús sagði við þá: ,,Hvort getið þér ætlað brúðkaupsgestum að fasta, meðan brúðguminn er hjá þeim?

    5:35 En koma munu þeir dagar, er brúðguminn verður frá þeim tekinn, þá munu þeir fasta á þeim dögum.``

    5:36 Hann sagði þeim einnig líkingu: ,,Enginn rífur bót af nýju fati og lætur á gamalt fat, því að bæði rífur hann þá nýja fatið og bótin af því hæfir ekki hinu gamla.

    5:37 Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi, því þá sprengir nýja vínið belgina og fer niður, en belgirnir ónýtast.

    5:38 Nýtt vín ber að láta á nýja belgi.

    5:39 Og enginn, sem drukkið hefur gamalt vín, vill nýtt, því að hann segir: ,Hið gamla er gott.```

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine