Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - LUKE 7

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    7:1 Þá er hann hafði lokið máli sínu í áheyrn lýðsins, fór hann til Kapernaum.

    7:2 Hundraðshöfðingi nokkur hafði þjón, sem hann mat mikils. Þjónninn var sjúkur og dauðvona.

    7:3 Þegar hundraðshöfðinginn heyrði um Jesú, sendi hann til hans öldunga Gyðinga og bað hann koma og bjarga lífi þjóns síns.

    7:4 Þeir komu til Jesú, báðu hann ákaft og sögðu: ,,Verður er hann þess, að þú veitir honum þetta,

    7:5 því að hann elskar þjóð vora, og hann hefur reist samkunduna handa oss.``

    7:6 Jesús fór með þeim. Þegar hann átti skammt til hússins, sendi hundraðshöfðinginn vini sína til hans og lét segja við hann: ,,Ómaka þig ekki, herra, því að ég er ekki verður þess, að þú gangir inn undir þak mitt.

    7:7 Þess vegna hef ég ekki heldur talið sjálfan mig verðan þess að koma til þín. En mæl þú eitt orð, og mun sveinn minn heill verða.

    7:8 Því að sjálfur er ég maður, sem verð að lúta valdi og ræð yfir hermönnum, og ég segi við einn: ,Far þú,` og hann fer, og við annan: ,Kom þú,` og hann kemur, og við þjón minn: ,Gjör þetta,` og hann gjörir það.``

    7:9 Þegar Jesús heyrði þetta, furðaði hann sig á honum, sneri sér að mannfjöldanum, sem fylgdi honum, og mælti: ,,Ég segi yður, ekki einu sinni í Ísrael hef ég fundið þvílíka trú.``

    7:10 Sendimenn sneru þá aftur heim og fundu þjóninn heilan heilsu.

    7:11 Skömmu síðar bar svo við, að Jesús hélt til borgar, sem heitir Nain, og lærisveinar hans fóru með honum og mikill mannfjöldi.

    7:12 Þegar hann nálgaðist borgarhliðið, þá var verið að bera út látinn mann, einkason móður sinnar, sem var ekkja, og mikill fjöldi úr borginni var með henni.

    7:13 Og er Drottinn sá hana, kenndi hann í brjósti um hana og sagði við hana: ,,Grát þú eigi!``

    7:14 Og hann gekk að og snart líkbörurnar, en þeir, sem báru, námu staðar. Þá sagði hann: ,,Ungi maður, ég segi þér, rís þú upp!``

    7:15 Hinn látni settist þá upp og tók að mæla, og Jesús gaf hann móður hans.

    7:16 En ótti greip alla, og þeir vegsömuðu Guð og sögðu: ,,Spámaður mikill er risinn upp meðal vor,`` og ,,Guð hefur vitjað lýðs síns.``

    7:17 Og þessi fregn um hann barst út um alla Júdeu og allt nágrennið.

    7:18 Lærisveinar Jóhannesar sögðu honum frá öllu þessu. Hann kallaði þá til sín tvo lærisveina sína,

    7:19 sendi þá til Drottins og lét spyrja: ,,Ert þú sá sem koma skal, eða eigum vér að vænta annars?``

    7:20 Mennirnir fóru til hans og sögðu: ,,Jóhannes skírari sendi okkur til þín og spyr: ,Ert þú sá sem koma skal, eða eigum vér að vænta annars?```

    7:21 Á þeirri stundu læknaði hann marga af sjúkdómum, meinum og illum öndum og gaf mörgum blindum sýn.

    7:22 Og hann svaraði þeim: ,,Farið og kunngjörið Jóhannesi það, sem þið hafið séð og heyrt: Blindir fá sýn, haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, dauðir rísa upp og fátækum er flutt fagnaðarerindi.

    7:23 Og sæll er sá, sem hneykslast ekki á mér.``

    7:24 Þá er sendimenn Jóhannesar voru burt farnir, tók hann að tala til mannfjöldans um Jóhannes: ,,Hvað fóruð þér að sjá í óbyggðum? Reyr af vindi skekinn?

    7:25 Hvað fóruð þér að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, í konungssölum er þá að finna, sem skartklæðin bera og lifa í sællífi.

    7:26 Hvað fóruð þér þá að sjá? Spámann? Já, segi ég yður, og það meira en spámann.

    7:27 Hann er sá sem um er ritað: Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er greiða mun veg þinn fyrir þér.

    7:28 Ég segi yður: Enginn er sá af konu fæddur, sem meiri sé en Jóhannes. En hinn minnsti í Guðs ríki er honum meiri.``

    7:29 Og allur lýðurinn, sem á hlýddi, og enda tollheimtumenn, viðurkenndu réttlæti Guðs og létu skírast af Jóhannesi.

    7:30 En farísear og lögvitringar gjörðu að engu áform Guðs um þá og létu ekki skírast af honum.

    7:31 ,,Við hvað á ég þá að líkja mönnum þessarar kynslóðar? Hverju eru þeir líkir?

    7:32 Líkir eru þeir börnum, sem á torgi sitja og kallast á: ,Vér lékum fyrir yður á flautu, og ekki vilduð þér dansa. Vér sungum yður sorgarljóð, og ekki vilduð þér gráta.`

    7:33 Nú kom Jóhannes skírari, át ekki brauð né drakk vín, og þér segið: ,Hann hefur illan anda.`

    7:34 Og Mannssonurinn er kominn, etur og drekkur, og þér segið: ,Hann er mathákur og vínsvelgur, vinur tollheimtumanna og bersyndugra!`

    7:35 En spekin hefur rétt fyrir sér, það staðfesta öll börn hennar.``

    7:36 Farísei nokkur bauð honum að eta hjá sér, og hann fór inn í hús faríseans og settist til borðs.

    7:37 En kona ein í bænum, sem var bersyndug, varð þess vís, að hann sat að borði í húsi faríseans. Kom hún þá með alabastursbuðk með smyrslum,

    7:38 nam staðar að baki honum til fóta hans grátandi, tók að væta fætur hans með tárum sínum, þerraði þá með höfuðhári sínu, kyssti þá og smurði með smyrslunum.

    7:39 Þegar faríseinn, sem honum hafði boðið, sá þetta, sagði hann við sjálfan sig: ,,Væri þetta spámaður, mundi hann vita, hver og hvílík sú kona er, sem snertir hann, að hún er bersyndug.``

    7:40 Jesús sagði þá við hann: ,,Símon, ég hef nokkuð að segja þér.`` Hann svaraði: ,,Seg þú það, meistari.``

    7:41 ,,Tveir menn voru skuldugir lánveitanda nokkrum. Annar skuldaði honum fimm hundruð denara, en hinn fimmtíu.

    7:42 Nú gátu þeir ekkert borgað, og þá gaf hann báðum upp. Hvor þeirra skyldi nú elska hann meira?``

    7:43 Símon svaraði: ,,Sá, hygg ég, sem hann gaf meira upp.`` Jesús sagði við hann: ,,Þú ályktaðir rétt.``

    7:44 Síðan sneri hann sér að konunni og sagði við Símon: ,,Sér þú konu þessa? Ég kom í hús þitt, og þú gafst mér ekki vatn á fætur mína, en hún vætti fætur mína tárum sínum og þerraði með hári sínu.

    7:45 Ekki gafst þú mér koss, en hún hefur ekki látið af að kyssa fætur mína, allt frá því ég kom.

    7:46 Ekki smurðir þú höfuð mitt olíu, en hún hefur smurt fætur mína með smyrslum.

    7:47 Þess vegna segi ég þér: Hinar mörgu syndir hennar eru fyrirgefnar, enda elskar hún mikið, en sá elskar lítið, sem lítið er fyrirgefið.``

    7:48 Síðan sagði hann við hana: ,,Syndir þínar eru fyrirgefnar.``

    7:49 Þá tóku þeir, sem til borðs sátu með honum, að segja með sjálfum sér: ,,Hver er sá, er fyrirgefur syndir?``

    7:50 En hann sagði við konuna: ,,Trú þín hefur frelsað þig, far þú í friði.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine