Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MATTHEW 11

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    11:1 Þá er Jesús hafði mælt svo fyrir við lærisveina sína tólf, hélt hann þaðan að kenna og prédika í borgum þeirra.

    11:2 Jóhannes heyrði í fangelsinu um verk Krists. Þá sendi hann honum orð með lærisveinum sínum og spurði:

    11:3 ,,Ert þú sá, sem koma skal, eða eigum vér að vænta annars?``

    11:4 Jesús svaraði þeim: ,,Farið og kunngjörið Jóhannesi það, sem þér heyrið og sjáið:

    11:5 Blindir fá sýn og haltir ganga, líkþráir hreinsast og daufir heyra, dauðir rísa upp, og fátækum er flutt fagnaðarerindi.

    11:6 Og sæll er sá, sem hneykslast ekki á mér.``

    11:7 Þegar þeir voru farnir, tók Jesús að tala til mannfjöldans um Jóhannes: ,,Hvað fóruð þér að sjá í óbyggðum? Reyr af vindi skekinn?

    11:8 Hvað fóruð þér að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, prúðbúna menn er að finna í sölum konunga.

    11:9 Til hvers fóruð þér? Að sjá spámann? Já, segi ég yður, og það meira en spámann.

    11:10 Hann er sá, sem um er ritað: Sjá, ég sendi sendiboða minn á undan þér, er greiða mun veg þinn fyrir þér.

    11:11 Sannlega segi ég yður: Enginn er sá af konu fæddur, sem meiri sé en Jóhannes skírari. En hinn minnsti í himnaríki er honum meiri.

    11:12 Frá dögum Jóhannesar skírara og til þessa er ríki himnanna ofríki beitt, og ofríkismenn vilja hremma það.

    11:13 Spámennirnir allir og lögmálið, allt fram að Jóhannesi, sögðu fyrir um þetta.

    11:14 Og ef þér viljið við því taka, þá er hann Elía sá, sem koma skyldi.

    11:15 Hver sem eyru hefur, hann heyri.

    11:16 Við hvað á ég að líkja þessari kynslóð? Lík er hún börnum, sem á torgum sitja og kallast á:

    11:17 ,Vér lékum fyrir yður á flautu og ekki vilduð þér dansa. Vér sungum yður sorgarljóð, og ekki vilduð þér syrgja.`

    11:18 Jóhannes kom, át hvorki né drakk, og menn segja: ,Hann hefur illan anda.`

    11:19 Mannssonurinn kom, át og drakk, og menn segja: ,Hann er mathákur og vínsvelgur, vinur tollheimtumanna og bersyndugra!` En spekin sannast af verkum sínum.``

    11:20 Þá tók hann að ávíta borgirnar, þar sem hann hafði gjört flest kraftaverk sín, fyrir að hafa ekki gjört iðrun.

    11:21 ,,Vei þér, Korasín! Vei þér, Betsaída! Ef gjörst hefðu í Týrus og Sídon kraftaverkin, sem gjörðust í ykkur, hefðu þær löngu iðrast í sekk og ösku.

    11:22 En ég segi ykkur: Týrus og Sídon mun bærilegra á dómsdegi en ykkur.

    11:23 Og þú Kapernaum. Verður þú hafin til himins? Nei, til heljar mun þér steypt verða. Ef gjörst hefðu í Sódómu kraftaverkin, sem gjörðust í þér, þá stæði hún enn í dag.

    11:24 En ég segi yður: Landi Sódómu mun bærilegra á dómsdegi en þér.``

    11:25 Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: ,,Ég vegsama þig, faðir, herra himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum, en opinberað það smælingjum.

    11:26 Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.

    11:27 Allt er mér falið af föður mínum, og enginn þekkir soninn nema faðirinn, né þekkir nokkur föðurinn nema sonurinn og sá er sonurinn vill opinbera hann.

    11:28 Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.

    11:29 Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar.

    11:30 Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine