Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - MATTHEW 2

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    2:1 Þegar Jesús var fæddur í Betlehem í Júdeu á dögum Heródesar konungs, komu vitringar frá Austurlöndum til Jerúsalem

    2:2 og sögðu: ,,Hvar er hinn nýfæddi konungur Gyðinga? Vér sáum stjörnu hans renna upp og erum komnir að veita honum lotningu.``

    2:3 Þegar Heródes heyrði þetta, varð hann skelkaður og öll Jerúsalem með honum.

    2:4 Og hann stefndi saman öllum æðstu prestum og fræðimönnum lýðsins og spurði þá: ,,Hvar á Kristur að fæðast?``

    2:5 Þeir svöruðu honum: ,,Í Betlehem í Júdeu. En þannig er ritað hjá spámanninum:

    2:6 Þú Betlehem, í landi Júda, ekki ertu síst meðal hefðarborga Júda. Því að höfðingi mun frá þér koma, sem verður hirðir lýðs míns, Ísraels.``

    2:7 Þá kallaði Heródes vitringana til sín á laun og grófst eftir því hjá þeim, nær stjarnan hefði birst.

    2:8 Hann sendi þá síðan til Betlehem og sagði: ,,Farið og spyrjist vandlega fyrir um barnið, og er þér finnið það látið mig vita, til þess að ég geti einnig komið og veitt því lotningu.``

    2:9 Þeir hlýddu á konung og fóru. Og stjarnan, sem þeir sáu austur þar, fór fyrir þeim, uns hana bar þar yfir, sem barnið var.

    2:10 Þegar þeir sáu stjörnuna, glöddust þeir harla mjög,

    2:11 þeir gengu inn í húsið og sáu barnið og Maríu, móður þess, féllu fram og veittu því lotningu. Síðan luku þeir upp fjárhirslum sínum og færðu því gjafir, gull, reykelsi og myrru.

    2:12 En þar sem þeir fengu bendingu í draumi að snúa ekki aftur til Heródesar, fóru þeir aðra leið heim í land sitt.

    2:13 Þegar þeir voru farnir, þá vitrast engill Drottins Jósef í draumi og segir: ,,Rís upp, tak barnið og móður þess og flý til Egyptalands. Þar skaltu vera, uns ég segi þér, því að Heródes mun leita barnsins til að fyrirfara því.``

    2:14 Hann vaknaði, tók barnið og móður þess um nóttina og fór til Egyptalands.

    2:15 Þar dvaldist hann þangað til Heródes var allur. Það sem Drottinn sagði fyrir munn spámannsins, skyldi rætast: ,,Frá Egyptalandi kallaði ég son minn.``

    2:16 Þá sá Heródes, að vitringarnir höfðu gabbað hann, og varð afar reiður, sendi menn og lét myrða öll sveinbörn í Betlehem og nágrenni hennar, tvævetur og yngri, en það svaraði þeim tíma, er hann hafði komist að hjá vitringunum.

    2:17 Nú rættist það, sem sagt var fyrir munn Jeremía spámanns:

    2:18 Rödd heyrðist í Rama, grátur og kveinstafir miklir, Rakel grætur börnin sín og vill ekki huggast láta, því að þau eru ekki framar lífs.

    2:19 Þegar Heródes var dáinn, þá vitrast engill Drottins Jósef í draumi í Egyptalandi

    2:20 og segir: ,,Rís upp, tak barnið og móður þess og far til Ísraelslands. Nú eru þeir dánir, sem sátu um líf barnsins.``

    2:21 Hann tók sig upp og fór til Ísraelslands með barnið og móður þess.

    2:22 En þá er hann heyrði, að Arkelás réð ríkjum í Júdeu í stað Heródesar föður síns, óttaðist hann að fara þangað, og hélt til Galíleubyggða eftir bendingu í draumi.

    2:23 Þar settist hann að í borg, sem heitir Nasaret, en það átti að rætast, sem sagt var fyrir munn spámannanna: ,,Nasarei skal hann kallast.``

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine