Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - NAHUM 2

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    2:1 Sjá á fjöllunum fætur fagnaðarboðans, þess er friðinn kunngjörir. Hald hátíðir þínar, Júda, gjald heit þín, því að eyðandinn skal ekki framar um hjá þér fara _ hann er með öllu afmáður.

    2:2 Ófriðarmaðurinn fer í móti þér, Níníve: Gæt vígisins! Horf njósnaraugum út á veginn, styrk lendarnar, safna öllum styrkleika þínum,

    2:3 því að Drottinn reisir aftur við tign Jakobs eins og tign Ísraels, því að ræningjar hafa rænt þá og skemmt gróðurkvistu þeirra.

    2:4 Skildir kappa hans eru rauðlitaðir, hermennirnir klæddir skarlatsklæðum. Vagnarnir glóa af stáli þann dag, er hann útbýr þá, og lensunum verður sveiflað.

    2:5 Vagnarnir geisa á strætunum, þeytast um torgin, þeir eru til að sjá sem blys, þeir þjóta áfram sem eldingar.

    2:6 Konungurinn heitir þá á tignarmenn sína: Þeir hrasa á göngu sinni, þeir flýta sér að múrnum, en þegar er vígþak reist.

    2:7 Hliðunum við fljótið er lokið upp og konungshöllin kemst í uppnám.

    2:8 Og drottningin verður flett klæðum og flutt burt, og þernur hennar munu andvarpa, líkast því sem dúfur kurri, og berja sér á brjóst.

    2:9 Níníve hefir verið sem vatnstjörn frá upphafi vega sinna. En þeir flýja. ,,Standið við, standið við!`` _ en enginn lítur við.

    2:10 Rænið silfri, rænið gulli! Því að hér er óþrjótandi forði, ógrynni af alls konar dýrum munum.

    2:11 Auðn, gjörauðn og aleyðing, huglaus hjörtu, riðandi kné og skjálfti í öllum mjöðmum, og allra andlit blikna.

    2:12 Hvar er nú bæli ljónanna, átthagar ungljónanna, þar sem ljónið gekk og ljónynjan og ljónshvolpurinn, án þess að nokkur styggði þau?

    2:13 Ljónið reif sundur, þar til er hvolpar þess höfðu fengið nægju sína, og drap niður handa ljónynjum sínum, fyllti hella sína bráð og bæli sín ránsfeng.

    2:14 Sjá, ég rís í gegn þér _ segir Drottinn allsherjar _ og læt vagna þína bálast upp í reyk, og sverðið skal eta ungljón þín. Og ég eyði herfangi þínu af jörðinni, og raust sendiboða þinna skal ekki framar heyrast.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine