Bad Advertisement?

News / Reviews:
  • World News
  • Movie Reviews
  • Book Search

    Are you a Christian?

    Online Store:
  • Visit Our eBay Store



  • ICELANDIC BIBLE - NUMBERS 21

    PREVIOUS CHAPTER - NEXT CHAPTER - HELP


    21:1 Er kanverski konungurinn í Arad, sem bjó í Suður-Kanaan, spurði, að Ísrael kæmi Atarím-veginn, þá réðst hann á Ísrael og hertók nokkra þeirra.

    21:2 Þá gjörði Ísrael Drottni heit og sagði: ,,Ef þú gefur lýð þennan á mitt vald, skal ég banni helga borgir þeirra.``

    21:3 Og Drottinn heyrði raust Ísraels og seldi Kanaanítana þeim í hendur. Og þeir helguðu þá banni og borgir þeirra, og var staðurinn kallaður Horma.

    21:4 Lögðu þeir þá upp frá Hórfjalli leiðina til Rauðahafs til þess að fara í kringum Edómland. En lýðnum féllst hugur á leiðinni.

    21:5 Og lýðurinn talaði í gegn Guði og í gegn Móse: ,,Hví leidduð þið oss brott af Egyptalandi, til þess að vér dæjum í eyðimörkinni. Hér er hvorki brauð né vatn, og vér erum orðnir leiðir á þessu léttmeti.``

    21:6 Þá sendi Drottinn eitraða höggorma meðal lýðsins, og þeir bitu fólkið, svo að margt manna dó af Ísrael.

    21:7 Þá gekk lýðurinn til Móse og sagði: ,,Vér höfum syndgað, því að vér höfum talað í gegn Drottni og í gegn þér. Bið þú til Drottins, að hann taki höggormana frá oss.`` Móse bað þá fyrir lýðnum.

    21:8 Og Drottinn sagði við Móse: ,,Gjör þér eiturorm og set hann á stöng, og það skal verða, að hver sem bitinn er og lítur á hann, skal lífi halda.``

    21:9 Móse gjörði höggorm af eiri og setti á stöng. Og það varð, að ef höggormur hafði bitið einhvern og hann leit til eirormsins, þá hélt hann lífi.

    21:10 Eftir þetta lögðu Ísraelsmenn upp og settu búðir sínar í Óbót.

    21:11 Og þeir lögðu upp frá Óbót og settu búðir sínar í Íje-Haabarím í eyðimörkinni, sem er fyrir austan Móab.

    21:12 Þaðan lögðu þeir upp og settu búðir sínar í Sered-dal.

    21:13 Þaðan lögðu þeir upp og settu búðir sínar hinum megin við Arnon, sem er í eyðimörkinni og kemur upp í landi Amoríta. Arnon skilur lönd Móabíta og Amoríta.

    21:14 Fyrir því segir svo í bókinni um bardaga Drottins: Vaheb í Súfa og Arnondalir

    21:15 og dalahlíðarnar, er ná þangað, sem Ar liggur, og liggja upp að löndum Móabíta.

    21:16 Þaðan héldu þeir til Beer. Það er brunnurinn, sem Drottinn talaði um við Móse: ,,Safna saman lýðnum, ég vil gefa þeim vatn.``

    21:17 Þá söng Ísrael þetta kvæði: Vell þú upp, brunnur! Syngið í móti honum!

    21:18 Brunnur, sem höfðingjarnir grófu og göfugmenni þjóðarinnar holuðu innan með veldissprota, með stöfum sínum. Frá eyðimörkinni héldu þeir til Mattana,

    21:19 og frá Mattana til Nahalíel, og frá Nahalíel til Bamót,

    21:20 og frá Bamót í dalinn, sem liggur í Móabslandi, að Pisgatindi, sem mænir yfir öræfin.

    21:21 Ísrael sendi menn á fund Síhons Amorítakonungs og lét segja honum:

    21:22 ,,Leyf mér að fara um land þitt. Eigi munum vér hneigja af út á akra né víngarða, og eigi munum vér drekka vatn úr brunnum, heldur munum vér fara Konungsveg, þar til vér erum komnir út úr landi þínu.``

    21:23 En Síhon leyfði eigi Ísrael að fara um land sitt. Hann safnaði að sér öllum lýð sínum og fór í móti Ísrael inn í eyðimörkina. Og er hann kom til Jahsa, lagði hann til orustu við Ísrael.

    21:24 En Ísrael vann sigur á honum með sverðseggjum og lagði undir sig land hans frá Arnon til Jabbok, allt að Ammónítum, því að landamerki Ammóníta voru ekki auðunnin.

    21:25 Ísrael tók allar þessar borgir og settist að í öllum borgum Amoríta, í Hesbon og öllum þorpunum þar í kring.

    21:26 Hesbon var borg Síhons Amorítakonungs. Hafði hann átt í ófriði við hinn fyrri konung Móabíta og tekið frá honum allt land hans að Arnon.

    21:27 Fyrir því sögðu háðskáldin: Komið til Hesbon! Endurreist og grundvölluð verði borg Síhons!

    21:28 Því að eldur gekk út frá Hesbon, logi frá borg Síhons. Hann eyddi Ar í Móab, lávörðum Arnonhæða.

    21:29 Vei þér, Móab! Það er úti um þig, Kamoss lýður! Kamos lét sonu sína verða flóttamenn og dætur sínar herteknar verða af Síhon, Amorítakonungi.

    21:30 Vér skutum á þá. Gjöreydd var Hesbon allt til Díbon, og vér fórum herskildi yfir, svo að eldurinn bálaðist upp allt til Medeba.

    21:31 Ísrael settist nú að í landi Amoríta.

    21:32 En Móse sendi njósnarmenn til Jaser, og þeir unnu hana og þorpin þar í kring og ráku burt Amorítana, sem þar bjuggu.

    21:33 Sneru þeir nú við og héldu veginn, sem liggur til Basan. En Óg, konungur í Basan, fór í móti þeim með öllu liði sínu til þess að heyja bardaga hjá Edreí.

    21:34 Þá sagði Drottinn við Móse: ,,Eigi skalt þú óttast hann, því að ég gef hann og lið hans allt og land hans í þínar hendur, og skalt þú svo fara með hann, eins og þú fórst með Síhon, Amorítakonung, er bjó í Hesbon.``

    21:35 Og þeir felldu hann og sonu hans og allt hans lið, svo að enginn var eftir skilinn, er undan kæmist, og lögðu þeir land hans undir sig.

    GOTO NEXT CHAPTER - BIBLE INDEX & SEARCH

    God Rules.NET
    Search 100+ volumes of books at one time. Luther Bible Search Engine. Elberfelder Bible Search Engine. German SCH Bible Search Engine